Fréttablaðið - 31.07.2008, Side 18

Fréttablaðið - 31.07.2008, Side 18
18 31. júlí 2008 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna kr /k g ár 62 5 30 4 49 7 49 9 1999 2002 2005 2008 > Kílóverð á tekexi frá árinu 1999: HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS Droplaug Erlingsdóttir vaknaði upp við vondan draum. Hún skrifar öðrum til viðvörunar: Ég fór í bankann um daginn til að fá greiðsluþjónustu. Þá kom í ljós að undanfarin sjö ár hefur verið tekin upphæð á milli 800-2000 krónur á mánuði af vísareikningum mínum til að greiða fyrir netfang- ið „@mmedia.is“. Ég bað um netfangið árið 2001 og samþykkti að afborgun yrði tekin af vísakortinu. Ég hef hins vegar ekki notað netfangið í um sex ár en var, sökum almennrar heimsku, búin að steingleyma þessari sjálfvirku skuldfærslu. Í byrjun var upphæðin um 2000 kr. á mánuði en var komin í „einung- is“ 800 kr. núna um daginn þegar ég uppgötvaði herlegheitin. Þar sem ég er greinilega „zombie“ með vísakortið og hafði ekki skoðað gaumgæfilega hverja færslu gegnum tíðina – sem maður ætti svo sannarlega að gera – þá er ég núna nokkrum tugþúsundum króna fátækari og Ogvodafone þeim sömu krónum ríkari. Það getur verið dýrt að vera „zombie“ eins og Droplaug komst að raun um. Endilega rennið nú yfir hinn yndislega kreditkortareikning og gáið hvort einhverjar gamlar og óþarfar færslur séu enn að lufsast þar! Öðrum til viðvörunar: Lesið yfir kortareikninginn! „Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@frettabladid.is KREDITKORT GETUR KOMIÐ SÉR VEL En passið ykkur bara á sjálfvirku skuldfærslunum! „Mamma mín sagði mér alltaf að það væri gott að loka ísskápn- um, svo að mörgæs- irnar kæmu ekki og borðuðu allan matinn,“ segir Alma Joensen, á alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands. „Einu sinni sat ég við opinn ísskáp- inn klukkutímum saman og beið eftir mörgæsum. Það komu aldrei neinar mörgæsir en maturinn í ísskápnum skemmdist hins vegar. Ég lærði seinna að mörgæsir eru bara á Suður- pólnum, en dró þá lexíu af atvikinu að ef ísskápnum er ekki lokað ræki- lega þá skemmist maturinn.“ GÓÐ HÚSRÁÐ AÐ LOKA ÍSSKÁPNUM ■ Alma Joensen segist ekki kunna mikið af húsráðum en lumar þó á einu sem einfalt er að fylgja eftir. Það getur munað meira en tvö þúsund krónum á gashylkjum fyrir gasgrill. Verð á áfyllingum er reiknað á kút en ekki í kíló- um. Það getur því borgað sig að skoða verð á áfyllingu og hylkjum gaumgæfilega. Gaskútar koma í ýmsum stærðum og gerðum. Algengastir eru níu kílóa kútar úr stáli. Þegar gaskútur er keyptur í fyrsta sinn þarf að greiða aukalega fyrir hylkið sem hann kemur í. Eftir þetta eru aðeins keyptar áfyllingar. Verðið á níu kílóa kútum hjá N1 og Skeljungi er 2.000 krónur. Hjá Olís er það ríflega fjórðungi dýrara en þar kosta þeir 2.540 krónur. Gasið sjálft er á svipuðu verði hjá stöðvunum þremur þegar um er að ræða níu kílóa stálkút. N1 eru með ódýrustu áfyllinguna á 3.570 krónur. Hjá Skeljungi kostar hún 3.985 og hjá Olís er hún ekki nema fjórum krónum dýrari. Plasthylki njóta sömu- leiðis nokkurrar hylli. Þau eru léttari og meðfærilegri en stálhylkin en á móti kemur að þau eru aðeins dýrari. Tíu kílóa plasthylki eru á mjög mismunandi verði hjá olíufélögunum. Hjá N1 kostar hylkið 6.200 og hjá Skeljungi er það á 7.200 krónur. Olís bjóða mun betur en þar eru hylkin á 4.900 krónur. Verð á áfyllingu á plastkút og stálkút er ekki sambærilegt því sá fyrrnefndi er stærri. Hjá N1 kostar áfylling á 10 kílóa plastkút 3.965 krónur, hjá Skeljungi kostar hún 4.395 krónur og hjá Olís er hún á 5.141 krónu. Eins og sést er það samhengið á milli kúta og áfyllingar sem skiptir mestu máli. Á níu kílóa kútunum er það greinilega N1 sem hefur vinninginn með samanlögðu verði upp á 5.570 