Fréttablaðið - 24.08.2008, Side 22

Fréttablaðið - 24.08.2008, Side 22
Radísa er ætileg rót plöntu sem rækt- uð hefur verið í Evrópu frá því fyrir tíð Rómaveldis. Nafnið kemur frá gríska orðinu „raphanus“ og þýðir „skyndilega sýnileg“. Nafnið kemur til af því að plantan er einstaklega fljót að vaxa og dafna. Algengasta tegund radísa á Íslandi er vorradísan, eða Evrópuradísan eins og hún er stundum kölluð. Hún lifir best í svölu veðri, er smágerð og verður fullvaxta á þremur til fjórum vikum. Radísur innihalda mikið magn C-vítam- íns, fólínsýru og kalíums. Þær eru jafnframt góð uppspretta B6-vítamíns, magnesíums og kopars. Rótin er því holl og kaloríu- snauð fylling en einn bolli af radís- um inniheldur aðeins um 20 kílókaloríur. Vinsælast er að setja rótina í salöt en öll plantan er þó ætileg og efsti parturinn getur verið notaður sem blaðgrænmeti. Rótin er yfirleitt borðuð hrá en harðari tegundir er hægt að sjóða. Til að gera radísurnar stökkari er gott að láta þær liggja í ísköldu vatni í einn til tvo tíma. Radísur hafa lengi verið notaðar í lækn- ingaskyni og eiga þær að geta hjálpað til við hósta, maga-, lifrar- og gallblöðruvandamál, hægðatregðu og liðagigt. - mþþ 1 3 2 1. Radísur eru fljótar að vaxa og er nafn þeirra tilkomið vegna þess. 2. Radísur eru meðal annars ríkar af C-vítamíni, fólínsýru og kalíum. 3. Rótin er yfirleitt notuð í salöt en einnig er hægt að nota efsta part plöntunnar sem blaðgrænmeti. Nú er skólastarf að hefjast í grunnskólum landsins og nestisvertíð foreldranna gengin í garð. Hvað barnið á hafa með sér í nesti getur vafist fyrir foreldrum, en það þarf ekki að vera flókið. Umfram allt þarf nestið að vera hollt og fjölbreytt. Grænmeti á borð við nýuppteknar gulrætur og rófur, papriku eða gúrkur skorið niður í strimla og pakkað inn í filmuplast er tilvalið meðlæti með lítilli sam- loku. Harðsoðið egg er oft vinsælt í nestisboxið, svo og upprúllaðar ost- og skinkusneiðar, rúsínur eða aðrir þurrkaðir ávextir. Epli skorin í sneiðar, appel- sína sneidd í báta eða ananas skorinn í bita. Mögu- leikarnir eru endalausir. Oft er skemmtilegra að hafa mikið af litlum skömmtum í nestisboxinu, heldur en eitthvað eitt stórt. Börnin fá síður leiða á nestinu ef úrvalið er mikið. Kjörið er að sleppa hugmyndafluginu lausu og byrja að sneiða, skera, rúlla, flysja og smyrja. Handavinna nestis- vertíðarinnar á ekki að vera kvöð heldur tími hollra hugmynda. Góða skemmtun! - kka Tilvalið er að nota ferska ávexti og grænmeti í nestisboxið. NESTISVERTÍÐ FORELDRA HAFIN Radísur HRÁEFNIÐ: Radísa Skyndilega sýnileg

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.