Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 54
34 26. júlí 2008 LAUGARDAGUR
Ætla mætti að engum væri sér-
staklega í nöp við forseta Íslands,
en annað hefur komið á dag-
inn. Á tenglasíðunni
B2 má rekja slóð til
forlátra bola sem
skarta Ólafi
Ragnari Gríms-
syni og við
myndina stend-
ur: Not my presid-
ent eða Ekki minn for-
seti. Bolirnir eru seldir
á cafepress.com og
sverja sig í ætt við
fjölda bola sem hafa
verið prentaðir með
mynd af George W.
Bush. Hver sem er
getur selt hönnun sína á
síðunni. En hver stendur fyrir
þessum bolum? Dogma selur bol-
ina ekki og afgreiðslumenn
Inmate, sem selja boli
sem eru gerðir af
föngum, sver þá af
sér. „Inmate
meiðir ekki og
enginn okkar
myndi gera
svona bol.“ Þórdís
Claessen, hönnuður fyrir
Ósóma, hefur ekki einu
sinni séð bolina, en gerir
ráð fyrir því að þeir sem
hafi gert þá vilji fara
huldu höfði, fyrst bolirn-
ir séu ekki merktir á síðunni. Hér
er því líklega um einhverja
hrekkjalóma eða laumupólitíkusa
að ræða. Bolirnir kosta 25 dollara,
eða rúmar 2000 krónur á núver-
andi gengi, og fást í mörgum litum,
útgáfum og stærðum. - kbs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. bauti, 6. tveir eins, 8. duft, 9. pili,
11. leita að, 12. fjárhirðir, 14. hrygga,
16. tveir eins, 17. utan, 18. farfa, 20.
tveir eins, 21. útgáfunr. tónverks.
LÓÐRÉTT
1. erindi, 3. kringum, 4. gróðrahyggja,
5. hamfletta, 7. gufuskip, 10. fæðu,
13. þreyta, 15. sál, 16. nögl, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ee, 8. mél, 9. rim,
11. gá, 12. smali, 14. stúra, 16. kk, 17.
inn, 18. lit, 20. dd, 21. ópus.
LÓÐRÉTT: 1. vers, 3. um, 4. fégirnd,
5. flá, 7. eimskip, 10. mat, 13. lúi, 15.
anda, 16. kló, 19. tu.
Ylfa Lind Gylfadóttir
Aldur: Á 24. aldursári.
Starf: Heimavinnandi húsmóðir.
Fjölskylda: Hún og sonur hennar.
Foreldrar: Gylfi Símonarson og
Linda Guðmundsdóttir.
Stjörnumerki: Vog.
Ylfa Lind Gylfadóttir kaus að verða
einstæð móðir, án tæknifrjóvgunar.
Ylfa er draggkóngur Íslands.
„Eftir mánaðar yfirlegu hefur
Clapton valið Ellen Kristjánsdótt-
ur til að hita upp fyrir sig,“ segir
Grímur Atlason, bæjarstjóri,
bassaleikari og tónleikahaldari
með meiru.
Nú styttist í tónleika gítargoðs-
ins Erics Clapton en þeir verða í
Egilshöll 8. ágúst. Grímur segir
mikilvægt að hafa upphitunarat-
riði og kvennaljóminn Clapton
vildi að það yrði söngkona sem hit-
aði upp. „Hann gaf engar skýring-
ar. En þetta er sniðugt hjá honum.
Skapar skemmtilegan kontrast,“
segir Grímur sem sendi Clapton
nokkur tóndæmi með íslenskum
söngkonum. Og Ellen var sú sem
féll goðinu best í geð.
