Fréttablaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 50009. september 2008 — 245. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ÓMAR ÁGÚSTSSON
Breyttist til hins betra
eftir tvö ár í bootcamp
• heilsa • nám • matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
FLUTNINGAR
Hverju skal halda og
henda í flutningum
Sérblað um flutninga
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Ómar ómar er að setja á fót fyrirtæki sem mun standa fyrir ýmsum tónlistarviðburðum. Hann hefur stundað bootcamp í tvö á
Stef i á
TRÖNUBER eru nýjung í matargerð hérlend-is. Þau eru talin vinna gegn þvagfærasjúkdómum. Ástæðan er talin vera sú að í berjunum er efni sem kallast proanthocyanid sem kemur í veg fyrir að bakt-
eríurnar geti fest sig við þvagblöðruvegginn. Nánari
upplýsingar á www.heilsuhusid.is.
Fagnar aukinni
samkeppni
Hermanni Hreiðars-
syni finnst frá-
bært að leika
fyrir Harry
Redknapp.
ÍÞRÓTTIR 26
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson,
fyrrum landsliðsþjálfari, segir að
leikmenn íslenska landsliðsins
þurfi að hafa trú á eigin getu sem
og liðsins til að ná árangri.
„Við erum með fullt af fram-
bærilegum leikmönnum í liðinu
og við verðum að standa fast í
fæturna og ætla okkur hlutina,“
segir Guðjón sem var ánægður
með Noregsleikinn og þá helst
vinnuframlag leikmanna. Hann
segir liðið þó geta gert enn betur.
- hbg / sjá síðu 26
Guðjón um landsliðið:
Þurfum að
hafa trúna
flutningar Flytja á öllum tím-um sólarhringsinsNý sendibílastöð með nýja þjónustu
BLS. 2
ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008
Flutningar Á þínum vegum.. .
Stöð 2 fyrirmyndin
Nýtt útlit sjónvarpsstöðvarinnar
Sky þykir sláandi líkt útliti Stöðvar 2
FÓLK 30
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
GEBERIT
Innbyggður kassi
og upphengt salerni
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
Fær andlitslyftingu
Sveinsbakarí fagnar 100 ára
afmæli á árinu.
TÍMAMÓT 18
Nýtt lag í spilun
Áður óútgefið lag með
Vilhjálmi Vilhjálmssyni,
Tölum saman, fer í spilun
á öldum ljósvakans.
FÓLK 30
ÞRIÐJUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Hafist var handa í gær við niðurrif
einbýlishússins í Lálandi 3 í Fossvogi.
Umrætt hús var selt fyrir um 70 milljónir króna
í maí í fyrra. Í fyrstu stóð til af hálfu nýrra eig-
enda að endurnýja húsið en svo miklar skemmdir
munu þó hafa komið í ljós við undirbúning þess
verks að á endanum var ákveðið að byggja nýtt
hús. Í staðinn rís nú hús sem er 100 fermetrum
stærra en hið 230 fermetra stóra hús sem nú
víkur
Eigendur Lálands 3 eru hjónin Margrét Gunn-
arsdóttir og Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar,
sem sinnir þjónustu vegna MasterCard, Maestro
og American Express greiðslukorta. - gar
Kreppan virðist ekki skollin á af fullum þunga í Fossvogsdalnum:
Forstjóri rífur nýkeypt hús
LÁLAND 2 Einbýlishús byggt 1975 hverfur af yfirborði jarðar og víkur fyrir nýju húsi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ORKUMÁL „Það hefur ekki verið
ákveðið hversu margir virkjana-
kostirnir verða endanlega, en mér
finnst ólíklegt að fleiri bætist við.
Ég held að það sé í rauninni búið
að kemba öll svæði þar sem virkj-
un er möguleg,“ segir Svanfríður
Inga Jónasdóttir, sem er formað-
ur verkefnisstjórnar annars
áfanga rammaáætlunar um nýt-
ingu vatnsafls og jarðvarma.
