Fréttablaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 31. júlí 2008 3
Ýmis atriði varðandi stærð,
áferð og form plantna geta
breytt útliti garðsins.
Þegar garður er hannaður er hægt
að gera ýmislegt til að blekkja
augað. Ef fólk vill að garðurinn
virðist minni en hann er þá er gott
að planta grófum plöntum, svo
sem alparós, í fjarlægð, en fín-
gerðum blómum, svo sem mistil-
teini, í forgrunninn. Ef fíngerðum
plöntum er plantað í fjarlægð og
grófgerðum í forgrunninn virðist
garðurinn stærri.
Annað sem gott er að hafa í huga
er form plantnanna og garðhús-
gagnanna. Mælt er með því að
hafa lítil form í litlum garði en
stærri form í stórum garði. Ef fólk
sækist eftir mikilli hreyfingu er
hægt að spila saman stórum og
litlum formum en ef sóst er eftir
rólegri stemningu er ráðlegt að
hafa formin af svipaðri stærð.
Nánari upplýsingar er að finna
á www.myidealgarden.com.
- mþþ
Garðar sem
blekkja augu
Staðsetning alparósarinnar hefur áhrif á
það hversu stór garðurinn virkar.
Með skipulagi heima fyrir getur
flokkunin verið skemmtileg fyrir
alla fjölskyldumeðlimi að taka
þátt í. Að hrúga öllu upp í bílskúr-
inn, kjallarann eða herbergi er
ekki góð aðferð. Merkt ílát, hvort
eð eru pokar eða önnur ílát, ein-
falda verkið mjög. Á dagatalinu
ættu ákveðnir dagar að vera
merktir sem „Sorpu-dagar“
(eða nefndir eftir sorpstöð-
inn þinni). Þannig hrannast
ekki upp birgðir sem leiða
bara til leiðinda.
Græna tunna Reykjavík-
urborgar er einungis venju-
leg tunna sem sótt er
sjaldnar en svartar sorp-
tunnur og því er sorp-
gjaldið lægra fyrir
húseigendur.
Bláa tunnan
(Pappírs tunnan í Reykjavík)
tekur við pappír af ýmsu tagi
(dagblöðum, tímaritum, mark-
pósti og öðrum prentpappír).
Endurvinnslutunna Gámaþjón-
ustunnar og í Grænu tunnu
Íslenska gámafélagsins er sett:
Dagblöð, tímarit, bæklingar,
pappi, mjólkurfernur, plastum-
búðir, niðursuðudósir og
minni málmhlutir. Raf-
hlöður og gler má ekki
setja í Grænu tunnuna.
Meira um alla
hluti í garðinum
á: http://www.
natturan.is/
husid/1261/
Garðurinn – Endurvinnsla
GÓÐ RÁÐ
fyrir þig og umhverfið
Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund
Allir gömlu góðu réttirnir
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Alltaf góð
ur!
Allir gömlu góðu réttirnir
og frábærar nýjungar
Komdu til okkar,
taktu með eða borðaðu
á staðnum
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
Mynda-upphengibrautir sem
hafa þann kost að ekki þarf
að negla í veggi og er mjög
auðvelt að breyta uppröðun
eða bæta við myndum.
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is