Fréttablaðið - 24.08.2008, Síða 20

Fréttablaðið - 24.08.2008, Síða 20
VERSLUN SÆLKERANS SIGUR SÁÐMANNSINS Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar matur kemur út mánaðarlega með sunnudagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Emilía Örlygsdóttir, Roald Eyvinds- son og Hrefna Sigurjónsdóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: NordicPhotos/Getty Images Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Klara Kristín Arndal,María Þóra Þorgeirsdóttir, Marta María Friðriksdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Vera Einarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, Ljósmyndir: Frétta- blaðið Auglýsingar: Stefán P. Jones spj@frettabladid.is MATREIÐSLUBÓKIN Á uppskerutímanum er nauðsynlegt að hafa við höndina matreiðslubók sem hefur að geyma upplýsingar um og uppskriftir úr kartöflum. Í bókinni Blálandsdrottn- ingin sem gefin er út af Sölku er rakin saga kartöfl- unnar á Íslandi með áherslu á upphaf kartöfluræktar. Höfundurinn, Hildur Hákonardóttir, ferðaðist frá Eyrarbakka til Perú til að kynna sér hvernig fólk þró- aði ræktunaraðferðir og hvaða tegundir kartöflu henta best í mismunandi umhverfi. Ásamt þessum fróðleik má í bókinni finna ýmsar uppskriftir af margskonar kartöfluréttum alls staðar að úr heiminum. Þá má bæði finna nýrri og mun eldri upp- skriftir af innlendum sem erlendum réttum. Uppskriftir í uppskeru Haustið er komið. Uppskerutíð. Upp um holt og hæðir, ofan í frjórri grund og grænum beðum, má sjá glampa eftirvæntingar og uppskeruþrá í grænum höndum sem fálma og róta í ákafri leit að gjöfum náttúru í skiptum fyrir fræ og sprota sáðmannsins í vor. Tími ferskleikans er allsráðandi; hvort sem það er fyrir augum eða í pottum, pönnum, ofnum og skálum hins frjósama eldhúss Íslands. Með uppskerunni fylgja sterkir litir, skerpa í formi og unaðsleg angan af lífi, mold og hreinum, ómenguðum bragðgæðum sem vekja og örva sköpunargleði og hugmyndaflug. Lífið er nefnilega gott meira en gulrót, þegar kemur að girnilegri uppskeru, og þótt heilnæmt fæði og hollur lífsstíll sé á flestra vörum nú til dags, er enginn að tala um takmörkun við hrátt sellerí og undið hvítkál á matmálstímum. Eftir vellystingar sumars og ófáar stundir við grillaða sykurpúða og kókosbollur í áli er beinlínis dásemd að fara í dálitla naflaskoðun á eigin lífsstíl, kynnast lífrænni matartegundum, og auka hluta grænmetis og ávaxta á matardisknum, því úrval uppskeru- bænda eykst ár frá ári og tært sælkeralíf að útbúa heilsurétti úr íslenskri jörð. Þegar haustar enn meir, harðnar á dalnum og mesti glans og ferskleiki uppskerunnar er á undanhaldi er skynsamlegt að sýna fyrirhyggju og sulta, súrsa, frysta og niðursjóða grænmeti í öllum sínum fjölbreytileika bragðs, litadýrðar og upplif- unar. Þar er hægt um vik, því margar af okkar mætustu vinaþjóðum, sem syni og dætur eiga á Íslandi, hafa aldalanga reynslu í slíkum kosti og láta örugglega af hendi gómsætar uppskriftir og aðferðafræði sem íslenska þjóðin getur hleypt inn í eigið eldhús til að auðga og njóta í matargerð þegar mesti ferskleikinn er úr uppskerunni. Þangað til skulum við brillera með skræpótta litapallettu uppskerunnar og leyfa sköpunarkraftinum að fá útrás á striga hins óétna; baka dísætar bláberja- bökur, fitandi ávaxta- grauta, úttútnaða kartöflurétti með rjómaostum og furðukáli, gulrótasúp- ur og hnúðkálssnúða, eða hvaðeina sem magamálið þráir. Njótum þess að vera heilnæm og hamingjusöm! 