Í skýrslu um fyrsta áfanga
rammaáætlunarinnar er gert ráð
fyrir 21 hugsanlegum vatnsafls-
virkjunarkosti, þótt einungis hafi
tekist að fjalla um nítján þeirra í
lokaáfanga hennar. Sá þekktasti
af þessum möguleikum, Kára-
hnjúkavirkjun, hefur nú þegar
litið dagsins ljós.
Vinnu við annan áfanga ramma-
áætlunar á að ljúka á næsta ári, en
þar verður að mestu fjallað um
jarðvarmasvæði.
Birt hefur verið svokölluð fram-
vinduskýrsla um annan áfangann
og þar eru tilgreind nítján jarð-
varmasvæði, sem meta skuli.
Framvinduskýrslan er frá maí
2007 og er þar ennfremur rætt um
tólf vatnsaflsvirkjunarkosti sem
ekki komust inn í fyrsta áfanga
rammaáætlunar. Meðal þeirra er
Bjallavirkjun í Tungnaá og Hvítá.
Áfanga- og framvinduskýrsl-
urnar eru víðtækar og skoða kosti
sem ætla mætti að yrðu umdeild-
ir, svo sem þegar mælst er til að
jarðvarmasvæði við Geysi verði
metið.
„Skýrslurnar var búið að vinna
þegar núverandi verkefnastjórn
kom til. Sú skoðun var uppi að
meta ætti alla hugsanlega mögu-
leika til þess að geta raðað þeim
eftir fýsileika, með samanburði,“
segir Svanfríður Jónasdóttir.
Hún tekur fram að annar áfang-
inn sé með öðrum blæ en sá fyrri,
því nú sé einnig fjallað um vernd-
un náttúrusvæða.
Sex möguleg jarðvarmasvæði í
framvinduskýrslunni voru sett til
hliðar sérstaklega í stjórnarsátt-
mála núverandi ríkisstjórnar.
Nýting þeirra er ekki útilokuð í
sáttmálanum, en svæðin eru „und-
anskilin nýtingu og jarðraski“ þar
til endanleg rammaáætlun lítur
dagsins ljós. - kóþ
Rammaáætlun með
um 50 virkjanakosti
Í birtum skýrslum um rammaáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir ríflega
50 virkjanakostum á Íslandi. „Ólíklegt að fleiri bætist við,“ segir formaður verk-
efnisstjórnar. Nokkur svæðanna hafa verið sett til hliðar í stjórnarsáttmála.
LÆGIR Í DAG Í fyrstu verður stíf
suðaustan átt sunnan og vestan til
en lægir eftir hádegi. Hægari annars
staðar. Víða rigning eða skúrir en
þurrt Norðanlands. Hiti 10-16 stig.
VEÐUR 4
12
13
13
12
13
VIÐSKIPTI Fjallað er um íslensku
bankana í nýjasta hefti fagritsins
Acquisitions Monthly. Í greininni
er staðhæft að íslenska banka-
kerfið virðist hafa staðið af sér
þær þrengingar sem hafa gengið
yfir fjármálaheiminn og sagt að
útlit sé fyrir að „íslenska ævintýr-
ið“ muni enda vel. Greinarhöfund-
ur er mjög bjartsýnn á útlitið hjá
íslensku bönkunum, sem hann
telur hafa mjög sterka eiginfjár-
stöðu. - msh/ sjá síðu 12
Umfjöllun um bankana:
Ísland stóð af
sér storminn
VIÐSKIPTI Gengi íslensku krónunnar
veiktist um eitt prósent í gær og
endaði gengisvísitalan í rúmum
166 stigum.
Bandaríkjadalur hefur styrkst
verulega síðustu daga gagnvart
helstu gjaldmiðlum og kostar nú
rúmar 89,3 krónur.
Hann hefur ekki verið dýrari
síðan á þjóðhátíðardaginn fyrir
rúmum sex árum en þá var hann að
koma niður úr methæðum gagn-
vart krónu. Bandaríkjadalur hefur
styrkst um 41 prósent frá áramót-
um og evra um 36 prósent, en
krónan hefur fallið um 37,6 prósent
á sama tíma. - jab
Krónan niður um prósent:
Dollarinn ekki
dýrari í sex ár