Fréttablaðið - 21.08.2008, Blaðsíða 8
8 21. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR
1 Hver er varaformaður þing-
flokks Frjálslynda flokksins?
2 Fyrir hvaða franska dúett
hitar hljómsveitin Bang Gang
upp í október?
3 Til hvaða borgar ætlar Gísli
Marteinn Baldursson í nám í
borgarfræðum?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
FYRIR EFTIR
OPNI HÁSKÓLINN
Diplómanám – FagMennt
STJÓRNUN OG REKSTUR FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar:
Tinna Ösp Ragnarsdóttir
tinnao@ru.is
sími: 599 6386
FagMennt býður diplómanám til eins árs í stjórnun og rekstri fyrirtækja. Í náminu
eru kynntar fræðilegar og hagnýtar aðferðir sem notaðar eru við rekstur og stjórnun
fyrirtækja. Þetta nám hentar einkar vel þeim sem eiga eða reka lítil eða meðalstór
fyrirtæki og vilja öðlast dýpri þekkingu án þess að fara í fullt háskólanám.
Námið hefst 1. september – skráningar á www.fagmennt.is
Námið samanstendur af sex námskeiðum þar sem hvert námskeið gefur 6 ECTS-einingar.
Kennt er í fimm vikna lotum þar sem hverju námskeiði lýkur með prófi eða verkefni.
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16:30 til 19:50.
Haustönn
Rekstrargreining
Stjórnun og stefnumótun
Fjármál fyrirtækja
Vorönn
Markaðsfræði
Rekstrarstjórnun
Mannauðsstjórnun
FagMennt
www.opnihaskolinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
2
4
6
STJÓRNMÁL „Margrét [Sverrisdótt-
ir, varaformaður Íslandshreyf-
ingarinnar] hefur sviðið bakland-
ið í Íslandshreyfingunni og
raunar heldur henni í gíslingu
þannig að Íslandshreyfingin er
ófær um að styðja F-listann í
borgarstjórn í núverandi
ástandi,“ segir Ólafur F. Magnús-
son, fráfarandi borgarstjóri.
Ólafur gekk nýverið aftur til
liðs við Frjálslynda flokkinn og
hyggst leiða F-listann í borgar-
stjórnarkosningunum árið 2010.
Segir hann nauðsynlegt að Frjáls-
lyndi flokkurinn og Íslandshreyf-
ingin vinni saman fyrir kosning-
arnar, meðal annars til að tryggja
að flugvöllur verði áfram í Vatns-
mýrinni.
„Ég skil ekki þetta tal um að ég
sé með flokkinn í gíslingu. Ég get
hins vegar sagt það opinberlega
að mér finnst það fráleitt ef
Íslandshreyfingin og Frjálslynd-
ir sameinast. Ég hef ekki orðið
vör við þessa umhverfishyggju
hjá Frjálslyndum,“ segir Mar-
grét. „Mér finnst þetta lykta af
því að hann [Ólafur] sé í örvænt-
ingu að leita sér að einhverju
baklandi og ef hann er ekki viss
um að fá það hjá Frjálslynda
flokknum þá gæti hann alveg
hugsað sér að nýta Íslandshreyf-
inguna til þess.“
Ómar Ragnarsson, formaður
Íslandshreyfingarinnar, segir
samstarf við Frjálslynda flokk-
inn í borginni velta á því hvaða
umhverfisstefna verði ofan á hjá
flokknum. „Ólafur F. Magnússon
er einhver allra fremsti umhverf-
isverndarbaráttumaður sem við
höfum átt. Hann sýnir gríðarleg-
an kjark og bjartsýni að ráðast
gegn Jóni Magnússyni [þing-
manni Frjálslynda flokksins í
Reykjavík] stóriðjusinna,“ segir
Ómar. Segir hann stefna í slag í
borginni milli stóriðjusinna með
Jón í broddi fylkingar og
umhverfisverndarsinna með Ólaf
í broddi fylkingar.
Ólafur segir Íslandshreyfing-
una hafa „keypt köttinn í sekkn-
um“ þegar Margrét var fengin til
liðs við flokkinn. Segir hann hug-
sjónir hennar liggja annars stað-
ar en í umhverfismálum og hún
bregði fæti fyrir Ómar og aðra
umhverfisverndarsinna í hreyf-
ingunni. gunnlaugurh@frettabladid.is
Íslandshreyf-
ingin í gíslingu
Margrétar
Ólafur F. Magnússon segir að Margrét Sverrisdóttir
haldi Íslandshreyfingunni í gíslingu. Ólafur hefur
viðrað hugmyndir um samvinnu Íslandshreyfingar
og Frjálslynda flokksins sem Margrét er andvíg.
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
ÓMAR RAGNARSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SAKAR HÖNNU
BIRNU UM
ÓSANNINDI
Ólafur F. Magnússon, fráfarandi
borgarstjóri, sakar Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæð-
isflokksins í Reykja-
vík, um að segja
ósatt þegar hún
segist ekki hafa
séð vinnuskjöl frá
embættismönnum
borgarinnar þar
sem lagt er til að
dregið verði úr
launakostnaði borgarinnar.
„[Hanna] segir ósatt. Þessi
framganga hennar hefur rýrt mjög
traust mitt á henni,“ segir Ólafur.
