Fréttablaðið - 24.08.2008, Page 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
London
Køben
8 x í viku
9 x í viku
með ánægju
Haustboðinn ljúfi!
Tryggðu þér flugsæti fyrir næsta vetur á betra
verði til London, Kaupmannahafnar, Berlínar,
Varsjár, Friedrichshafen eða Alicante.
Bókaðu núna á www.icelandexpress.is
50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
Það var sérstök stund að sitja í taugatrekktum hópi Íslendinga
á írskum pöbb á Strikinu á föstu-
dag og fylgjast með leiknum. Það
virtist gefa hópnum ákveðna
hugar fró að hér í Köben fengjum
við að fylgjast með landsliðinu ná
þessum æðislega árangri. Það var
ekki síður stemmning að sjá kvöld-
fréttirnar hjá Dönunum þar sem
talað var um „olympisk sensation“
og sýnt viðtal við rífandi montinn
forseta Íslands sem lýsti því yfir
að ekki yrði unnið meira á Íslandi
þann daginn, nú væri fest hjá þjóð-
inni.
MÉR fannst ég skynja skilning
Dana á gleði forsetans enda kom
fram að árangur Íslendinga væri
helt fantastisk. Hérna þykjumst
við þó jafnframt skynja að örli á
öfund, að það sé kalt a toppnum,
því vitaskuld hefur verið kannað
hvar verði hægt að horfa á úrslita-
leikinn. Og það var kurr í hópi
Íslendinga þegar einhverjir fóru
að halda því fram að Daninn ætl-
aði ekki að sjónvarpa leiknum,
mögulega fengi handboltinn að
víkja fyrir úrslitaleik i vatnapóló.
En auðvitað er það vitleysa og ein-
hver knæpa borgarinnar verður
hertekin fyrir leikinn.
VIÐ rifjuðum það upp nokkrar
konur þar sem við sátum yfir
leiknum góða að við eigum flestar
sammerkt að hafa verið skotnar í
landsliðsmanni. Það er meira en
handboltinn sem heillar. Ég man
eftir því að hafa horft á leiki með
pabba 10 ára og brosað með sjálfri
mér þegar ég áttaði mig á þessu,
enda lítil ástæða til að deila þess-
um kenndum með pabba gamla.
Ætli það sé ekki hluti af þroska-
ferli hverrar íslenskrar konu að
verða skotin í landsliðsmanni í
handbolta. Aðrar íþróttir hafa ekki
framkallað þjóðarhetjur eins og
handboltaíþróttin.
HANDBOLTAMENN hafa feng-
ið sess sjómannsins, sem er hin
rammíslenska karlmannshetja.
Engir aðrir hafa komist nærri
þeim þó reynt hafi verið að segja
þjóðinni í góðærinu að hin íslenska
glansmyndahetja væri banka-
maðurinn, sem hefði innsýn,
snerpu og hraða sem aðrir banka-
menn heimsins ekki byggju yfir.
En nú blasir sókn bankamanna
ekki alveg við á meðan handbolta-
liðið heldur uppi heiðri þjóðarinn-
ar. Spennan verður óbærileg en
skemmtileg í dag og í öllu falli
blasir við að tilefni til að fagna
verður ærlegt fyrir íslenska helg-
ar gesti í Köben – áfram Ísland!
Strákarnir okkar
Í dag er sunnudagurinn 24.
ágúst, 237. dagur ársins.
5.47 13.30 21.10
5.24 13.15 21.03