Fréttablaðið - 21.08.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Leikkonan Vala Ómarsdóttir hefur
búið í London síðustu ár, stundað
nám og komið „Maddid Theatre
Company“ á fót. Fatasmekkurhennar hefur t ki
björnsdóttur, vinkonu sína, sem
hannar undir merkinu Garmur.
„Ég keypti þær í fyrr
„Kærasti minn prófaði han hjvini sí
Kjólasjúk með hattadellu
Vala Ómarsdóttir er kjólasjúk enda hefur hún aðgang að mörgum mismunandi verslunum í London þar
sem hægt er að finna fína kjóla á nokkur pund. Hún á svo leggings sem tekið er eftir og allsérstakan hatt.
HANDAVINNA er þægileg á kvöldin heima í stofu
en það er líka gaman að nota hana til góðs eins og
hægt verður að gera á menningarnótt í Hallargarðinum
á milli 14 og 17. Fólk er hvatt til að koma með bleikt
garn og fitja upp á einhverju til styrktar krabbameinsfé-
laginu. Nánari upplýsingar á www.prjona.net.
Hatturinn sem Vala ber er þannig gerður að fari hann einhverjum betur en eigandanum verður hann að gjöra svo vel að láta hann af hendi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Vilt þú öðlast heilbrigðan og hraustan líkama ?
Kraft og aukna lífsorku ? Fallegt útlit og vellíðan ?
Meiri skilning á lífi nu og aukna meðvitund ?Vertu með á mögnuðu 8 vikna námskeiði sem
opnar fyrir þér nýjan heim, gleði og hamingju.Morgun-hádegis og síðdegistímar
Skráning hafi hj
Rope yoga
Byrjendanámskeiðhefjast mánudagana25. ágúst og 1. sept.
Skólabyrjun
í Flash
skólar og námskeið
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2008
26. ágúst — 8. september 2008 Skráning á www.verslo.is
Fjarnám farðu lengra
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
21. ágúst 2008 — 226. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Ertu búin(n) að skrá þig ?
www.tsk.is Skemmtilegur ferðafélagi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7-
08
82
VALA ÓMARSDÓTTIR
Kærastinn varð að láta
hattinn sinn af hendi
• tíska • heilsa • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
LEIKHÚS „Ég tel mig vita svör við
spurningum sem menn hafa spurt
sig um aldir: Hver erum við, hvað
erum við að gera hér og hvert
liggur leið,“ segir
Pétur Jóhann
Sigfússon
skemmtikraftur
með meiru.
Til stendur að
setja upp
einleikinn
Sannleikurinn
eftir Pétur og
Sigurjón
Kjartansson í
leikstjórn
Stefáns Jónsson-
ar á sviði Borgarleikhússins á
komandi leikári. Pétur mun standa
einn á sviðinu og flytja verkið en
þetta er frumraun hans í leikhúsi
þótt hann hafi leikið bæði í
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Nafn verksins segir sitt um
verkið, þar verður sannleikurinn
undir, þó um sé að ræða öðrum
þræði uppistand brotið upp með
frumsömdum söngatriðum Péturs.
- jbg / sjá síðu 58
Einleikur í Borgarleikhúsinu:
Pétur Jóhann á
leikhúsfjalirnar
SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
Gat valið um háskóla-
styrki út á íþróttirnar
Sérblað um skóla og námskeið
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Opið hús í ráðuneyti á
menningarnótt
Utanríkisráðuneytið
opnar dyr sínar fyrir
almenningi fyrst ráðu-
neyta.
TÍMAMÓT 34
Selma Björns stýrir
stórleikurum
Selma Björnsdóttir
leikstýrir Kardi-
mommubænum en
hún þreytti frum-
raun sína á leiksviði í
sama verki.
FÓLK 58
Pönkaður skífuþeytir
Óttarr Proppé hitar upp fyrir Seb-
astien Tellier sem plötusnúður.
FÓLK 58
VÆTUTÍÐ Í dag verða sunnan 5-10
m/s vestan til annars hægari. Rign-
ing sunnan og vestan til um eða
eftir hádegi og norðaustan til undir
kvöld. Hiti 10-16 stig, hlýjast eystra.
VEÐUR 4
12
13
14
1312
PÉTUR JÓHANN
Spila um
verðlaun
Íslenska hand-
boltalandsliðið er
komið í undanúrslit
á Ólympíu-
leikunum í
Peking.
ÍÞRÓTTIR 52
SPÁNN „Það er ótrúlegt að einhver hafi lifað slysið
af, þetta var svo svakalegt. Reykurinn stóð tugi
metra upp í loftið,“ segir Rögnvaldur Hólmar
Jónsson flugvirki, sem staddur var á flugvellinum
í Madríd þegar slysið varð í gærkvöldi.