„Ég frábið mér þess að sjálfstæðis-
menn haldi áfram að segja að aðrir
séu að segja ósatt og leggja fram
engin gögn eða rök fyrir því. Svo
þegar ég sanna hið gagnstæða þá
fara þeir undan í flæmingi. Ég lýsi
vantrausti á þessi vinnubrögð.“
VINNUMARKAÐUR Lögreglumenn
telja að byrjendalaun lögreglu-
manna að loknum lögregluskóla
eigi að vera mun hærri en þau
eru í dag. Fjórðungur lögreglu-
manna telur að þau eigi að vera
hærri en 325 þúsund krónur en
rúmlega helmingur lögreglu-
manna telur að þau eigi að vera
hærri en 225 þúsund krónur, sam-
kvæmt óformlegri könnun Lög-
reglufélags Reykjavíkur. Nýút-
skrifaður lögeglumaður hefur
um 175 þúsund krónur í grunn-
laun í dag.
Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
segir að lögreglumenn hefji við-
ræður við ríkisvaldið á næstu
vikum, aðeins sé beðið eftir við-
brögðum samninganefndar ríkis-
ins við viðræðuáætlun. Lögreglu-
menn hafi setið eftir í kjörum um
langa hríð meðan aðrir hafi notið
launaskriðs. Lögreglumenn muni
nú krefjast þess að sjá verulega
hækkun grunnlauna í komandi
kjarasamningaviðræðum.
„Við gerum okkur grein fyrir
því hvert ástandið er, bæði á
almennum og opinberum mark-
aði og í þjóðfélaginu almennt.
Það er ekki góður byr fram undan
en það kemur ekki í veg fyrir að
við setjum fram kröfur,“ segir
Snorri og rifjar upp að forsendur
allra kjarasamninga séu löngu
brostnar og stefni í enn meira
svartnætti í efnahagsmálum.
Ekki sé ólíklegt að samningurinn
verði framlenging á þeim samn-
ingi sem þegar sé í gildi og þá
verði hann gerður til skemmri
tíma. - ghs
Lögreglufélag kannar afstöðu til byrjendalauna:
Vilja 325 þúsund
DÓMSMÁL Tuttugu og sex ára Reykvíkingur hefur
verið ákærður fyrir þrjú rán og tvær ránstilraunir.
Hann hélt Fellahverfi í Breiðholti í heljargreipum í
þrjá daga fyrir páska þegar hann gekk á milli
vegfarenda og söluturna og hótaði að smita fólk af
lifrarbólgu með sprautunál léti það ekki fé af hendi.
Ránshrinuna hóf maðurinn að kvöldi miðvikudags-
ins 19. mars. Þá settist hann inn í bíl til konu og
ellefu ára dóttur hennar við verslun ina Select í
Suðurfelli, krafði konuna um peninga og hótaði að
stinga hana með sprautu nál í hálsinn. Mæðgurnar
flúðu úr bifreiðinni, og fór maðurinn þá í söluturn-
inn King Kong og reyndi að ræna veski af konu á
sextugsaldri.
Þegar ránstilraunin bar ekki árangur sneri hann
sér að afgreiðslu stúlku verslunarinnar, hótaði að
smita hana af lifrarbólgu og hafði átján þúsund
krónur á brott.
Næstu tvo daga framdi hann tvö rán, fyrst í
Leifasjoppu í Iðufelli, þar sem hann hafði 27 þúsund
krónur upp úr krafsinu, og daginn eftir í fyrrnefndri
verslun Select. Þar tók hann 65 þúsund krónur og
sígarettur.
Maðurinn er enn fremur ákærður fyrir að svíkja
út 270 þúsund króna sjónvarpstæki á stolið greiðslu-
kort og að hafa ekið án ökuréttinda. - sh
Hótaði að stinga fimm manns með sprautunál í ránsferð um Fellahverfi:
Sprautunálarræningi ákærður
VAFI UM SAKHÆFI
Þess er krafist að manninum verði gerð refsing í mál-
inu, en til vara að honum verði gert að sæta örygg-
isgæslu á viðeigandi stofnun, þar eð vafi leikur á því
hvort hann er sakhæfur. Maðurinn hefur áður komið
við sögu lögreglu og hlotið dóma.
ÞÝSKALAND Tveir útfararstjórar
hafa verið handteknir í Bæjara-
landi í Þýskalandi, grunaðir um
að hafa komið keppinaut sínum
fyrir kattarnef og látið jarð nesk-
ar leifar hans hverfa.
Maðurinn sem sakborningarnir
eru grunaðir um að hafa myrt,
útfararstjórinn Erich W., hvarf í
apríl 2007. Þeir áttu að sögn í
deilu um meintar vanefndir hinna
fyrrnefndu á greiðslum vegna
kaupa á útfararstofu Erichs. Hann
hitti þá til að útkljá málið á
skrifstofu sinni. „Þegar ekkert
samkomulag náðist, eru mennirn-
ir taldir hafa drepið hann,“ hefur
fréttavefur Spiegel eftir tals-
manni héraðsdóms í Erlangen.
Þeir hafi síðan brennt líkið í eigin
líkbrennsluofni undir fölsku nafni
og dreift öskunni á ókunnum stað.
- aa
Bíræfnir útfararstjórar:
Létu keppinaut
hverfa að fullu
FILIPPSEYJAR, AP Tilraunir til að
koma á friði í héraði múslima á
Suður-Filippseyjum virtust í gær
í uppnámi. Talsmenn stjórnvalda
sögðu að semja yrði upp á nýtt
um sáttatillögu sem skuldbundið
hefði herskáa múslima, sem
barist hafa fyrir aðskilnaði, og
stjórnarherinn til að hætta
vopnuðum átökum.
Erindrekar Filippseyjastjórnar
settu upp þessa kröfu í kjölfar
þess að skæruliðar samtakanna
MILF skutu og hjuggu til bana 37
manns í árás á þorp um helgina.
Samkvæmt sáttatillögunni átti
að stækka sjálfstjórnarhérað
múslima þar. - aa
Sáttatilraunir á Filippseyjum:
Samkomulag í
uppnámi
VEISTU SVARIÐ?