2 matur Markaðurinn Mosskógum Á markaðnum í Mosskógum í Mosfellsdal, sem er opinn alla laugardaga frá júlí og fram í miðjan september, má finna mikið úrval af fersku grænmeti og sælkeravöru. Jón Jóhannsson ræktar grænmetið á staðnum en auk þess er þar að finna uppskeru frá bændum í nágrenninu. Á boðstólum eru paprikur, gulrætur, kartöflur, svartkál, grænkál, brokkolí og ýmiss konar salat. Eins er boðið upp á frosinn rabarbara, lífrænt ræktað krydd og ferskan og reyktan silung. Þá eru á boðstólum nokkrar tegundir af heimagerðu pestói, chutney og sultu frá hinum ýmsu aðilum. Markaðurinn er opinn frá tólf til fjögur og er gjarnan margt um manninn. Hægt er að fá sér sæti með kaffibolla og hleypa börnunum út á tún. Að sögn Birtu Jóhannesdóttur kryddrækt- anda una margir sér markaðnum daglangt. Söngkonan Sigrún Hjálm-týsdóttir hefur ávallt verið mikið fyrir sveppi og tínt þá bæði hér heima og erlendis. „Mér finnst gaman að borða sveppi. Þeir sjúga vel í sig og geyma bragðið sem maður vill fá. Eins er ákveðinn ævintýra- ljómi yfir því að fara út í skóg og tína sveppi.“ Með aukinni trjárækt hefur villtum sveppum fjölgað hér á landi og tínir Sigrún þá einna helst í Heiðmörk. „Þeir vaxa gjarnan í kringum furu- og harðviðartré en nauðsynlegt er að kynna sér teg- undirnar vel áður en farið er af stað því ekki er alltaf sjáanlegur munur á þeim sveppum sem má borða og þeim sem eru eitraðir. Það er því ákveðin kúnst að tína sveppi og sveppur er ekki alltaf það sama og sveppur,“ segir Sigrún og hlær. Fyrir þá sem ekki treysta sér til að tína sveppi segir Sigrún fremur gott úrval af þeim í mörgum af stórmörkuðum landsins. „Ég kaupi gjarnan sveppi sem ég veit að sjúga vel í sig en svo er líka gaman að kaupa aðra sem eru skrítnir í útliti, bara svona upp á lúkkið,“ segir Sigrún og lætur lesend- um í té ljúffenga rísottó-uppskrift með blönduð- um sveppum. - ve ÆVINTÝRI LÍKAST Sigrún Hjálmtýsdóttir nýtur þess að fara út í skóg og tína sveppi. Henni finnst auk þess gaman að matreiða úr hráefninu enda eru sveppir þeim eiginleika gæddir að sjúga það bragð sem óskað er eftir vandlega í sig. RÍSOTTÓ MEÐ BLÖNDUÐUM SVEPPUM Forréttur fyrir 8-10 manns Hollt og gott! 2 rauðlaukar 10 hvítlauksrif 5 litlar gulrætur 1 lítill púrrulaukur biti af sellerírót olía 5 dl Arborío grjón 1 l sveppasoð (sveppakraftur + vatn) 2 glös hvítvín (matarvín) 250 gr blandaðir sveppir smjör salt eftir smekk parmesan ostur bæði fínt rifinn og rifinn i flögur Laukarnir og rótargrænmetið er skorið smátt og steikt við vægan hita. Hvítlauksrifin sprengd (ekki pressuð) og látin malla með. Þá er grjónunum blandað saman við og þau böðuð upp úr græn- metinu og olíunni. Á annarri pönnu er smjörið brætt og olíu blandað saman við svo smjörið brenni ekki. Skornir sveppirnir settir út í og látnir malla þar til vökvinn úr þeim er uppurinn. Þá er þeim blandað saman við grjónin og grænmetið. Sveppasoðinu og hvítvíninu er bætt út í í smá skömmtum og vökvinn alltaf látinn gufa upp á milli. Rétturinn er tilbúinn þegar allur vökvi er uppgufaður. Hræra vel, en varlega. Ef grjónin eru of þurr má bæta olíu eða vökva (hvítvíni) við. Skreytt með steiktum sveppasneiðum og parmesanflögum. Fínrifinn osturinn er svo notaður með að ósk hvers og eins. Sigrún tínir aðallega sveppi í Heiðmörk en segir mikilvægt að kynna sér margar tegundir vel áður en haldið er af stað. FR ÉT TA BL A Ð IÐ /G VA SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM: E Eftir-réttur M Meðlæti Til hátíða- brigða Hvunndags og til hátíðabrigða Kökur Hollt Hvunn- dags

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.