Fréttablaðið - 29.07.2008, Blaðsíða 36
20 29. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Þú munt eflaust neita
því, en innst inni, í
sálardjúpum okkar allra,
frá djöflarokkurum til
pákuaðdáenda ...
... eru einhver gen
sem fíla lag með
Leo Sayer! „Love
Songs“, 500 kall!
Get
real!
Hvar
er veiki
punktur-
inn þinn?
When I
needed
you
I love
you more
than I can
saaay
Have
you
ever
been in
love
Þetta verður
bara okkar
á milli
You make me
feel like dancin‘
Til
hamingju
með
afmælið
Afmælið?
Þúsund
þakkir
Pabbi! Þú sagðir mér ekki
að mamma ætti afmæli!!
Jú.
Ég setti gula minnismiða yfir
allt herbergið þitt og sendi
þér meira að segja tölvu-
pósta með gjafatillögum.
Heldurðu að það dugi bara
að ýja svona að þessu?
Sögur af
dýrahótelinu
Ívar íkorni
og bróðir
hans
Af hverju
tekur mig
enginn? Kannski eru þau að leita að
einhverju öðru.
Takið mig.
Fyrst við eigum langa
bílferð fyrir höndum,
vil ég bara
hafa eitt á
hreinu ...
... ég vil ekki heyra nöldur,
kvartanir og engin rifrildi.
Er það skilið? Ég hata bílferðir.
Það er erfitt að gleyma henni,
hvernig hún hreyfði sig, fágun
hennar, hvernig hún smaug upp
úr vatninu ... Ohh, ég elskaði
þessa skútu!
Það er vel þekkt stað-
reynd að konur hafa
yfirleitt meira gaman
af því að versla en
karlmenn. Eftir aldir
af verkaskiptingu, þar
sem maðurinn veiðir
og konan safnar, má
færa sannfærandi
rök fyrir því af hverju
annar hver maður (eða fleiri)
dregur lappirnar um Kringlur og
Laugavegi heimsins. Þeir eru ekki
að elta neitt, veiðin er tilgangs-
laus. Það gengur yfirleitt betur
þegar markmiðið er skýrt, þegar
leitað er að einhverju ákveðnu.
Konur eru hins vegar vanari því
að skanna svæðið í leit að ein-
hverju, hverju sem er, sem gæti
verið nytsamlegt. Þær kippa jafn-
vel ýmsu með, ef ske kynni að
fyrir það fyndust not.
Mér finnst gaman að versla. Í
raun finnst mér fátt skemmti-
legra. Ég og kærastinn minn
fórum í Kringluna um daginn í leit
að jakkafötum. Honum finnst ekk-
ert sérstaklega leiðinlegt að versla
en mér fór fljótlega að leiðast.
Hver búðin var annarri lík. Gráir
tónar liðu saman í eitt og öll jakka-
fötin, hvort sem þau kostuðu níu,
tuttugu eða sextíu þúsund voru
svo gott sem eins. Grásvört, grá-
blá, grábrún, steingrá, ljósgrá, grá
með teinum … Við rákumst á ein í
lit. Þau voru köflótt, rauð, blá og
gul. Jókerinn hefði ekki einu sinni
klæðst þeim. Það var ekkert í boði
fyrir greyið manninn. Við litum
bæði löngunaraugum á lita-, sniða-
og efnaúrvalið í kvenfatabúðun-
um.
Það er því engin furða að búðir
eins og Nakti apinn hafa slegið í
gegn. Karlkynið hefur verið svelt
af fjölbreyttri hönnun áratugum
saman (nei, níundi áratugurinn
var ekki fjölbreyttur, hann var
ógeð). Ef ég væri strákur væri ég
gengin af göflunum. Ég myndi
kalla á uppreisn eða valdarán. Ég
heimta úrval! Ég vil breytingar
milli árstíða! Ég krefst fleiri
sniða! Ég vil ekki klæðast því
sama og allir aðrir í bænum!
Það er svo spurning hvað ég
segði, ef kallinn væri flottari í tau-
inu en ég.
STUÐ MILLI STRÍÐA Hundrað tilbrigði af gráu
KOLBRÚN BJÖRT SIGFÚSDÓTTIR MYNDI KALLA Á UPPREISN EÐA VALDARÁN EF HÚN VÆRI STRÁKUR
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000 lög og fyllt
spilarann þinn af topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er
ólæst (DRM laust) og kostar frá 79 krónum lagið.
Þannig getur þú fært tónlistina hindrunarlaust á milli
tölvunnar, spilarans og farsímans.
Vertu tilbúinn í sumarfríið!