Fréttablaðið - 24.08.2008, Qupperneq 4
4 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR
ÍÞRÓTTIR Íslenska landsliðið í
handbolta rataði í New York
Times, eitt virtasta dagblað
heims, í kjölfar glæsilegs sigurs á
Spánverjum í fyrradag. Á forsíðu
laugardagsblaðsins er mynd af
strákunum að fagna eftir að hafa
tryggt sér sæti í úrslitaleik á
Ólympíuleikunum í Peking.
„Ísland hefur aldrei unnið gull í
ólympíuíþrótt. Ekki einu sinni á
vetrarleikunum, þrátt fyrir að
heitið á yfirborðinu sem leikið er
á sé í nafni landsins,“ skrifar
blaðamaður New York Times.
„Handbolti er eins og lacrosse án
kylfu eða körfubolti með mörkum
í staðinn fyrir körfur,“ bætir
hann við til útskýringar. - sgj
Hróður landsliðsins berst víða:
Strákarnir prýða
forsíðu NY Times
ÓLYMPÍUSAGA HELDUR ÁFRAM New
York Times er eitt virtasta dagblað
heims.
LÍBÍA, AP Seif al-Islam Gaddafí,
sonur Moammars Gaddafís
Líbíuleiðtoga, segist hættur
afskiptum af stjórnmálum.
Margir höfðu talið hann sjálf-
krafa verða arftaka föður síns.
Sonurinn vill hraða lýðræðis-
umbótum í landinu, en gaf engar
ástæður fyrir ákvörðun sinni. Á
fjölmennum fundi með ungu fólki
sagði hann lýðræði ábótavant í
arabaríkjum og mannréttindabrot
væru algeng.
Moammar Gaddafí segist
ekkert ósáttur við þessa ákvörðun
sonar síns, sem undanfarin ár
hefur haft töluverð afskipti af
stjórnmálum í Líbíu. - gb
Sonur Gaddafís:
Hættur afskipt-
um af pólitík
MENNING Herra Karl Sigurbjörns-
son, biskup Íslands, veitti Liljuna
í fyrsta sinn í gær. Liljan er
viðurkenning til kirkjutónlistar-
fólks og er veitt þeim sem þykir
hafa skarað fram úr á sínu sviði.
Það voru Haukur Guðlaugsson,
Jón Stefánsson og Marteinn
Hunger Friðriksson sem hlutu
Liljuna í ár fyrir störf sín í þágu
kirkjutónlistar.
Kirkjutónlistarfólk verðlaunað:
Liljan veitt í
fyrsta sinn
GEORGÍA, AP Fólk streymdi til heim-
ila sinna í Georgíu í gær eftir að
Rússar hófu að draga herlið sitt til
baka á föstudaginn. Hjálpar samtök
á staðnum segja að tugir þúsunda
muni enn þurfa aðstoð við að fá
fæðu og skjól, en talið er að um 160
þúsund manns hafi flúið heimili sín
eftir að átökin brutust út.
Hundruð bíla komu til borgar-
innar Gorí í gær þar sem mestu
átökin fóru fram. „Flestir frá Gorí
munu geta snúið til heimila sinna.
Töluverðar skemmdir hafa orðið í
borginni og einhverjir hafa misst
heimili sín og eigur, en það eru
fáir,“ segir Ashley Clements hjá
hjálparsamtökunum World Vision.
„Þeir sem snúa til baka þurfa
þó enn að horfast í augu við þá
hættu sem stafar af ósprungnum
sprengjum og jarðsprengjum,“
sagði Clements.
World Vision eru ein af fáum
pólitískt sjálfstæðum hjálpar-
samtökum sem starfa í Georgíu,
og eru samtökin nú að setja upp
svæði fyrir börn sem hafa misst
heimili sín. Á þeim svæðum geta
börnin lært og leikið sér ásamt því
að þeim er hjálpað að takast á við
þá reynslu sem þau hafa upplifað.
Átökin í Georgíu hafa staðið yfir
í rúmar tvær vikur og nú hafa
Rússar tilkynnt að þeir ætli að
draga herlið sitt til baka eftir mik-
inn þrýsting frá Bandaríkjunum
og Evrópusambandinu. - vsp
Fólk streymdi til heimila sinna í Georgíu í gær eftir að hafa flúið þau:
Ósprungnar sprengjur skapa hættu
GORÍ Kona liggur lemstruð eftir loftárás
á borgina Gorí. Hún getur þó líklega
snúið aftur til heimilis síns núna eftir að
Rússar hafa hafið að draga herlið sitt til
baka. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Eldur í sumarbústað
Eldur kviknaði í sumarbústað í
Ásgarðslandi aðfaranótt laugardags.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi gekk
greiðlega að slökkva eldinn en miklar
skemmdir urðu á bústaðnum.
Farþegi slasast í bílveltu
Farþegi í bíl sem ekið var út af Laugar-
vatnsvegi í gærmorgun var fluttur
með þyrlu til Reykjavíkur eftir að í ljós
kom að áverkar hans voru alvarlegir.
Ólæti í Reykjavík
Sex gistu fangageymslur í Reykjavík
vegna ölvunar og óláta aðfaranótt
laugardags. Að sögn lögreglu var
erilsamt á höfuðborgarsvæðinu og
nokkuð um ölvun.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
19°
21°
18°
18°
20°
19°
22°
23°
16°
30°
31°
23°
19°
28°
29°
31°
20°
10
12
Á MORGUN
5-13 m/s, hvassast með
ströndum.
13
ÞRIÐJUDAGUR
8-13 m/s.
