Fréttablaðið - 29.07.2008, Blaðsíða 40
24 29. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
„Þetta er svolítið eins og gesta-
þraut í poppbúningi,“ segir Bergur
Ebbi Benediktsson einn af meðlim-
um Sprengjuhallarinnar um lagið
Sumar í Múla sem hljómsveitin
sendir frá sér í dag. „Í laginu eru
margar tónlistarlegar tilvísanir
sem poppsérfræðingar geta tekið
eftir og það er mikið af tilvísunum
í íslenskar tuttugustualdarbók-
menntir í textanum,“ bætir hann
við, en lagið mun vera fyrsta lag
væntanlegrar breiðskífu Sprengju-
hallarinnar sem er væntanleg í lok
október.
Bergur Ebbi samdi textann við
Sumar í Múla og segir hann texta-
smíðina hafa tekið dágóðan tíma.
„Hugmyndin kviknaði fyrir um
það bil ári og ég var mjög lengi að
semja textann. Við lágum líka lengi
yfir útsetningunni,“ segir Bergur.
„Lagið er svona forsmekkur að
plötunni sem við munum klára að
taka upp í september. Hún verður
ekki mjög frábrugðin því sem við
höfum verið að gera hingað til, en
með smá viðbót svo hún verður
mjög fersk,“ segir Bergur að
lokum, en lagið Sumar í Múla er
fáanlegt á tonlist.is auk þess sem
hægt er að hlýða á það á vefsíðu
hljómsveitarinnar myspace.com/
sprengjuhollin.
Senda frá sér nýtt lag
PLATA VÆNTANLEG Í HAUST
Sprengjuhöllin mun koma fram á Inni-
púkanum um verslunarmannahelgina,
en hljómsveitin einbeitir sér að gerð
nýrrar plötu um þessar mundir.
Getting There, ný íslensk snjó-
brettamynd, verður sýnd klukkan
sex í Laugarásbíói í dag. Pétur
Kristján Guðmundsson stendur að
myndinni.
„Ég fór út í nóvember á síðasta
ári með félaga mínum sem hafði
farið aðeins áður. Ég fór út með
kameruna mína og snjóbrettið
mitt. Svo voru tveir sem Addi
(Arnþór Tryggvason) var búinn
að kynnast þarna, Finni og Norð-
maður sem heita Juhana Pirnes
og Torgeir Norkild. Við fjórir
urðum alveg geðveikt góðir vinir
og tókum upp brettamynd. Það
verður gerð önnur held ég, mér
finnst þetta svo gaman, ég get
ekki hætt þessu. Þótt þetta sé
alveg ógeðslega mikil vinna, sér-
staklega að klippa. Mikið af
kaffi.“
Pétur hefur stundað snjóbretti í
tíu ár. „Ég var alveg fastur frá
fyrsta degi. Svo þegar snjórinn
hætti að koma á Íslandi þá flutti
ég út.“ Pétur hefur ekki gert kvik-
mynd áður, en er með sveinspróf í
húsasmíði. „Ég gerði bara smá
vídeó fyrir um þremur árum. Það
var bara til gamans gert en þessi
var stærri, betri og skemmti-
legri.“
Er einhver sérstök tækni við að
taka svona upp? „Það er bara eitt-
hvað sem maður lærir. Ég hef ekki
farið í neitt nám út af þessu. Eftir
því sem þú gerir meira þá sérðu
að þú verður að hafa gott hug-
myndaflug. Skot getur verið ömur-
legt frá einu sjónarhorni en geð-
veikt frá öðru. Ég er að pæla að
fara kannski í eitthvað nám, en ég
veit það ekki.“
Frítt er inn á sýninguna. Einnig
verður sýnd ný Burton-mynd. - kbs
Ný íslensk brettamynd í bíó
GETUR EKKI HÆTT Pétri finnst ótrúlega
gaman að gera brettamyndir.
