Fréttablaðið - 24.08.2008, Side 6
6 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR
TÆKNI „Varan er á lokastigi þróun-
ar. Framleiðslan er í gangsetningu
sem stendur. Við reiknum með að
sala á búnaðinum hefjist síðar á
þessu ári,“ segir Sveinbjörn Hösk-
uldsson, framkvæmdastjóri heil-
brigðistæknifyrirtækisins Nox
Medical.
Sjö starfsmenn fyrirtækisins
hafa á síðustu tveimur árum, í
samstarfi við sérfræðinga á sviði
barnasvefngreininga, þróað tæki
og hugbúnað til greiningar á
svefnvandamálum meðal barna.
„Svefngreiningar í dag snúast
of mikið um fullorðna. Það sem
hefðbundin svefngreining gengur
út á er að finna kæfisvefn í fólki.
Þá eru mældar öndunartruflanir í
svefni ásamt fleiru. Það sem við
sáum var að svefnvandamál hjá
börnum eru mjög algeng líka og
afleiðingarnar síst skárri en hjá
fullorðnum. Þau geta leitt til hegð-
unar- og vaxtarvandamála, skertr-
ar námsgetu og einkenna athyglis-
brests og ofvirkni,“ segir
Sveinbjörn.
Rannsóknir benda til þess að
allt að ellefu prósent barna þjáist
af svefntruflunum, en kæfisvefn
hjá börnum er í flestum tilfellum
hægt að meðhöndla á einfaldan
hátt, til dæmis með hálskirtlatöku.
Þrátt fyrir þetta er eingöngu um
eitt prósent svefngreininga í Evr-
ópu framkvæmt á börnum.
„Búnaðurinn sem til var til
greiningar hentaði ekki fyrir börn.
Hann var fullur af vírum og stór,
svo krakkarnir voru útbíaðir í
vírum og skynjurum þegar búið
var að setja búnaðinn á þau,“ segir
Sveinbjörn. Starfsmenn Nox Med-
ical hafa nýtt tækninýjungar
síðustu ára, meðal annars á sviði
fjarskiptatækni, til að þróa næstu
kynslóð svefngreiningarbúnaðar
sem er fyrirferðaminni, þráðlaus
og sjálfvirkari en sá búnaður sem
fyrir er. Fyrirtækið var stofnað
árið 2006 og hefur starfað innan
veggja frumkvöðlaseturs Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands.
Framleiðsla á búnaðinum er að
hefjast í Kína. Sveinbjörn segir að
alls um fjórtán mannár hafi farið í
hönnun hans. Vinnan hefur verið
fjármögnuð með útgáfu hlutafjár
og með styrk frá Tækniþróunar-
sjóði.
Sveinbjörn segir heimsmarkað
fyrir svefngreiningartæki velta
um tvö hundruð milljónum dollara
á ári, jafnvirði um sextán millj-
arða króna, og vaxa um fimmtán
prósent á ári. Helstu markaðir eru
í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.
gunnlaugurh@frettabladid.is
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA
897-2896 OG Á www.bakleikfimi.is
RÓLEGIR OG KRÖFTUGIR HÓPAR Í
HÁDEGINU OG EFTIRMIÐDAGA Í
NÝLEGRI OG BJARTRI SUNDLAUG
VIÐ LAUGARÁS
BAKLEIKFIMI Í VATNI
BETRI LÍÐAN Í HÁLSI HERÐUM OG BAKI
UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA
Viðskiptatækifæri í Kína
Hópferð á Canton vörusýninguna
24. október - 4. eða 9. nóvember.
FÍS - Félag íslenskra stórkaupmanna og ÍKV - Íslensk kínverska
viðskiptaráðið í samvinnu við Surprize Travel efna til hópferðar
á hina heimsþekktu Canton vörusýningu Kína.
Í þessari ferð verður flogið til Hong Kong og farið þaðan til
Guangzhou á sýninguna þar sem m.a. gjafavörur, fatnaður,
vefnaðarvörur, lyf ofl. er sýnt. Ekki er hægt að fara til Kína án
þess að fara til Beijing og skoða allt það markverðasta þar, svo
sem Kínamúrinn, Himnahofið, Forboðnu borgina ofl. Farið
verður til Xian þar sem m.a. Terra Cotta Waariors safnið verður
heimsótt. Fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða og upplifa meira í
Kína er boðið upp á ferð eftir sýninguna. Íslenskur fararstjóri er
með í ferðinni.
Nánari upplýsingar um dagskrá ferðarinnar er að finna á
heimasíðu ÍKV: www.ikv.is en einnig veita Linda Bára hjá ÍKV/
FÍS upplýsingar og Surprize Travel í s: 534 3890. Heimasíða
þeirra er: www.surprizetravel.is
Verð miðað við heimferð þann 3. nóvember: ISK 357.500 miðað við gengi USD 82,5
Verð miðað við heimferð þann 8. nóvember: ISK 430.200
Auglýsingasími
– Mest lesið
REYKJAVÍK Stjórnarformaður Heilsu-
verndarstöðvarinnar ehf. segir það
„algjörlega ósatt og ómaklegt“ að
fyrirtækið hafi blekkt borgarráð í
viðræðum um húsnæði fyrir vímu-
efnasjúklinga að Hólavaði.
