Fréttablaðið - 24.08.2008, Síða 78
34 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég ákvað að flytja til Melbourne í
Ástralíu eftir hvatningu frá stúlku
sem ég kynntist þegar ég bjó í
Danmörku,“ segir Sandra Jóhanns-
dóttir, 26 ára ljósmyndari. Sandra
hefur búið í Melbourne síðustu
fimm mánuðina, þar sem hún mun
opna sína fyrstu ljósmynda sýningu
í byrjun september.
Sandra nam fyrst ljósmyndun í
Ljósmyndaskóla Sissu og vann við
tímaritið Veru áður en hún hélt til
Danmerkur, þar sem hún lagði
stund á nám í stafrænni ljósmynd-
un í Köbenhavns tekniske skole.
„Ég hafði verið með það svona á
bak við eyrað að opna sýningu og
hugsaði með mér að viðfangsefnið
yrði eflaust ástralskt,“ útskýrir
Sandra. Svo fór þó ekki. „Fyrst
eftir að ég kom til Ástralíu var
hins vegar alltaf eitthvað að minna
mig á Ísland. Múm hélt tónleika,
hérna var haldin íslensk kvik-
myndahátíð og svo spilaði Sigur
Rós hérna í byrjun ágúst. Þegar ég
fann hvað það virtist vera til stað-
ar mikill áhugi fyrir landinu ákvað
ég að hafa yfirskrift ljósmynda-
sýningarinnar Isolation, eða Ein-
angrun, með myndum frá Íslandi
sem sýna samband fólksins og
náttúrunnar og hversu dramatískt
landið getur verið, en það er ein-
mitt það sem ég elska við Ísland,“
segir Sandra.
Ljósmyndir hennar verða til
sýnis í Louey and Lane Gallery í
Melbourne, og stendur sýningin
yfir frá 3. til 23. september.
Aðspurð segist Sandra njóta lífs-
ins í Melbourne til hins ýtrasta.
„Borgin er kölluð listamanna-
borg Ástralíu, enda er menn-
ingarlífið mjög áhugavert og
það er mikið um tónleika og
alls kyns listasýningar,“ segir
Sandra, sem kveðst þó stefna
á að flytja aftur til landsins
þegar eins árs landvistar-
leyfi hennar í Ástralíu
lýkur. „Þá vona ég bara
að ég fái tækifæri til að
vinna við það sem ég
elska að gera – að taka
myndir,“ segir Sandra.
alma@frettabladid.is
SANDRA JÓHANNSDÓTTIR: HELDUR LJÓSMYNDASÝNINGU Í MELBOURNE
Færir Áströlum íslenska einangrun
Innritun hefst miðvikudaginn 20.
og stendur til 27. ágúst.
Nemendur skólans þurfa að staðfesta umsóknir sínar á skrifstofu
skólans Engjateigi 1 sem er opin virka daga kl. 12 - 18.
Jafnframt eru nemendur beðnir að afhenda afrit af stundaskrám sínum.
Nokkur pláss laus í forskóla í Árbæ og Breiðholti. Síðustu forvöð að
staðfesta umsóknir um nám Nemendur skólans þurfa að staðfesta
umsóknir sínar í síðasta lagi 27. ágúst.
Skrifstofa skólans Engjateigi 1 er opin virka daga kl. 12 - 18.
Skólastjóri
Hrönn Brynjarsdóttir um son sinn, Ant-
oine Hrannar Fons, sem sat nýlega fyrir í
ID magazine og er nýútskrifaður leikari.
„Hann hefur alltaf haft
brennandi áhuga á leiklist og
um leið og hann hafði þroska
til var hann kominn upp á
borð að leika fyrir fólk. Hann
er hann sjálfur á myndum og
hefur alltaf
myndast
vel. Ég er
stolt af
mínum
strák,
enda
góður
strák-
ur.“
Hvað er að frétta? Allt frábært. Er núna að æfa leikritið Óvita sem
frumsýnt verður næsta laugardag hjá Leikfélagi Akureyrar og er að
vinna með svo æðislegum krökkum sem umvefja mann krúttlegheit-
um. Svo er ég að springa af stolti af íslenska landsliðinu í handbolta.
Augnlitur: Grænn.
Starf: Leikari.
Fjölskylduhagir: Einhleypur.
Hvaðan ertu? Reykjavík, en ólst upp til tíu ára aldurs í Tansaníu í Afríku.
Ertu hjátrúarfullur? Já, frekar. Þegar ég var unglingur var mér til
dæmis sagt að það boðaði ógæfu að stíga á ræsishlemm á götu. Ef
manni varð á að gera það mátti bjarga sér frá ósköpum með því á fá
einhvern til að banka þrisvar á bakið á sér. Stend mig stundum að því
að banka á mitt eigið bak.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Top Gear. Mér þykir mest gaman að
horfa á fræðsluefni.
Uppáhaldsmatur: Krónhjörtur og rækjuhringurinn sem mamma gerir.