Ragnar Páll Steinsson,
bassaleikari og fyrrverandi
meðlimur hljómsveitarinn-
ar Botnleðju, lenti í því leið-
indaatviki á miðvikudaginn
var að brotist var inn til
hans og tölvu hans og hörð-
um diski var stolið. Hann er
ótryggður en segir tjónið að
mestu tilfinningalegt.
„Þetta var silfurlituð Powerbook
tölva af gerðinni Macintosh og í
henni var meðal annars að finna
myndir úr mínu lífi, af dóttur minni
og eitthvað af músík,“ segir Ragn-
ar Páll Steinsson, smiður og bassa-
leikari, um innbrot á heimili hans í
síðustu viku.
Ragnar tilkynnti þjófnaðinn til
lögreglu strax daginn eftir og segir
að verið sé að vinna í málinu. „Ég
er ótryggður þannig ég fæ þetta
ekki bætt. Leiðinlegast finnst mér
þó að hafa misst alla þessa per-
sónulegu hluti sem voru inni á tölv-
unni og því vil ég biðla til þeirra
sem tóku tölvuna að skila henni
aftur til mín. Þjófurinn þarf ekki
að hafa áhyggjur af því að ég verði
vondur við hann og ég er tilbúinn
til að borga honum eitthvað fyrir
tölvuna, þá geta allir skilið sáttir.“
Ragnar segist ekki vera sérstak-
lega þjófhræddur eftir innbrotið
en passi nú ávallt upp á það að loka
öllum gluggum og læsa vel. „Ég
var mjög frústreraður og leiður
þegar ég kom heim og sá að brotist
hafði verið inn. Þetta er svo mikið
brot á einkalífi manns og ekki
skemmtileg tilhugsun að fólk geti
ruðst svona inn til manns.“
Aðspurður hvort hann ætli eitt-
hvað út úr bænum um verslunar-
mannahelgina segist Ragnar ætla
að halda sig heima við, „Ég ætla
ekki úr bænum, ég held ég ætli
aldrei aftur að fara neitt. Ég er
hættur að vinna og kominn á
atvinnuleysisbætur og er búinn að
bæta á mig nokkrum kílóum. Mér
finnst lífið eitthvað öðruvísi eftir
þetta atvik og ég sé ekki alveg til-
ganginn með því. Ég held ég verði
aldrei aftur samur ... nema ég fái
tölvuna mína aftur.“
Þegar talið berst að tónlist segist
Ragnar alltaf vera að stofna hljóm-
sveitir þó að lítið verði úr þeim,
„Það er ekki það að áhuginn sé ekki
til staðar, eða hæfileikarnir –
maður tekur ekki hæfileikana frá
snillingum – það verður bara aldrei
neitt úr þeim böndum sem ég byrja
með,“ segir Ragnar og ítrekar að
lokum þá ósk sína að fá tölvuna
aftur.
sara@frettabladid.is
Brotist inn hjá Ragga
BROTIST INN TIL RAGGA Í BOTNLEÐJU Ragnar Páll
Steinsson, smiður og bassaleikari, varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að brotist var inn á heimili
hans í síðustu viku. Tölvu og hörðum diski var
stolið. Raggi segir tjónið tilfinningalegt enda voru
persónulegar myndir hans á tölvunni, og hann er
tilbúinn að borga fyrir að fá vélina aftur.
M
YN
D
/ÞÖ
K
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
deception
EF ÞÚ SÉRÐ EINA MYND Á ÁRINU ÞÁ ER ÞETTA MYNDIN!
BESTA MYND ALDARINNAR!