krónur. Kútarnir kosta það sama og hjá Skeljungi en áfyllingin er um það bil 400 krónum ódýrari. Heildarverð tíu kílóa plastkúta er lægst hjá Olís. En þrátt fyrir að vera með lægsta heildarverðið borgar sig ekki að fylla á hjá Olís því þar er áfyllingarverðið hæst. Lækkunin skýrist af verðinu á hylkinu sem er ekki nema 4.900 krónur. Best væri að kaupa kútinn hjá Olís en fylla á hann hjá N1. helgath@frettabladid.is Verðmunur á kútum og áfyllingu umtalsverður VERÐMUNUR Það borgar sig að skoða verð á áfyllingu gaumgæfilega því verðumunur er nokkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR VERÐSAMANBURÐUR Áfylling + Kútur = Samtals N1: Stálkútur 9 kg 3.570 + 2.000 = 5.570 Plastkútur 10 kg 3.965 + 6.200 = 10.165 Olís: Stálkútur 9 kg 3.989 + 2.540 = 6.529 Plastkútur 10 kg 5.141 + 4.900 = 10.041 Skeljungur: Stálkútur 9 kg 3.985 + 2.000 = 5.958 Plastkútur 10 kg 4.395 + 7.200 = 11.595 Í óformlegri könnun Fréttablaðsins á bjórverði í Reykjavík kom í ljós að mest kostar að drekka hann við Austurvöll. Á Café Paris kostar hálfur lítri 700 krónur og sömuleiðis á Thorvaldsen bar. Á Organ og Sólon kostar hann einnig 700 krónur en á Prikinu, Næsta bar og Ölstofu Kormáks og Skjaldar er hann lítið eitt ódýrari, á 650 krónur. Lægsta verðið sem fannst var þó á Grand Rokk og Santa Maria, þar kostar hann enn þá 600 krónur. Þegar komið var á Dillon og Boston hafði verðið aftur hækkað í 700 krónur. ■ Verðlag Bjórinn dýrastur við Austurvöll Verð í auglýsingum á alltaf að vera rétt. Þetta kemur fram á heimasíðu Neyt- endastofu. Verðið er þó ekki bindandi í þeim tilfellum þar sem um prentvillu er að ræða en þá verður auglýsandi að hafa upplýst um villuna áður en viðskiptin eiga sér stað. Ekki er „hægt að krefjast þess að kaupa vöru eða þjónustu á verði sem fram kemur í auglýsingu. Að gefa upp rangt verð af ásetningi brýtur þó í bága við lög og getur neytandinn krafist bóta.“ Hafa skal í huga að þegar verð er auglýst verður það alltaf að vera endanlegt. Það þýðir að virðisaukaskattur verður að vera innifalinn. ■ Auglýsingar Verðið ekki alltaf bindandi ...alla daga t... r. r Allt sem þú þarft... F é bl ð ð l d bl ð l d FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 200 8 FYLGIRIT FRÉT TABLAÐSINS Þú getur alltaf treyst á prinsinn Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200 Reykjavíkurvegi 68 • 220 Hafnarfirði • s: 5557220 www.hafid.is Fiskur á grillið Prinsaspjót-tígrisrækjuspjót-túnfi sksteikur, Lax í teriyaki og hunangs-stór humar, Langa í reyktu chilli-Keila í indversku karry Humarsúpa prinsins „Verstu kaupin mín eru í rauninni allt sem ég kaupi á Íslandi, því hér er vont að kaupa allt. Þó stend- ur bensínið auðvitað upp úr sem alverstu kaupin,“ segir Sturla Jónsson, vörubíl- stjóri og baráttumaður. „Þetta verðlag er eins og hjá fávitum. Gallonið, sem er tæpir fjórir lítrar, kostaði 46 sent í Arab- ísku furstadæmunum. Ég segi bara, reiknaðu nú!“ Ef upplýsingar Sturlu eru réttar þá kostar bensínlítrinn rétt um 8 krónur þar. „Ég er viss um að bensínið séu ekki bara mín verstu kaup, heldur verstu kaup allra Íslendinga. Það geta allir verið sammála um að verðlagið á bens- íni hér sé á mörkum sturlunar.“ Sturla kveður bestu kaup sín vera allt sem hann flytur inn sjálfur, enda sé verðlagið hérlendis spaugilegt, sérstaklega saman- borið við Ameríku og Arabísku furstadæmin. „Nærtækasta dæmið er líklega vörubíllinn sem ég flutti inn. Hann kostaði 8,9 milljónir þegar ég flutti hann inn, tilbúinn á götuna. Sambærilegur bíll kostaði þá hér tólf til þrettán milljónir. Svo er hann líka miklu ódýrari í viðhaldi af því að það er allt miklu ódýrara í Ameríku.“ NEYTANDINN: STURLA JÓNSSON VÖRUBÍLSTJÓRI Ekki gott að kaupa neitt hér á landi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.