Gríðarleg aðsókn varð strax
þegar miðasala á tónleikana opn-
aði í mars. Þegar hafa selst vel
yfir tíu þúsund miðar, uppselt er á
A-svæði en um þúsund miðar laus-
ir á B-svæðið. Grímur bendir fólki
á að mæta tímanlega og segir
fáránlegt að ætla sér á tónleika og
að íslenskum sið að leggja af stað
klukkan níu en þá byrjar Clapton
að þenja gítarinn. „Ferlegt að fara
þá af stað til þess eins að lenda í
umferðarteppu. Fólk á auðvitað að
gefa sér tíma í þetta, helst að
sleppa bílnum og nota almenn-
ingssamgöngur. Njóta tónleik-
anna. Og þá er ekki ónýtt að hlusta
á Ellen sem byrjar klukkan átta,“
segir Grímur.
Það stefnir í mikla Clapton-tíð.
Fjölvi ætlar að gefa út ævisögu
gítarhetjunnar og er hún væntan-
leg innan tíðar. Að sögn Gríms
mun Clapton dvelja hér á
landi í nokkra daga en hefur
svo sem ekkert hugsað sér
að vera með skipulagða
dagskrá. Clapton sér um
sig sjálfur. „Það er alveg
búið að Ísland sé eitthvað
alveg einstakt og þurfi að
leiða gesti um svæðið. Ef
menn koma til að halda tónleika
í New York er enginn til þess
að keyra þig til að sjá Niag-
ara-fossana,“ segir Grím-
ur. Og nennir varla að
svara spurningu um hinn
svokallaða „Rider“ sem
menn vilja rýna sig rauð-
eyga í þegar poppstjörnur
eru annars vegar en
þar er oft að finna
sérviskulegar
kröfur þeirra
sem fram koma
um aðbúnað og
veitingar bak-
sviðs.
„Það er ekkert sérstakt. Náttúr-
lega ekki drykkjan á honum sem
hefur ekki bragðað dropa í ára-
tugi. Og engar kókaínlínur. Ég hef
oft verið spurður um eiturlyf í
þessu enda rosalegur bransi.
Marky Smith setti til dæmis amf-
etamín og kókaín á góminn, fölsku
tennurnar, áður en hann tróð þeim
upp í sig. Ég sá það og þetta var
ógeðslegt. En, nei, við ætlum bara
að slá upp hálfgerðu veitingahúsi
þarna uppi í Egilshöll þar sem
verður kokkur sem eldar ofan í
alla. Kósí stemning,“ segir Grím-
ur.
jakob@frettabladid.is
GRÍMUR ATLASON: ELLEN HITAR UPP FYRIR ERIC CLAPTON
Clapton heimtar konu
ELLEN KRISTJÁNSDÓTT-
IR Clapton fékk send
nokkur tóndæmi
með íslenskum
söngkonum og af
þeim féll honum
Ellen best í geð.
ERIC CLAPTON Kvennaljóminn gamli var algjörlega á því að rétt væri að upphitunar-
númerið væri kvenkyns.
„Ég hef aldrei upplifað annað eins. Þetta er
stærsta og flottasta gallerí sem ég hef séð,“
segir listmálarinn Óli G. Jóhannsson.
Hann er staddur í Mónakó en þar var hið
alþjóðlega Opera Gallerí að opna enn eitt
galleríið. Þar eru verk Óla til sýnis ásamt
verkum eftir Monet, Manet, Picasso, Miro,
Chagall, Warhol, Lichtenstein, Erró og fleiri
snillinga myndlistarsögunnar. „Ég er hér
innan um verk sem ég lét mig ekki svo mikið
sem dreyma um að sjá nokkru sinni. Þetta er
ævintýri. Hér vaða menn í seðlum og snobbið
mikið. Þegar hefur eitt verk selst og búið að
taka þrjú frá,“ segir Óli. Óhætt er að fullyrða
að fáir myndlistarmenn íslenskir njóta eins
mikillar velgengni og hann á erlendri grundu
og er þá aðeins saman að jafna mönnum á
borð við Ólaf Elíasson og Erró. Verkið sem Óli
seldi var á 2,6 milljónir, 1,45 x 1,45 metrar
sem er stöðluð stærð. Myndefnið er mótív
sem Óli þróaði á Jamaíka þegar hann var að
vinna þar. Viðtökurnar eru framar vonum að
sögn listmálarans. Hið glæsilega nýja gallerí,
sem er 500 fermetra lókal og á þremur
hæðum, er við hliðina á miklu spilavíti. Óli
segir enga hættu á því að hann muni tapa fénu
í vítinu. „Nei, ég er þannig maður að ég hef
aldrei átt happdrættismiða nema bara í lífinu
sjálfu,“ segir Óli.
Hópur Íslendinga eru á leiðinni út til að taka
þátt í þessu ævintýri með Óla en á staðnum
eru þeir Guðmundur á Núpi og Ingvar
Karlsson hjá K. Karlsson en þeir hafa staðið
þétt við bakið á Óla meðan hann hefur verið
að hasla sér völl og sjá líklega ekki eftir þeirri
fjárfestingu sinni.
- jbg
Listmálarinn Óli G. slær í gegn í Mónakó
ÓLI G. Hefur þegar selt eitt verk á 2,6 milljónir í nýju
galleríi í Mónakó.
EKKI ALLIR SÁTTIR VIÐ
KAUÐA Einhverjum er í nöp
við forsetann.
ÓAFUR RAGNAR Prýðir boli líkt og Bush.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ólafur Ragnar ekki allra
Vefmiðlarnir fóru á stúf-
ana í gær þegar spurðist
að stórleikarinn ástralski
Mel Gibson væri
staddur hér á landi.
Heiðar Austmann,
útvarpsmaður á FM
957, sagði að sést
hefði til kyn-
táknsins í henni
Reykjavík. Vísir tók við boltanum og
komst meðal annars að því að Mel
hefði sést við Hallgrímskirkju en því
miður gat Jón Dalbú Hróbjartsson
sóknarprestur ekki staðfest það
því hann var í fríi í Borgarfirði. Það
hljóp svo á snærið hjá Vísismönn-
um þegar spurðist að Gibson hefði
fengið sér þrefaldan latté á Te og
kaffi og höfðu það eftir Sunnu Ing-
ólfsdóttur sem þar starfar að hann
hefði verið gríðarlega vinsamlegur
við gesti og gangandi.
Og meira af Mel Gibson. Bloggarinn
og pólitíkusinn Magnús
Þór Hafsteinsson var
fljótur að bregðast við
á sinni síðu og virðist
ekkert hafa á móti því að
hann sé hér á landi,
jafnvel þótt hann
fengi landvistarleyfi,
því Mel er einn
af uppáhaldsleik-
urum Magnúsar. Magnús lýsir yfir
þeirri einlægu ósk sinni að leikarinn
fái frið fyrir fjölmiðlum því ekkert sé
eins hallærislegt og „papparassar“
sem abbist upp á almennilegt fólk.
Morgunblaðið greindi frá því í gær
að Einar Bárðarson, sem kallaður
hefur verið umboðsmaður Íslands
hvorki meira né minna, hefði látið
af störfum sem umboðsmaður stór-
stjörnunnar Garðars Thors Cortes.
Mega þetta teljast nokkur tíðindi
því Einar hefur lagt mikla vinnu í að
koma tenórnum á framfæri. Mogg-
inn gengur reyndar einu hænufeti
of langt þegar hann segir að Einar
sé að draga sig í hlé. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er það
ekki svo, enda Einar í
fullu fjöri og ýmissa
frétta er að vænta af
athafnamanninum
knáa sem Pétur
Kristjánsson
heitinn kallaði
alltaf Tinna
– vegna topps-
ins. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Glænýr villtur lax
Úrval fi skrétta á grillið
Óbreytt fi skverð frá áramótum
VEISTU SVARIÐ
svör við spurningum á síðu 8
1 Í Berlín í Þýskalandi.
2 Hljómsveitin heitir Kári?.
3 Eiður skoraði tvö mörk.