Fréttablaðið - 24.08.2008, Page 74

Fréttablaðið - 24.08.2008, Page 74
30 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR PEKING 2008 Guðmundur Guð- mundsson landsliðsþjálfari var einbeittur og virtist vera kominn niður á jörðina þegar landsliðið tók lokaæfingu sína fyrir úrslita- leikinn gegn Frökkum í dag. „Maður svaf svo sem ekki mikið í nótt og er enn að átta sig á þessu. Við erum ekkert að dvelja við síð- asta leik og undirbúningur hófst að sjálfsögðu strax fyrir Frakka- leikinn,“ sagði Guðmundur sem er ánægður með að mæta Frökkum sem flestir telja vera besta lið heims. Erum ekki orðnir saddir „Það er stórkostlegt tækifæri. Við ætlum að selja okkur dýrt og erum ekki saddir. Þegar menn eru komn- ir þetta langt gefa menn allt til þess að ná gullinu,“ sagði Guð- mundur en strákarnir hafa ekki gleymt því að þeir kjöldrógu Frakkana á HM 2007. Frakkarnir hafa eflaust ekki gleymt því held- ur. „Það er allt mögulegt í sportinu og við höfum margsannað að við getum gert góða hluti gegn öllum liðum. Frakkar eru þar engin undan tekning. Þeir eru frábærir en ekkert yfirburðalið,“ sagði Guðmundur en hvað telur hann vera lykilinn að sigri í dag? Búnir undir þrenns konar vörn „Við þurfum að spila vel á öllum sviðum handboltans. Vörnin verð- ur auðvitað að vera frábær og sóknarleikurinn líka lifandi. Ef vörnin kemur þá fylgir vonandi markvarslan í kjölfarið líkt og hún hefur verið að gera. Við erum ann- ars búnir undir allt sem Frakkar geta boðið upp á. Meðal annars þrjú varnarafbrigði. Við verðum tilbúnir,“ sagði Guðmundur. Strákarnir tóku fund um klukk- an eitt nóttina eftir Spánarleikinn þar sem undirbúningur fyrir Frakkaleikinn hófst formlega. Lokaæfingin fór svo fram eftir hádegi í gær og í kjölfarið var vídeófundur. Svo verður aftur vídeófundur í dag fyrir leik. Sjáum ekki eftir fundunum „Það er síðasti fundurinn af mörg- um. Við sjáum samt ekki eftir þessum fundum og þessari vinnu sem við höfum lagt í undirbúning- inn. Hún hefur skilað okkur mikl- um árangri,“ sagði Guðmundur sem fagnar því að leikurinn sé um miðjan dag að staðartíma í staðinn fyrir seint um kvöld líkt og gegn Spánverjum. „Ég er mjög feginn að þurfa ekki að bíða of lengi. Það er oft verra. Á móti kemur að við miss- um morgunæfinguna sem ég hefði ekkert haft á móti. Þetta verður gríðarlega spennandi en aðalatrið- ið er að við komum með sömu grimmd til leiks og í öðrum leikj- um í þessu móti. Ég treysti strák- unum fyllilega til þess að mæta með hana að vopni,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson. Við ætlum að selja okkur dýrt Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að strákarnir muni mæta tilbúnir í úrslitaleikinn gegn Frökkum í dag. Hann segir menn ekki vera sadda og treystir því að menn mæti grimmir til leiks. ELSKAÐUR Guðmundur Guðmundsson á góðri stundu eftir síðustu æfingu fyrir úrslitaleikinn á móti Frakkklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PEKING 2008 „Ég lenti í lyfjaprófi eftir leikinn þannig að ég var bara að losa mig við vökvann sem ég drakk þar alla nóttina,“ sagði skógar björninn Sigfús Sigurðsson aðspurður hvernig nóttin eftir Spánarleikinn hefði verið. „Annars var ég að reyna að sofna en maður lá bara í rúminu og skiptist á því að brosa og gráta. Ég held ég hafi ekki sofnað fyrr en sex eða sjö um morguninn. Það var mikið tilfinningaflæði og þetta reyndi mikið á mann. Að vita að maður sé að fara í úrslitaleik og vita að maður sé nú þegar búinn að rita nafn sitt á spjöld íþrótta- sögunnar er magnað. Maður var að meðtaka það undir lok leiksins og þá rann allt af stað,“ sagði Sig- fús. Hann segir menn ekki vera hætta og stefnan sé að taka gull í dag. „Nú verða menn að halda dampi og klára þetta með stæl. Frakk- arnir eru fantagóðir en við erum ekkert síðri. Auðvitað misstu þeir mikið þegar Jerome Fernandez meiddist en eru samt frábærir. Aðall þeirra er vörn og hraðaupp- hlaup rétt eins og hjá okkur. Þetta mun snúast um hvort liðið verði grimmara. Ég tel að það lið sem verði grimmara og hafi stærra hjarta muni bera sigur úr býtum,“ sagði Sigfús sem er ekki í vafa um hvort liðið það sé en hann hafði fyrr í