13
9
7
11
12
12
13
11
11
11
6
5
5
4
5
7
9
9 9
4
11
10 14
13
10
12
15
1412
ÁFRAM VÍÐA
VÆTUSAMT
Sú vinnuvika sem
framundan er
verður almennt
vætusöm með
auðvitað uppstytt-
um á milli. Áfram
verður þó yfi rleitt
þurrt norðaustan
og austan til. Á
miðvikudag verður
yfi rleitt úrkomulítið
á landinu lengst af
en síðdegis þann
dag fer að rigna
sunnan og vestan
til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
BANDARÍKIN, AP „Joe Biden er sér-
stök blanda. Í áratugi hefur hann
boðað breytingar í Washington, en
Washington hefur ekki breytt
honum,“ sagði Barack Obama, for-
setaframbjóðandi demókrata í
Bandaríkjunum, þegar hann kynnti
varaforsetaefni sitt, öldungadeild-
ar þingmanninn Joe Biden í gær.
Hinn 65 ára gamli Biden hefur
verið öldungadeildarþingmaður
fyrir Delaware-ríki í 35 ár og hefur
tvisvar sóst eftir embætti forseta
Bandaríkjanna, nú síðast fyrir
þessar kosningar. Barack Obama
hlaut hins vegar útnefninguna og
hefur Biden ákveðið að þiggja boð
hans um að ganga til liðs við sig.
Biden er kaþólskur, löglærður
og tvígiftur, en fyrri kona hans og
nýfædd dóttir létust í bílslysi árið
1972. Hann hefur mikla reynslu af
utanríkismálum, en Obama hefur
skort traust meðal kjósenda í þeim
málaflokki. Biden studdi Íraks-
stríðið upphaflega, en segir nú að
það hafi verið mistök og hefur
gagnrýnt George Bush Banda-
ríkjaforseta harðlega. Biden er
einnig mikill baráttumaður gegn
kynbundnum launamun og heimil-
is ofbeldi.
Stuðningsmenn Obamas fengu í
gærmorgun send smáskilaboð og
tölvupóst þar sem tilkynnt var um
valið á Joe Biden. Félagarnir komu
svo opinberlega fram saman á
fundi í bænum Springfield í heima-
ríki Obamas, Illinois, í gær.
„Joe verður ekki aðeins góður
varaforseti, hann verður frábær.
Eftir áratuga starf veit ég að hann
getur hjálpað mér við að losa okkur
við sundrung í Washington, svo að
demókratar og repúblikanar geti
saman lagt fram stefnu sem virkar
fyrir bandarískan almenning,“
sagði Obama.
Með valinu á Biden lauk tveggja
mánaða vangaveltum um hver
yrði varaforsetaefni Obamas.
Þingmaðurinn Evan Bayh, ríkis-
stjórarnir Tim Kaine og Kathleen
Sebelius og sjálf Hillary Clinton
höfðu öll komið til greina.
steindor@frettabladid.is
Reyndur þingmaður
til liðs við Obama
Barack Obama hefur valið 65 ára öldungadeildarþingmanninn Joe Biden sem
varaforsetaefni sitt. Biden hefur verið þingmaður í 35 ár og hefur mikla reynslu
af utanríkismálum. „Washington hefur ekki breytt honum,“ segir Obama.
Joe Biden hefur oft komist í hann
krappan fyrir óvarleg ummæli. Þegar
hann bauð sig fram gegn Barack
Obama í forvali demókrata fyrir for-
seta kosningarnar lýsti hann því yfir
að hann teldi Obama „ekki tilbúinn“
til að verða forseti. Hann lýsti einnig
Obama sem „fyrsta almenna afrísk-
ameríska frambjóðandanum sem
er vel máli farinn, klár og hreinn og
lítur vel út“.
Biden kom einnig til greina sem
varaforsetaefni fyrir John Kerry þegar
hann bauð sig fram gegn George
W. Bush fyrir fjórum árum. Biden
hafnaði því að verða varaforsetaefni
Kerrys og mælti með John McCain,
sem býður sig nú fram til forseta fyrir
hönd repúblikana. „Ég stend með
McCain,“ sagði Biden í maí 2004.
„Ég tel að McCain yrði frábær fram-
bjóðandi til embættis varaforseta.“
MISJAFN BIDEN
FÉLAGAR Í BARÁTTUNNI Barack Obama hefur valið Joe Biden sem varaforsetaefni
sitt, en þeir börðust áður sín á milli um að verða forsetaframbjóðandi demókrata.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUMÁL Samfylkingin í
Ísafjarðarbæ hefur sent frá sér
ályktun um Dýrafjarðargöng í
kjölfar umfjöllunar um að
Kristján L. Möller samgöngu ráð-
herra hafi verið beittur þrýstingi
til að fresta framkvæmdum við
Dýrafjarðargöng og fara í stað
þess í jarðgangagerð milli
Ísafjarðar og Súðavíkur.
Í ályktuninni er mikilvægi
Dýrafjarðarganga áréttað og er
ráðherra hvattur til að láta
„úrtöluraddir örfárra aðila ekki
hafa áhrif á framkvæmdaröð
jarðganga á svæðinu sem þegar
hefur verið samþykkt í vegaáætl-
un“. - shá
Samfylkingin ályktar:
Ekki verði kvik-
að frá göngum
LILJAN AFHENT Herra Karl Sigurbjörns-
son veitti Liljuna í fyrsta sinn í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ /DANÍEL
Ingunn Snædal var rangnefnd í
ritdómi Sigurðar Hróarssonar um nýja
ljóðabók hennar sem birtist í blaðinu
á föstudag.
LEIÐRÉTTING
GENGIÐ 22.08.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
157,2593
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
81,34 81,72
151,17 151,91
120,57 121,25
16,160 16,254
15,189 15,279
12,872 12,948
0,7437 0,7481
128,13 128,89
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR