Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Í dag er laugardagurinn 26. júlí,
209. dagur ársins.
4.16 13.34 22.49
3.40 13.19 22.54
Nú í vikunni urðu nokkrir ferða-menn á hvalaskoðunarbát við
Húsavík vitni að þeim fáheyrða við-
burði, en þó ekki alveg einstökum,
að nokkrir drápshvalir, sem við köll-
um upp á íslenskuna háhyrninga,
veittust að hrefnu einni með skæt-
ingi, drápu hana á korteri og átu
eins og þeir kynnu enga mannasiði.
VIÐBURÐURINN rataði að sjálf-
sögðu á baksíður enda um mikið
sjónarspil að ræða og ferðamönnum
mun víst hafa orðið nokkuð brugðið.
Heyrst hefur reyndar úr hvalaskoð-
unarbransanum að með þessu sé
búið að hækka nokkuð væntingar
fólks um það hvað kunni að sjást í
slíkum ferðum. Nú vonar fólk að
sjálfsögðu innst inni að það fái að
sjá háhyrninga drepa hrefnu.
EINNIG vekur atburður sem þessi
þó nokkrar spurningar um dýra-
vernd. Nú er viðbúið að hvalavernd-
unarsinnum verði um og ó. Það að
menn hætti að drepa dýr tryggir
nefnilega ekki að dýr séu þar með
ekki drepin. Vitnisburði um það má
sjá víða í dýraríkinu. Fálkar drepa
mýs, blettatígrar alla skapaða hluti,
flóðhestar menn, birnir menn, hýen-
ur gnýi, kettir fugla og nú sem sagt,
eins og komið hefur fram, háhyrn-
ingar hrefnur. Þetta allt saman
hefur kannski gleymst að taka með í
reikninginn í dýraverndunarhreyf-
ingunni. Hvað segir Paul Watson?
Eru háhyrningar komnir á svartan
lista? Er yfirlýsingar að vænta?
KEMUR í ljós. Frásögnin af þessu
vakti í öllu falli nokkra athygli. Á
baksíðu blaðs var atburðinum lýst
þannig að háhyrningarnir hefðu
verið mjög „skipulagðir“ og að
greinilega hefði verið um „alvana
drápshvali“ að ræða. Hér voru
semsagt engir aukvisar á ferð.
Sumir vilja jafnvel meina að hval-
irnir hafi verið með tattú. Orðræðan
um skipulagða glæpastarfsemi í
mannheimum gegnsýrði þannig frá-
sögnina af hrefnudrápinu. Hér var
klíka á ferð. Komin til Íslands til
þess að skapa usla, drepa og éta.
Maður sér fyrir sér forystuháhyrn-
ing, kannski launson Keikó, gefa
bendingar með uggum og sporði,
þegar klíkan nálgaðist hina óvið-
búnu hrefnu: „Þið þrír farið til
hægri, þið fjórir til vinstri og þið
fimm farið beint áfram,“ hvíslaði
Keikóson. „Svo gerum við árás
þegar ég segi búúúúú.“
ÞETTA er umhugsunarefni. Ef
skipulögð glæpastarfsemi er farin
að gera vart við sig í heimi dýranna
er álitamál hvort ekki eigi að stofna
greiningardeild sem aflar gagna og
grípur til fyrirbyggjandi ráðstaf-
ana. Ég er nokkuð viss um að ein-
hvers staðar í kerfinu iðar embætt-
ismaður í skinninu við tilhugsunina
um að fá að setja forsprakkann á
skrá.
Aðgerð Hrefna
BAKÞANKAR
Guðmundar
Steingrímssonar ÚTSALA
Opið virka daga 10-20 | laugardaga 10-18 | Sunnudaga 12-18 | www.IKEA.is/utsala
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
595,-
PYRA wokpanna Ø35 cm 795,-
RONDO borðbúnaður 18 stk. svart
Ø27/Ø19/Ø19 cm 2.990,- 3.990,-
195,-
CHARMÖR skálar
2 stk. 8x8x2 cm. Hvítt 295,-
RÖRA mortel m/staut
Ø15 H8 cm. Svart 695,- 995,-
HAVTORN AVENY skrautvasi
H90 cm 1.990,-/stk. 3.990,-
TIVOLI kafaukahlutir
6 stk. 895,- 1.290,-
ath. glas fylgir ekki
CHARMÖR bolli m/undirskál
hvítt 295,- 395,-
RAJTAN kryddstaukar
4 stk. 15 cl 195,- 395,-
IKEA STOCKHOLM skál
Ø42 cm 2.290,- 2.990,-
1.190,-
HULDA motta 90x150 cm.
Marglitað 1.490,-
PROMPT kökuform m/smellu
Ø22 cm 650,- 795,-
DELIKAT lítill gaffall 6 stk.,
H13 cm 250,- 395,-
LEGITIM skurðarbretti 34x24 cm.
Ýmsir litir 195,-/stk. 250,-
IKEA STOCKHOLM skápur
m/glerhurð 75x37x174 cm
29.950,- 39.950,-
VICKNING ofn/framreiðslufat
32x22 cm. Hvítt/rautt 495,- 795,-
TALL púðaver
50x50 cm 450,- 650,-
795,-
CEREMONI kertastjaki
H30 cm. Ál 1.490,-
HULDA DANS sængurverasett
150x200/50x60 cm 1.290,- 1.990,-
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ: