Fréttablaðið - 29.07.2008, Blaðsíða 10
10 29. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Ösp Viggósdóttir gerir athugasemdir við
neytendadálkinn í síðustu viku þar sem borið
var saman verð á hlutum keyptum á Amazon.
com og í verslunum á Íslandi: Framsetningin
var langt frá raunveruleika okkar sem verslum
á netinu, skrifar Ösp. Í fyrsta lagi það að kaupa
eitt eintak í einu, það gera Íslendingar aldrei,
heldur kaupum við 3-10 eintök, hvort sem við
kaupum bækur, DVD eða eitthvað annað. Þá
verður sendingarkostnaðurinn og meðferðar-
gjald tollsins hlutfallslega lítill hluti af
heildarverði og þá næst fram raunveru-
legur sparnaður. Annað sem ég hnaut
um var að þetta voru allt dæmi frá
amazon.COM, sem er í Bandaríkjun-
um. Ég versla yfirleitt á breska amazon,
amazon.co.uk, kaupi svo til eingöngu bækur en
eitthvað líka af DVD. Sendingarkostnaður er
mun lægri þar sem sendingin fer frá einu
Evrópulandi til annars en ekki milli heimsálfa.
Auk þess berast pakkarnir yfirleitt innan viku.
Hvernig væri að gefa neytendum raunhæft
dæmi, t.d. 3-6 bækur frá Amazon (á .com OG
.co.uk)?
Alveg sjálfsagt. Hér eru dæmi af sex bókum
og verðin í Eymundsson, Amazon.co.uk og
Amazon.com. Sparnaður er 4.681 krónur væru
bækurnar pantaðar frá Amazon.co.uk og 3.740
krónur væru þær pantaðar frá Amazon.com.
Fullyrðingar Aspar eru því réttar. Það felst
raunverulegur sparnaður í magninnkaupum.
Enn af innkaupum í gegnum netið:
Raunverulegur sparnaður með magninnkaupum
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI neytendur@frettabladid.is
Eymundsson samtals: 17.270 kr. Paulo Coelho
- Brida (1.995 kr.), Eric Clapton the Autobiography
(2.495 kr.), Bob Dylan 1962-2001 lyrics (3.595 kr.),
Paul Arden - God explained in a taxi ride (1.795 kr.),
Amy Sohn - Sex and the City (2.395 kr.), Simone &
Ines Ortega - 1080 recipes (4.995 kr.).
Amazon.co.uk samtals: 12.589 kr – 4.681 kr minna
en hjá Eymundsson. Bækur samtals 59,25 pund.
Póstkostnaður: 9,93 pund. Samtals 69,18 pund (x*164
= 11.345 kr.) Gjöld í tollinum: 1.244 kr (794 kr. (7
prósenta vsk.) + 450 kr (tollmeðferðargjald).
Amazon.com samtals: 13.530 kr - 3.740 kr. minna
en hjá Eymundsson. Bækur samtals 120.35$. Póst-
kostnaður: 27.93$. Samtals 148.28 dollarar (x 82.44
= 12.224 kr). Gjöld í tollinum: 1.306 kr. (856 kr (7
prósenta vsk.) + 450 kr (tollmeðferðargjald).
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
31
16
0
7.
20
08
www.toyota.is
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota RAV4
2000 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 06.05 Ekinn: 52.000 km
Verð: 2.750.000 kr. Skr.nr. LL-521
Tilboð: 2.390.000 kr.
Lexus RX350 EXE
Sóllúga, loftpúðafjöðrun
3500 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 08.07 Ekinn: 16.000 km
Verð: 7.560.000 kr. Skr.nr. SVX-48
Toyota Land Cruiser 100
Sóllúga, navigation, dráttarbeisli
4200 Dísel sjálfsk.
Á götuna: 09.04 Ekinn: 109.000 km
Verð: 6.950.000 kr. Skr.nr. AT-225
Tilboð: 5.990.000 kr.
BNB-sölugreining
Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri
og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort
í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar
bjóðum við þér hann ekki.
Núna bjóðum við 6 betri notaða bíla
með 12 mánaða viðbótarábyrgð.
Range Rover HSE
Sóllúga, leður, navigation o.fl.
4400 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 07.04 Ekinn: 59.000 km
Verð: 5.990.000 kr. Skr.nr. LS-233
Lexus RX400H Luxury
Navigation, Mark Levinson
3300 Bensín/rafmagn sjálfsk.
Á götuna: 01.06 Ekinn: 40.000 km
Verð: 6.560.000 kr. Skr.nr. DJ-698
SUMIR NOTAÐIR BÍLAR ERU
EINFALDLEGA BETRI EN AÐRIR
Toyota Land Cruiser 200
Navigation, sóllúga
4500 Dísel sjálfsk.
Á götuna: 01.08 Ekinn: 12.000 km
Verð: 12.600.000 kr. Skr.nr. DPP-47
TYRKLAND, AP Óvíst er hverjir bera ábyrgð á
tveimur sprengingum í Istanbúl í Tyrklandi í
fyrrakvöld. Sautján létust og hundrað og fimmtíu
slösuðust í sprengingunum.
Tyrknesk yfirvöld hafa bendlað uppreisnarmenn
Kúrda við árásina. PKK, uppreisnarhópur Kúrda,
neitar þó alfarið aðild. Ýjuðu talsmenn hans að því
að veraldlegir þjóðernissinnar ættu sök á árásinni.
Mikill rígur hefur verið undanfarna mánuði milli
hófsamra íslamskra afla í ríkisstjórn Tyrklands og
veraldlegra afla í tyrkneska hernum og dómskerf-
inu. Höfðað hefur verið mál til að fá hinum
ríkjandi Réttlætis- og þróunarflokki slitið fyrir að
grafa undan veraldlegu stjórnkerfi ríkisins sem
bundið er í tyrknesku stjórnarskrána. Er dóms að
vænta á næstu dögum, og telja sumir árásina
tengjast því.
Íslamistar hafa einnig verið bendlaðir við
árásina. Árið 2003 létust nærri sextíu í árásum á
skrifstofu breska ræðismannsins, breskan banka
og sýnagógur í Istanbúl. Liðsmenn hryðjuverka-
samtakanna al-Kaída báru ábyrgð á þeim árásum.
- gh
Óvíst er hverjir bera ábyrgð á blóðugri sprengjuárás í Istanbúl í fyrradag:
Kúrdum kennt um sprengjur
FÓRNARLAMB ÁRÁSARINNAR Sprengjurnar sprungu á fjöl-
mennri götu í íbúahverfi. NORDICPHOTOS/AFP
KÁTUR George W. Bush Bandaríkja-
forseti heldur á hinum fimm mánaða
gamla Stanley Debshaw. Bush var á
fjáröflunarsamkomu repúblikana í
Illinois-ríki. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUFRÉTTIR
Árekstur við Kjarnaskóg
Einn var fluttur á slysadeild eftir
árekstur tveggja bifreiða á Drottn-
ingarbraut á Akureyri í gær. Áverkar
mannsins voru ekki taldir alvarlegir
að sögn lögreglu. Báðir bílar eru voru
dregnir af vettvangi.
Ung kona ók á brúarstólpa
Kona á þrítugsaldri ók á brúarstólpa
á Suðurlandsvegi við Krókháls í
fyrrinótt. Konan var ein í bílnum og
er grunuð um að hafa verið undir
áhrifum lyfja eða ólöglegra fíkniefna
að sögn lögreglu. Hún slapp ómeidd
frá árekstrinum.
Tugum milljarða sóað í Írak
Bandaríkjamenn hafa sóað tugum
milljarða króna í misheppnuð
verkefni í Írak. Þetta kemur fram í
rannsókn á verktakasamningum í Írak
sem Bandaríkjaþing fyrirskipaði og
enn er unnið að.
ÍRAK
KAMBÓDÍA, AP Þjóðarflokkur
fyrrverandi rauða khmerans
Huns Sen,
forsætisráð-
herra Kambód-
íu, vann stórsig-
ur í kosningum
um helgina.
Fyrstu tölur
benda til þess
að flokkurinn
hafi náð 91 af
123 þingsætum.
Vinsældir Huns Sen hafa aukist
mjög undanfarið í tengslum við
deilu við Taílendinga um eignar-
ráð yfir fornu hindúahofi á
landamærum ríkjanna.
Hun Sen hefur verið við völd í
Kambódíu í 23 ár. Hann varð
yngsti forsætisráðherra heims
árið 1985, aðeins 33 ára gamall.
- gh
Kosningar í Kambódíu:
Stórsigur fyrr-
verandi khmera
HUN SEN