Fallegasti staðurinn: Borgarfjörður eystri er með þeim fallegustu. Svo
er fjarska fallegt hér á Akureyri.
iPod eða geislaspilari: iPod.
Hvað er skemmtilegast? Að hlæja!
Sérstaklega í góðra vina hópi.
Hvað er leiðinlegast? Að bíða.
Helsti veikleiki: Ég er skelfilega eyðslu-
samur.
Helsti kostur: Jákvæður, hress og hef gaman
af lífinu.
Helsta afrek: Að hafa eignast góða vini.
Mestu vonbrigðin: Hlýt að hafa bælt niður minninguna,
dettur ekkert í hug.
Hver er draumurinn? Halda áfram að vinna við það sem
ég er að gera.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Viktor Már, vinur minn er án
efa með þeim fyndnustu sem ég þekki. Er líka svo heppinn
að fá að vinna með honum hér fyrir norðan hjá leikfélaginu.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Neikvæðni.
Hvað er mikilvægast? Heilsan.
HIN HLIÐIN EINAR ÖRN EINARSSON LEIKARI
Afrek að hafa eignast góða vini
23.09.1976
Gallerí Dynjandi á Bíldudal opn-
aðist aftur í vor eftir að hafa legið
niðri um skeið. Galleríið er rekið
af Jóni Þórðarsyni, fyrrverandi
kaupmanni, en hann rekur einnig
ferðaþjónustu í bænum og stund-
ar útgerð. Á Bíldudal búa um 220
manns og þykir mörgum eflaust
skrítið að í bænum sé rekið gall-
erí en engin matvöruverslun. „Ég
lagði niður matvöruverslunina
árið 2002, þegar fólki fækkar
svona mikið þá er erfitt að reka
verslanir. Heimamenn komast þó
í nauðsynjavörur á veitinga-
húsinu Vegamótum,“ segir Jón.
Hann kveðst sjálfur ekki vera
listamaður, en er mikill áhuga-
maður um list. „Gallerí Dynjandi
nýtist ekki bara sem sýningar-
rými heldur eru hér einnig haldn-
ir tónleikar og leiksýningar,“
útskýrir Jón, en að auki býðst
listamönnum vinnuaðstaða í gall-
eríinu.
Sex sýningar hafa verið haldn-
ar í galleríinu síðan í vor og nú
stendur yfir sýning þýsku lista-
konunnar Hönnu Woll. „Hún vinn-
ur verk sín í stein og gaf einmitt
bænum eitt verk sem sýnir þrjú
tröll á siglingu og táknar það
höfuð vindáttirnar á Bíldudal,“
segir Jón, sem mun starfrækja
galleríið áfram í vetur. „Það er
ekki komin föst dagskrá, en það
verða nokkrar sýningar í gangi,“
segir Jón. - sm
Rekur gallerí fyrir 220 íbúa
VINNUR Í STEIN Hanna Woll, frá Þýska-
landi, sýnir verk sín í Dynjanda fram í
september.
MYND/JÓN ÞÓRÐARSON
ÍSLENSK
DRAMATÍK
Dularfullt Jökulsárlón,
eyðibýli og yfirgef-
in þvottavél eru á
meðal myndefna
Söndru á ljósmynda-
sýningu hennar í
Melbourne, sem
hefur yfirskriftina
Einangrun.
ABANDONMENT
MYSTERY
DECAY
NÝTUR LÍFSINS
Sandra kann
vel við sig í
Melbourne,
enda borgin
oft sögð vera
listamanna-
borg Ástralíu.
MYNDIR/SANDRA
JÓHANNSDÓTTIR
Þorvaldur Davíð Kristjánsson er
floginn aftur til New York og leitar
nú húsnæðis, en skólaganga hans í
Juilliard heldur áfram
von bráðar. Eins og
margur veit getur það
verið snúið að finna
íbúð við hæfi í stóra
eplinu, en fátt
stoppar þennan
unga leikara,
sem flestir
treysta á að
verði næsta
stórstjarna
Íslands.
Valgerður Rúnarsdóttir dansari
gerir það gott án íslenska dans-
flokksins. Valgerður er búsett í
Brussel, en hún dansar í belgíska
verkinu Origine, sem
hefur verið á ferðalagi
frá því í febrúar og
heldur því áfram út
júní 2009. Þá er hún
að vinna með
Ernu Ómars-
dóttur að nýju
verki. Hún sér því
væntanlega ekki
eftir því að hafa
horfið á vit ævin-
týranna í Evrópu.
Andrea Magn-
ús dóttir, sem stofnaði fyrirtækið
Júníform með Birtu Björnsdóttur
fyrir nokkrum árum en hvarf síðar
frá því, stundar nú nám í fata-
hönnun í Kaupmannahöfn. Hún
hefur á síðustu árum
meðal annars komið
að hönnun línunnar
Moss fyrir Gallerý 17
en er nú með enn
stærri áform. Innan
skamms mun hún
opna vefverslun-
ina andrea.is, þar
sem hún hyggst
selja hönnun sína
undir merkinu
AndreA.
- kbs, sun
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Spánverja
2 Þrír
3 Sölva Ford