Fréttablaðið - 24.08.2008, Qupperneq 73
SUNNUDAGUR 24. ágúst 2008 29
Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn.
Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans.
Landsbankadeild karla
Landsbankadeild kvenna
sun. 24. ágú.
sun. 24. ágú.
sun. 24. ágú.
sun. 24. ágú.
sun. 24. ágú.
sun. 24. ágú.
17. umferð
18:00
18:00
18:00
18:00
18:00
18:00
Þór/KAþri. 26. ágú.
þri. 26. ágú.
þri. 26. ágú.
þri. 26. ágú.
þri. 26. ágú.
16. umferð
Afturelding
Valur Breiðablik18:00
18:00
HK/Víkingur KR18:00
Fjölnir Keflavík18:00
Stjarnan 18:00 Fylkir
Þróttur R.
Keflavík
HK
Fylkir
Valur
Fram
FHFjölnir
ÍA
Grindavík
Breiðablik
KR
Enska úrvalsdeildin:
Blackburn-Hull 1-1
1-0 Jason Roberts (37.), 1-1 Richard Garcia (39.).
Liverpool-Middlesbrough 2-1
0-1 Mido (69.), 1-1 sjálfsmark (86.) 2-1 Steven
Gerrard (90.+3).
Newcastle-Bolton 1-0
1-0 Michael Owen (70.).
Stoke-Aston Villa 3-2
1-0 Liam Lawrence (29.), 1-1 John Carew (62.),
2-1 Ricardo Fuller (80.), 2-2 Martin Laursen (82.),
3-2 Mamady Sidibe (90.+3).
Tottenham-Sunderland 1-2
0-1 Kieran Richardson (54.), 1-1 Jermaine Jenas
(72.), 1-2 Djibril Cissé (81.).
West Brom-Everton 1-2
0-1 Leon Osman (64.), 0-2 Yakubu Aiyegbeni
(75.), 1-2 Roman Bednár (88.).
Fulham-Arsenal 1-0
1-0 Brede P. Hangeland (21.)
STAÐA EFSTU LIÐA
Liverpool 2 2 0 0 3-1 6
Blackburn 2 1 1 0 4-3 4
Hull City 2 1 1 0 3-2 4
Newcastle 2 1 1 0 2-1 4
Chelsea 1 1 0 0 4-0 3
Aston Villa 2 1 0 1 6-5 3
Bolton 2 1 0 1 3-2 3
West Ham 1 1 0 0 2-1 3
Everton 2 1 0 1 4-4 3
Middlesbrough 2 1 0 1 3-3 3
Fulham 2 1 0 1 2-2 3
Sunderland 2 1 0 1 2-2 3
Arsenal 2 1 0 1 1-1 3
Stoke City 2 1 0 1 4-5 3
ÚRSLITIN
KÖRFUBOLTI Logi Gunnarsson
skoraði 27 stig fyrir íslenska
karlalandsliðið í lokaleik liðsins á
æfingamótinu á Írlandi en það
dugði þó skammt því liðið tapaði
með 25 stigum fyrir bandaríska
háskólaliðinu Notre Dame, 90-65.
Notre Dame var 52-28 yfir í
hálfleik og var með leikinn í
sínum höndum allan tímann. Logi
skoraði langmest í íslenska liðinu
en Jakob Örn Sigurðarson kom
honum næstur með 9 stig.
Þetta var síðasti leikur íslenska
liðsins fyrir Evrópukeppnina þar
sem fyrsti leikurinn er gegn
Dönum þann 10. september. - óój
25 stiga tap fyrir Notre Dame:
Skotsýning Loga
dugði skammt
27 STIG Logi Gunnarsson var langstiga-
hæstur. FRÉTTABLAÐIÐ/XXX
FÓTBOLTI Breiðablik og Valur
mætast í 17. umferð Landsbanka-
deildar karla í kvöld en Blikar
slógu Valsmenn einmitt út úr
bikarnum á sama stað fyrr í
sumar.
Valsmenn hafa reyndar aðeins
haft tvö stig upp úr krafsinu í
síðustu sjö heimsóknum sínum til
Blika í Kópavoginn og það eru
liðin rétt tæp 16 ár síðan þeir
unnu þar síðast. Valsliðið vann þá
5-0 stórsigur á Blikum 26. ágúst
aðeins þremur dögum eftir að
Hlíðarendapiltar urðu bikar-
meistarar.
Valsmenn hafa unnið fjóra
útileiki í röð og eru því líklegir til
að bæta gengi sitt en því má þó
ekki gleyma að Blikar hafa ekki
tapað síðan 23. júní eða í síðustu
tíu deildar- og bikarleikjum
sínum. - óój
Valsmenn heimsækja Blika:
Unnu þá síðast
í Kópavogi 1992
HETJAN Jóhann Berg Guðmundsson
tryggði Blikum 1-0 sigur á Val í bikarn-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Liverpool stal þremur
stigum á heimavelli á móti Middl-
esbrough í 2. umferð ensku úrvals-
deildarinnar en Arsenal þurfti
aftur á móti að sætta sig við tapa
fyrir nágrönnum sínum í Fulham.
Það voru dramatísk sigurmörk
sem settu svip sinn á leikina í gær,
Stoke vann 3-2 sigur á Aston Villa
með marki í uppbótartíma, Steven
Gerrard skoraði einnig sigurmark
Liverpool í uppbótartíma og þá
skoruðu þeir Michael Owen og
Djibril Cisse báðir sigurmörk eftir
að hafa komið inn af bekknum.
Steven Gerrard varð enn á ný
gulls ígildi fyrir Liverpool þegar
hann tryggði liðinu 2-1 heimasigur
á Middlesbrough með marki á
fjórðu mínútu í uppbótartíma. Það
stefndi allt í sigur Middlesbrough
eftir að Mido kom þeim yfir en
Jamie Carragher skaut í Emanuel
Pogatetz og jafnaði leikinn fimm
mínútum fyrir leikslok.
„Ég var mjög ánægður með
fyrstu 15 mínúturnar en eftir það
spiluðum við ekki vel. Við gerðum
alltof mörg jafntefli á Anfield á
síðasta tímabili en nú höfum við
sýnt að við höfum sigurvegara í
okkar liði sem geta gert út um
leiki,“ sagði Rafael Benitez, stjóri
Liverpool.
„Það er erfitt að kyngja þessu
tapi og mínir menn voru niður-
brotnir í búningsklefanum. Við
áttum skilið stig og miklu meira
en það,“ sagði Gareth Southgate,
stjóri Middlesbrough.
Norðmaðurinn Brede P. Hange-
land tryggði Fulham 1-0 sigur á
Arsenal með marki strax á 21.
mínútu eftir sofandahátt varnar-
manna Arsenal eftir hornspyrnu.
Þetta var aðeins annar heimasigur
Fulham á Arsenal í 8 leikjum lið-
anna í úrvalsdeildinni.
„Fulham byrjaði miklu betur en
við áttum seinni hálfleikinn. Ful-
ham á samt hrós skilið, þeir ógn-
uðu alltaf og vörðust vel. Það
verður að byrja alla leiki af krafti
og okkur var refsað fyrir að gera
það ekki,“ sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal.
Michael Owen kom inn á sem
varamaður og tryggði Newcastle
1-0 sigur á Grétari Rafni Steins-
syni og félögum í Bolton. „Það
vilja allir að Owen verði áfram
hjá okkur og ég veit að hann vill
spila hér áfram,“ sagði Kevin
keegan, stjóri Newcastlke eftir
leik. Keegan ætlaði bara að nota
Owen í 15 mínútur en varð að
setja hann fyrr inn á þegar Obaf-
emi Martins meiddist. Shay
Given, mark vörður Newcastle,
varði á undan vítaspyrnu frá
Kevin Nolan.
Djibril Cisse skoraði sigurmark
Sunderland í sínum fyrsta leik
fyrir félagið þegar hann tryggði
liðinu 2-1 sigur á White Hart
Lane. Tottenham hefur þar með
tapað tveimur fyrstu leikjunum
sínum á tímabilinu. Juande Ramos
valdi Dimitar Berbatov ekki í
leikmannahópinn en hann sagði
Búlgarann ekki vera með einbeit-
inguna í lagi. Cisse kom inn á sem
varamaður og skoraði sigurmark-
ið á 83. mínútu.
„Við missum okkur ekkert yfir
útisigri á Tottenham,“ sagði Roy
Keane, stjóri Sunderland, eftir
leik. „Það sagði mér einhver að
Djibril hefði líka skorað í sínum
fyrsta leik fyrir Liverpool en það
skiptir engu hver útkoman varð
þá. Þetta er frábær byrjun því
hann æfði aðeins einu sinni með
okkur fyrir þennan leik,“ sagði
Keane. ooj@frettabladid.is
Nóg af dramatískum sigurmörkum
Liverpool er með fullt hús í ensku deildinni eftir að Steven Gerrard tryggði liði sínu sigur í uppbótartíma.
Michael Owen tryggði Newcastle sigur á Bolton og Arsenal tapaði óvænt fyrir nágrönnum sínum í Fulham.
OWEN SKORAR Grétar Rafn Steinsson
stendur stjarfur eftir að Michael Owen
hefur skorað. NORDICPHOTOS/GETTY
SIGURMARK Á SÍÐUSTU STUNDU Leikmenn Liverpool fagna sigurmarki Stevens Gerrard. NORDICPHOTOS/AFP