ÖRFÁ SÆTIUPPSELT
DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 12
DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 VIP
MAMMA MÍA kl. 2 - 3:40 - 6 - 8:20 L
DECEPTION kl. 8 - 11:10 14
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 2 - 3:40 - 5:50 L
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
WANTED kl. 11:10 16
NARNIA 2 kl. 5 7
DARK KNIGHT kl. 5 - 8 - (11:10 Power) 12
DECEPTION kl. 10:20 14
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6D L
WANTED kl. 8 16
INDIANA JONES 4 kl. 5:30 12
DARK KNIGHT kl. 5 - 8 - 11 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 L
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 8 L
DECEPTION kl. 10 12
DARK KNIGHT kl. 8 - 11 12
MAMMA MÍA kl. 8 L
BIG STAN kl. 10:20 12
DARK KNIGHT kl. 8 - 11 12
HELLBOY 2 kl. 10:20 12
MAMMA MÍA kl. 8 L
“Þetta er besta Batman-myndin, besta
myndasögumyndin og jafnframt ein
best mynd ársins...”
L.I.B.Topp5.is
Það er heill heimur inni
í honum sem heldur
honum gangandi!
CHRISTIAN BALE, GARY OLDMAN, AARON ECKHART,
MICHAEL CAINE, MORGAN FREEMAN
OG HEATH LEDGER STÍGA EKKI FEILSPOR
Í ÞESSARI MÖGNUÐU MYND!
THE DARK KNIGHT ER KOMINN Í EFSTA SÆTI Á
VIRTASTA KVIKMYNDAVEF HEIMS,IMDB.COM,
YFIR BESTU KVIKMYNDIR ALLRA TÍMA!
EIN BESTA MYND ALDARINNAR!
EF ÞÚ SÉRÐ EINA MYND Á ÁRINU ÞÁ ER ÞETTA MYNDIN!
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
12
L
L
7
12
L
THE STRANGERS kl. 8 - 10
HELLBOY 2 kl. 6 - 10.10
MAMMA MIA kl. 6 - 8
16
12
L
THE STRANGERS kl. 6 - 8 - 10
HELLBOY 2 kl. 5.30 - 8 - 10.30
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MAMMA MIA LÚXUS kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MEET DAVE kl. 3.45
HANCOCK kl. 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ÍSL. TAL kl. 3.45D
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
12
L
14
THE DARK KNIGHT kl. 6 - 9
HELLBOY 2 kl. 5.30 - 8 - 10.30
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
16
L
12
7
12
12
THE STRANGERS kl. 6 - 8 - 10
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
HANCOCK kl. 10.20
MEET DAVE kl. 5.50 - 8
BIG STAN kl. 5.50 - 8
THE INCREDIBLE HULK kl. 10.10
SÍMI 530 1919
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS
Á SPENNUTRYLLI Í USA!
Einn magnaðasti spennutryllir
fyrr og síðar!
Byggður á sönnum atburðum!
"MYNDASÖGUBÍÓMYNDIR
EÐA BARA FRAMHALDS-
MYNDIR YFIR HÖFUÐ
GERAST VARLA BETRI
EN ÞETTA. FULLT HÚS STIGA!
FRÁBÆR MYND.
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
"VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!"
"THE DARK KNIGHT
ER STÓRKOSTLEG."
"THE DARK KNIGHT ER
SVO GÓÐ AÐ ERFITT ER AÐ
ÍMYNDA SÉR AÐ SÚ ÞRIÐJA
GETI ORÐIÐ BETRI."
T.S.K - 24 STUNDIR
"SVONA Á AÐ GERA
HROLLVEKJUR!"
- STEPHEN KING
- bara lúxus
Sími: 553 2075
THE DARK KNIGHT kl. 4, 7 og 10-POWER 12
HELLBOY 2 kl. 10.10 12
MAMMA MIA kl. 3.30, 5.50, 8 og 10.10 L
KUNG FU PANDA - ÍSL. TAL kl. 4 L
- T.V, Kvikmyndir.is
- Ó.H.T, Rás 2
- L.I.B, Topp5.is/FBL
V.J.V. - Topp5.is/FBL
Tommi - kvikmyndir.is
Ásgeir J - DV
Tommi - kvikmyndir.is