Fréttablaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Að undanförnu hafa borist frétt-ir sem fengið hafa hamingju-
strauminn til að leika um þjóðina
eins og ljúfur andvari. Sú fyrsta
var á þá leið að taílensk fimm
manna fjölskylda í Fellahverfinu
hefði fengið stóra lottóvinninginn
sem virtist aldrei ætla að ganga
út. Við getum verið viss um að því
fé verður ekki eytt í mengandi
fjallajeppa sem aðeins verður not-
aður til Kringluferða. Ekki fyrr
höfðum við jafnað okkur á láni
Breiðhyltinga en íslenska lands-
liðið í handbolta vann til silfur-
verðlauna á Ólympíuleikunum.
VIÐ fengum líka silfur í almenni-
legheitum þegar Keníamaðurinn
Paul Ramses fékk að snúa aftur til
Íslands. Ekki spurning að við
skörtuðum nú gulli um háls ef við
hefðum sleppt manninum við að
dúsa þessar vikur suður á Ítalíu
fjarri eiginkonu og bráðungum
syni. Af lýsingunum að dæma
dvaldi Paul Ramses víst ekki á
lúxushótelinu Luna 4 við Lignano-
strönd þar sem íslenskir ferða-
menn flatmöguðu eitt sinn hver
um annan þveran. En gleðin held-
ur áfram því innan skamms mætir
hópur palestínskra kvenna og
barna þeirra á Skagann. Ég heyri
á frænkum mínum sem þar búa að
heimamenn ætli að bíða þeirra
með heitt á könnunni og upprúll-
aðar pönnukökur. Að minnsta kosti
verður flóttamönnunum tekið vel.
EN ÞAÐ eru ekki alltaf jólin því í
sömu fjölmiðlum og flutt hafa
þessar góðu fréttir blasa við frá-
sagnir um þrengingar á lánamark-
aði, aukna verðbólgu og börn sem
ganga sjálfala um bæinn þar sem
ekki fæst starfsfólk á frístunda-
heimilin. Svo finnst ríkinu ljós-
mæður fullhysknar til að þær eigi
skilið að fá laun í samræmi við
menntun. Konur geta auðvitað
bara jógað sig í gegnum fæðing-
una. Það er annaðhvort í ökkla eða
eyra. Heimsmynd blaðanna rímar
fullkomlega við þunglyndislyfjaát
þessarar hamingjusömustu þjóðar
í heimi.
KREPPAN gefur okkur tilefni til
að hægja ferðina og huga að því
sem raunverulega skiptir máli. Í
ljósi frétta síðustu vikna grunar
mig að eftir nokkur ár eigum við
eftir að líta aftur til þessa tíma og
átta okkur á því að fyrst okkur bar
gæfa til að deila því sem við þó
áttum með öðrum hljótum við að
hafa haft það alveg ágætt. Lífið
lék við okkur og fór með okkur
bæði í stórfiskaleik og fallna
spýtu. Þá skiptir engu máli hver
fór með sigur af hólmi, heldur að
allir fái að vera með.
Eru ekki bara
alltaf jólin?
Í dag er laugardagurinn
30. ágúst, 243. dagur ársins.
6.05 13.28 20.49
5.44 13.13 20.40
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18. 00
12.00 - 18.00
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
995,-
JAZZINN
Í BORGINNI!
26.-30. ÁGÚST