Fréttablaðið - 24.08.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
SKOKKA SÉR TIL SKEMMTUNAR Fjöldi fólks tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í gær, en alls hlupu 10.722 manns í mismun-
andi vegalengdum. Hinn breski David Kirkland bar sigur úr býtum í maraþonhlaupi karla en samlandi hans, Rozalyn Alexander,
kom fyrst í mark í kvennaflokki. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
24. ágúst 2008 — 229. tölublað — 8. árgangur
Hittumst
á Hellu!
LANDBÚNAÐARSÝNINGIN
HELLU 22.-24. ÁGÚST 2008 SÍÐASTI SÝNINGARDAGUR – OPIÐ TIL KL.18
www.landbunadarsyning.is
HELGIN 12
NÚNA ER ALLT Í LAGI
Emilíana Torrini um lífið
og ástina, óbeit á álverum
og lamandi tíu rétta ítölsk
matarboð.
matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]ágúst 2008
Up k
Nanna Rögnvaldardóttir skrifar
Kál í hvers kyns rétti
Sigrún HjálmtýsdóttirÆvintýri að fara út í skóg og tína sveppi
Tínt í matinnBláberjabaka
FYLGIR Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SAMGÖNGUR Fyrsti áfangi sam-
göngumiðstöðvar í Vatnsmýri verð-
ur ekki tekinn í gagnið á næsta ári,
eins og samgönguráðherra og
borgarstjórinn í Reykjavík ráð-
gerðu í vor.
Í samkomulagi sem Kristján L.
Möller og Ólafur F. Magnússon inn-
sigluðu í lok mars var stefnt að því
að taka miðstöðina í notkun fyrir
árslok 2009 og að hún yrði full-
byggð 2010. Í sama samkomulagi
kom fram að Reykjavíkurborg
gerði ráð fyrir að ljúka skipulags-
vinnu vegna byggingar miðstöðv-
arinnar „á næstu 100 dögum“.
Þeir hundrað dagar eru liðnir
og gott betur.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust á skipulags- og byggingar-
sviði Reykjavíkur hafa flutningar
sviðsins og sumarhlé á störfum
ráða borgarinnar orsakað tafir
verksins. Það mun enn á borðum
arkitekta sviðsins .
Eftir því sem næst verður kom-
ist er nú stefnt að því að taka fyrsta
áfanga samgöngumiðstöðvarinnar
í gagnið árið 2010 og að hún verði
fullbúin sex árum síðar.
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra upplýsti í síðustu viku að
vinna við nýja og stærri flugstöð
við Akureyrarflugvöll væri hafin.
Þær framkvæmdir eiga að hefjast
að ári og vera lokið haustið 2010.
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands, segir
stækkun flugstöðvarinnar á Akur-
eyri eðlilegt framhald lengingar
flugbrautarinnar en furðar sig á að
ekki hafi áður tekist að koma flug-
stöðvarmálum í Reykjavík í við-
unandi horf. Hús Flugfélagsins var
reist á stríðsárunum og er löngu úr
sér gengið. Reykjavíkurborg hefur
hafnað óskum félagsins um að fá að
byggja á lóð sinni og vísað til þess
að flugsækin starfsemi við Reykja-
víkurflugvöll eigi að vera í og við
samgöngumiðstöðina. Þar til hún er
risin geti Flugfélagið ekki boðið
farþegum betri aðstöðu en nú er.
- bþs
Samgöngumiðstöðin
frestast um sex ár
Skipulagsvinnu vegna samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri er ekki lokið. Gert var
ráð fyrir að miðstöðin yrði fullbyggð 2010. Nú er ráðgert að það verði 2016.
ÍÞRÓTTIR Úrslitaleikur Íslendinga
og Frakka um Ólympíugullið í
handknattleik karla verður víða
sýndur í dag. Útsending sjónvarps-
ins hefst klukkan 7.15 með
upphitun fyrir leikinn en leikurinn
hefst svo klukkan 7.45.
Leikurinn verður sýndur beint í
Vetrargarðinum í Smáralind.
Einnig verður hann sýndur á
risaskjá í Vodafone-höllinni, að
Ásvöllum í Hafnarfirði, í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi og í
félagsheimili Þórs á Akureyri. Þá
munu Sambíóin sýna leikinn í
bíóhúsum sínum í Álfabakka í
Reykjavík, á Akureyri og á
Selfossi.
Fyrri hugmyndir um að sýna
leikinn á risaskjáum á Klambra-
túni voru slegnar út af borðinu í
gær. Að auki verður leikurinn
sýndur á fjölmörgum veitinga- og
skemmtistöðum um land allt. - ovd
Úrslitaleikurinn við Frakka:
Strákarnir
hvattir áfram
við risaskjái
LANDSLIÐIÐ STUTT Stuðningsmenn
landsliðs Íslands í handknattleik láta
ekki sitt eftir liggja. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sandra Jóhannsdóttir
Sýnir Áströlum hvað einangrun er með ljós-
myndum frá Íslandi. Myndirnar sýna samband
fólks og náttúru og dramatískt landslag.
AFBROT „Vinnuferðin okkar hefur
farið í að þrífa og ganga frá eftir
einhverja drullusokka,“ segir
Magnús Tómasson, gjaldkeri skála-
nefndar ferðaklúbbs 4x4.
Magnús fór um helgina í vinnu-
ferð í fjallaskála ferðaklúbbsins,
sunnan við Hofsjökul ásamt öðrum
úr klúbbnum. Þegar komið var að
skálanum var búið að brjóta allt og
bramla. Bjórflöskur og matarleifar
voru á gólfinu og síminn slitinn úr
sambandi.
„Engu var stolið en það var búið
að skemma margt. Búið var að
brjóta rúðu og sparka upp klósett-
hurðinni. Síðan grilluðu þeir greini-
lega innandyra á gólfinu. Það má
þakka fyrir að þeir kveiktu ekki í
húsinu því það var stór bruna-
blettur á gólfinu,“ segir Magnús.
Hann segir líklegast að sníkju-
dýrin hafi brotist inn á fimmtu-
dagskvöldið þegar mikil rigning
var á svæðinu. „Síðan hafa þeir leit-
að skjóls hjá okkur því þessir leppa-
lúðar þoldu ekki rigninguna eins og
sannir Íslendingar.“
Búið er að kæra málið til lög-
reglu - vsp
Brotist var inn í fjallaskála ferðaklúbbsins 4x4 og allt brotið og bramlað:
Grillað á gólfi fjallaskálans
PEKING Að minnsta kosti tólf
slösuðust í innkaupaæði í Peking
þegar sérlega lágt verð var boðið á
matarolíu og eggjum í verslun
einni á fimmtudag. Fjórir voru
fluttir á sjúkrahús.
Þeir sem æðið rann á voru flestir
ellilífeyrisþegar. Sú elsta sem
slasaðist var 81 árs.
Þrír létust í svipuðu útsöluæði í
borginni Chongqing í Kína í fyrra.
Ríkisstjórn landsins fyrirskipaði
þá stórmörkuðum að hafa stjórn á
slíkum ofurútsölum. - vsp
Aldraðir útsöluóðir í Peking:
Tólf slösuðust í
innkaupaæði
FER AÐ RIGNA Í dag verða suð-
austan 5-13 m/s hvassast suðvest-
an til. Úrkomulítið í fyrstu en fer að
rigna sunnan og suðvestan til síðar
í dag. Hiti 8-15 stig, hlýjast eystra.
VEÐUR 4
11
12
13
11
11
34