mótinu lofað medalíu. „Ég vil meina að við séum með besta lið í heimi. Gullið er okkar,“ sagði Sigfús borubrattur og fullur sjálfstrausts. – hbg Íslenski björninn Sigfús Sigurðsson er fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn á móti Frökkum í dag: Tel að við séum með besta lið í heimi FASTUR FYRIR Sigfús Sigurðsson er fullur sjálfstrausts og ætlar að láta Frakkana finna fyrir sér í úrslitaleiknum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PEKING 2008 Stórskyttan Logi Geirsson var hress sem fyrr eftir lokaæfingu landsliðsins í Peking í gær. Hann er fullur sjálfstrausts líkt og venjulega og mun ef að líkum lætur láta verulega til sín taka í dag. Logi tók hvað eftir annað af skarið í undanúrslitaleiknum á móti Spánverjum og skoraði alls 7 mörk úr aðeins 11 skotum, þar af sex þeirra af 9 metrunum. „Ég ætla að koma brjálaður inn í leikinn eins og allt liðið. Stefnan er að sjálfsögðu að taka gullið,“ sagði Logi ákveðinn en hann átti líkt og flestir félaga hans erfitt með svefn eftir Spánarleikinn. „Ég man ekki hvenær ég sofn- aði. Held ég hafi vakað til fjögur eða fimm enda var spennufallið mikið. Maður fór bara að labba á milli herbergja til þess að faðma menn og segja strákar, come on, einn leikur enn,“ segir Logi þegar hann rifjar upp nóttina eftir Spán- arleikinn. „Þetta er bara snilld. Jákvæð orka og allur þessi pakki. Maður er bara á því sviði núna að við erum ekki búnir að ná þessu og eigum eftir að klára þennan pakka. Svo tekur maður gleðina alveg út þegar þetta er búið,“ sagði Logi sem getur vart lýst því hvernig síðustu dagar hafa verið. „Maður er bara í öðrum heimi. Menn eru á einhverju sviði sem erfitt er að lýsa. Það er unun að fá tækifæri til þess að vinna gull og spila gegn Frökkum í úrslitaleik. Líklega skemmtilegasta liðið í keppninni til þessa ásamt okkur. Það eru einfaldlega tvö bestu lið keppninnar að mætast í úrslitum. Það er bara að duga eða drepast,“ sagði Logi Geirsson. - hbg Logi Geirsson segir menn vera í öðrum heimi í Peking: Tvö bestu liðin mætast í úrslitum ÓDYSSEIFUR Ólafur Stefánsson líkti Loga við eina stærstu sögu- persónu heimsbókmenntanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GLEÐISTUND Sigfús Sigurðsson óskar Guðmundi Guðmundssyni til hamingju með sætið í gullleiknum. HENRY BIRGIR GUNNARSSON Skrifar frá Peking henry@frettabladid.is HANDBOLTI Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska handboltalands- liðsins, fann sig ekki í fyrri viku handboltakeppni Ólympíuleik- anna en var hins vegar búinn að setja í fimmta gír í viku tvö. Ólafur var „aðeins“ með 2,3 stoðsendingar í leik og 43 prósenta skotnýtingu í fyrstu fjórum leikjunum á móti Rússum, Þjóðverjum, Kóreumönnum og Dönum. Landsliðsfyrirliðinn hefur hins vegar nýtt 55 prósent skota sinna og gefið 8,7 stoðendingar að meðaltali í síðustu þremur leikjum, á móti Egyptum, Pólverjum og Spánverjum. - óój Ólafur Stefánsson á ÓL: Skipti í fimmta gír í viku tvö FRÁBÆR Í VIKU TVÖ Ólafur Stefánsson hefur komið að 12,3 mörkum að meðal- tali í síðustu 3 leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson eru allir í sjö manna úrvalsliði Ólympíuleikanna en tilkynnt var um val liðsins í gær. Þrír Frakkar, mótherjar Íslands í gullleiknum í dag, eru einnig í liðinu en það eru markvörðurinn Thierry Omeyer, línumaðurinn Bertrand Gille og vinstri skyttan Daniel Narcisse. Sjöundi maður- inn er síðan spænski hornamaður- inn Albert Rocas. - óój Handboltakeppni leikanna: Þrír Íslendingar í liði mótsins BESTI VINSTRI HORNAMAÐURINN Guð- jón Valur Sigurðsson er í liði mótsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Snorri Steinn Guðjóns- son er með tveggja marka forustu á Spánverjann Juanín García í baráttunni um markakóngstitilinn og Ólafur Stefánsson hefur fimm stoðsendinga forskot á Frakkann Nikola Karabatic á listanum yfir flestar stoðsendingar. Alexander Petersson er í efsta sæti yfir stolna bolta en hann hefur stolið alls níu boltum. - óój Tölfræði handboltans á ÓL: Snorri, Ólafur og Alex efstir MARKAHÆSTUR Snorri Steinn Guðjóns- son hefur skorað 44 mörk á leikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.