Svo virðist sem eldur hafi komið upp í hreyfli
flugvélar flugfélagsins Spanair og hún hrapað
skömmu eftir flugtak. Alls 172 voru um borð í vél-
inni og létust 153.
Rögnvaldur segir að mikil óreiða hafi myndast
við slysið. „Það fór allt í kaos utandyra. Fjöldi
sjúkra- og slökkviliðsbíla dreif að og mikil ringul-
reið skapaðist. Inni í flugstöðinni vissi hins vegar
enginn neitt og ekki var tilkynnt um slysið fyrr en
um klukkutíma eftir að það gerðist. Svæðið er svo
stórt að ekki urðu allir strax varir við reykinn.“
Rögnvaldur var enn staddur á flugvellinum
þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær, átta
tímum eftir slysið.
„Það eru enn bílar með blikkljós á ferðinni hér
fyrir utan, en það er búið að opna aftur fyrir
umferð.“ - kóp/Sjá síðu 4
Flugvél spænska flugfélagsins Spanair hrapaði skömmu eftir flugtak í Madríd:
Yfir 150 fórust í flugslysi
STJÓRNMÁL Nýr borgarstjórnar-
meirihluti tekur við í dag.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun ekki verða skorið
niður í velferðarmálum, dregið
verður úr ráðningum og farið
verður í ellefu milljarða stokk við
Mýrargötu. Þá verður Bitruvirkj-
un sett á oddinn.
Júlíus Vífill Ingvarsson er nú
álitinn næstvaldamestur hjá
Sjálfstæðisflokknum og líklegt
þykir að Framsókn fái for-
mennsku í Orkuveitunni.
Ungliðahreyfingar Samfylking-
ar og Vinstri grænna boða til
mótmæla klukkan hálftíu fyrir
utan Ráðhúsið undir kjörorðinu:
„Geymt en ekki gleymt - Okkar
Reykjavík“. - kóþ/ovd
Borgarstjórnarskipti í dag:
Nýr meirihluti
vill Bitruvirkjun
LÖREGLUMÁL Tveir Rúmenar létust í
gærkvöld við störf við Hellisheið-
arvirkjun. Mennirnir voru að sinna
viðhaldi vatnsrörs við virkjunina
og virðast hafa kafnað.
Oddur Árnason, yfirlögreglu-
þjónn á Selfossi, sagði tilkynningu
um slysið hafa borist þegar klukk-
an var tólf mínútur gengin í átta.
„Mennirnir höfðu verið dregnir út
en lífgunartilraunir báru ekki
árangur,“ sagði Oddur á vettvangi í
gær.
Mennirnir sem létust voru báðir
starfsmenn Vélsmiðjunnar Altaks.
Þeir höfðu farið inn um gat sem
rofið var á vatnsrör sem hafði verið
tæmt til að hægt væri að gera á því
endurbætur. Gunnar Pétursson hjá
Altaki vildi ekki segja nánari deili á
mönnunum tveimur í gærkvöld en
vísaði til þess að opinberir aðilar
myndu gefa út um það tilkynningu.
Rúmenarnir tveir voru hluti
stærri hóps sem var við störf í Hell-
isheiðarvirkjun og bjuggu þar í
starfsmannabúðum.
Eftir slysið var samlöndum
þeirra safnað saman í stöðvarhús-
inu þar sem þeir biðu áfallahjálpar
frá Rauða krossinum á meðan lög-
regla og tæknimenn rannsökuðu
slysstaðinn og líkin voru flutt á
brott.
„Þetta er hörmulegt slys og Orku-
veitan mun gera það sem hún getur
til að aðstoða í þessu máli. Ef við
getum eitthvað gert til að aðstoða
félaga, vini og aðstandendur þá
gerum við það,“ segir Hjörleifur
Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar.
„Hugur okkar allra er hjá aðstand-
endum og vinum.“
Að sögn Odds Árnasonar yfirlög-
regluþjóns verður nú rannnsakað
frekar hver tildrög slyssins voru
og hvert var banamein starfs-
mannanna tveggja.
„Það er ekki ljóst hvort mennirn-
ir létust úr súrefnisskorti eða hvort
þeir hafa hugsanlega andað að sér
einhverjum eiturgufum með
brennisteini eða öðru,“ sagði yfir-
lögregluþjónninn. - gar / - kóp
Tveir köfnuðu í röri
í Hellisheiðarvirkjun
Tveir Rúmenar létust í vinnuslysi í Hellisheiðarvirkjun í gær. Mennirnir misstu
meðvitund inni í röri. Hugur okkar er hjá aðstandendum, segir forstjóri OR.
BANASLYS VIÐ HELLISHEIÐAVIRKJUN Ekki er ljóst hvort mennirnir létust úr súrefnisskorti eða hvort þeir hafi andað að sér eitur-
gufum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RÖRIÐ Mennirnir voru inni í rörinu þegar
slysið varð.