Jórunn Frímannsdóttir, formað-
ur velferðarráðs, harmaði í
útvarpsfréttum að fyrirtækið hefði
ekki staðið við samkomulag um
húsnæðið og útilokaði ekki að geng-
ið yrði til samninga við SÁÁ í stað-
inn. Það er og vilji Þorleifs Gunn-
laugssonar, fulltrúa VG, sem
heldur því fram að stöðin hafi
blekkt borgarráð.
„Mín yfirlýsing [25. júní] byggð-
ist á yfirlýsingu þáverandi hús-
eigenda [Hagur ehf.]. Ég trúði
henni,“ segir stjórnarformaðurinn,
Gestur Pétursson. „Og við vorum
tilbúnir með þetta áður en húseig-
andinn fór í þrot, en biðum staðfest-
ingar frá borginni. Þetta hefur því
ekki verið neinn blekkingaleikur,“
segir Gestur.
Framtíð samstarfsins sé nú háð
borginni. „Við höfum verið að ræða
við Byr-sparisjóð um fjármögnun,
en það fæst engin niðurstaða í slík-
ar viðræður um fjárskuldbindingar,
nema afstaða borgarinnar sé skýr,“
segir hann.
Því sé beðið ákvörðunar nýs
meirihluta. Heilsuverndarstöðin sé
tilbúin til samstarfs. - kóþ
Talsmaður Heilsuverndarstöðvar ehf. kveðst bíða eftir Reykjavíkurborg:
Segist engan hafa blekkt
HEILSUVERNDARSTÖÐIN Stjórnar-
formaður fyrirtækisins segist hafa trúað
því að húsnæðið að Hólavaði yrði til
reiðu. Hann bíði nú ákvörðunar borgar-
yfirvalda.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Þróa svefngreining-
arbúnað fyrir börn
Fyrirtækið Nox Medical hefur undanfarin tvö ár þróað búnað til greiningar á
svefnvandamálum barna. Um ellefu prósent barna þjást af svefntruflunum sem
geta haft slæmar afleiðingar. Framleiðsla á búnaðinum er að hefjast í Kína.
LANDHELGISGÆSLAN Togarinn Gull-
ver NS-12 frá Seyðisfirði fékk
gamalt breskt tundurdufl í trollið
þegar skipið var við veiðar á Aust-
fjarðamiðum. Duflið hafði ekki
látið mikið á sjá eftir rúm 60 ár í
sjónum og skipstjórinn hafði því
samband við Landhelgisgæsluna,
eins og venja stendur til.
Varðskipið Týr kom að skipinu
um klukkan sjö í fyrrakvöld með
sprengjusérfræðinga Landhelgis-
gæslunnar sem var flogið austur.
Þeir færðu duflið frá Gullver og
yfir í varðskipið.
Varðskipið sigldi með duflið á
grunnsævi út af Vöðlavík í Reyðar-
firði þar sem því var sökkt.
Sprengjusérfræðingarnir köfuðu
því næst niður að duflinu og festu
við það sprengihleðslu. Var duflið
síðan sprengt um klukkan hálftíu.
Ekki er vitað hvort duflið var virkt
en grunur lék á því. Höfðu skip-
verjar séð í sprengjuhleðsluna og
hvellhettuna þegar duflið var
komið upp á dekk.
Þær upplýsingar fengust hjá
Gæslunni að þessi aðferð væri
ekki algeng en afar örugg. Íslensk
skip fá reglulega tundurdufl í
veiðarfærin enda var þeim sökkt í
sjóinn í seinni heimsstyrjöldinni í
þúsunda tali. Duflið sem hér um
ræðir var breskt og var því ætlað
að granda kafbátum Þjóðverja
sem biðu þess að ráðast á skipa-
lestir bandamanna.
- shá
Togarinn Gullver frá Seyðisfirði kallaði á Landhelgisgæsluna vegna sprengihættu:
Fengu tundurdufl í trollið
DUFLIÐ Breskt dufl sem ætlað var að
granda kafbátum Þjóðverja. MYND/LHG
SÖKKT Duflið var sprengt á um 20 metra
dýpi. MYND/LHG
UMHVERFISMÁL Náttúruverndar-
samtök Íslands telja Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur borgarstjóra tala
með „háskalegum skammtíma-
sjónarmiðum“ þegar hún fullyrðir
að Bitruvirkjun „renni styrkari
stoðum undir samfélagið“.
Þetta gangi þvert gegn niður-
stöðum Skipulagsstofnunar um
umhverfisáhrif virkjunarinnar.
Stofnunin sagði að óvíst væri um
áhrif virkjunar á jarðhitaauðlind-
ina.
„Og svo er engan veginn víst að
orkan sé þarna,“ segir Árni
Finnsson. Verði hafist handa við
Bitruvirkjun í ár, gæti hún verið
tilbúin árið 2012. - kóþ
Náttúruverndarsamtökin:
Hanna Birna
talar háskalega
Telur þú að Íslendingar verði
Ólympíumeistarar í handknatt-
leik karla?
Já 78,4%
Nei 21,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Sóttir þú einhvern viðburða
menningarnætur?
Segðu skoðun þína á vísir.is
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON,
SVEINBJÖRN HÖSKULDSSON,
HJÖRTUR ARNARSON OG KOR-
MÁKUR HERMANNSSON Allir
starfa þeir hjá Nox Medical við
að þróa svefngreiningarbúnað
fyrir börn. Framleiðsla er að
hefjast í Kína og gert er ráð fyrir
að hvert tæki muni kosta um sex
hundruð þúsund krónur
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SVEFNGREININGARBÚNAÐURINN
KJÖRKASSINN