Fréttablaðið - 09.09.2008, Síða 6
6 9. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Fjölmargar grænmetis- og
ávaxtategundir má fá í íslensk-
um verslunum. Úrvalið hefur
aukist til mikilla muna síðustu
árin og má tala um algjöra
sprengingu í því sambandi. Mik-
ill verðmunur er á tegundum og
því borgar sig fyrir neytendur að
vera vel vakandi. Þegar í boði eru
sex tegundir af misdýrum eplum
eða tíu tegundir af misdýr-
um melónum er nauðsyn-
legt að neytandinn passi
að starfsmaður á kassa
stimpli inn rétta tegund.
Erla Gunnarsdóttir
skrifar: „Ég fór í Bónus um
daginn og keypti mér
hvítkálshaus í eina
rammíslenska kjöt-
súpu. Vegna þess
hversu athugul ég
var sá ég að stelpan
á kassanum stimpl-
aði inn Iceberg-salat
sem átti að kosta 348
krónur en ég leiðrétti
hana og benti henni á að
þetta væri hvítkál og þá
kostaði hausinn 103 krónur.
Mikill munur þar á!“
Sennilega er ekki hægt
að ætlast til þess að kassastarfs-
menn séu útlærðir í ávaxta- og
grænmetisfræðum og ólíklegt
má telja að verslunareigend-
ur splæsi í yfirgrips-
mikil námskeið fyrir
starfsfólkið. Í ljósi
þessa er það enn og
aftur neytandans
að vera á varðbergi
við kassann.
Verum á varðbergi við kassana:
Ekki sama kálhaus og kálhaus
HVAÐ ER ÞETTA? Jöklasalat eða
hvítkál?
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
Villaitana
Alicante – Spánn
4.–11. október
Fararstjóri: Snorri Steinn
Þórðarson
Verð á mann í tvíbýli
136.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og
öðrum greiðslum, frítt fyrir
golfsettið í flug, gisting með
morgunverði á Villaitana, fimm
golfhringir á Levante, akstur til og
frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
Manor of
Groves
England
2.–5. október / 9.–12. október
Verð á mann í tvíbýli
79.700 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og
öðrum greiðslum, frítt í flug fyrir
golfsettið, gisting með morgunverði
á Manor of Groves, 4 golfhringir,
akstur á Stansted í lok ferðar.
Golfvertíðinni lýkur
aldrei hjá okkur!
Stundaðu golf þar sem þeir bestu spila og láttu dekra við þig á
dásamlegum hótelum þess á milli. Hjá Express ferðum finnur þú
golfferð við þitt hæfi, hvort sem þú ert byrjandi eða reynslubolti.
Einnig skipuleggjum við sérsniðnar golfferðir fyrir einstaklinga og
hópa. Kynntu þér þjónustuna og úrvalið á www.expressferdir.is
Hanbury
Manor
England
2.–5. október / 9.–12. október
Verð á mann í tvíbýli
93.800 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og
öðrum greiðslum, frítt í flug fyrir
golfsettið, gisting með morgunverði
á Marriott Hotel Hanbury Manor,
4 golfhringir, akstur á Stansted
í lok ferðar.
Golfferðir
KÚBA, AP Fellibylurinn Ike fór
ómildum höndum um Kúbu í gær,
blés fjölmörg íbúðarhús um koll og
þeytti sjónum yfir strandbyggðir.
Hátt í milljón manns þurftu að yfir-
gefa heimili sitt.
Fellibylurinn stefnir nú yfir
Mexíkóflóa og gæti komið á land í
Louisiana eða Texas í Bandaríkjun-
um síðar í vikunni.
Ike mældist þriðja stigs fellibyl-
ur þegar hann fór yfir Kúbu í gær,
en áður hafði hann valdið usla á
Bahamaeyjum og aukið enn á flóð-
in í Haítí, sem kostað hafa á fjórða
hundrað manns lífið.
Engar fréttir bárust af mannfalli
á Kúbu af völdum óveðursins, en
óttast var að bylurinn færi yfir
höfuðborgina Havana áður en hann
kveður eyjarskeggja, en þar í borg
er fjöldi gamalla húsa í niðurníðslu
sem gætu farið afar illa út úr
óveðrinu.
„Ég hef aldrei á ævi minni séð
nokkurn skapaðan hlut sem líkist
þessu. Annað eins afl og þetta
vekur manni skelfingu,“ sagði Olga
Alvarez, sjötug kona í Camaguey,
sem hreiðraði um sig í stofunni
sinni ásamt eiginmanni sínum og
barnabarni þeirra. „Við gátum
varla neitt sofið síðustu nótt. Það
vara bara búmm, búmm, búmm.“
Miðja fellibylsins fór fram hjá
skammt sunnan við bæinn Camagu-
ey og felldi fjölda staura, sem lentu
á bifreiðum sem lagt var í röðum í
þröngum götum bæjarins. Nokkur
gömul múrsteinshús hrundu til
grunna og víða rifnuðu tré upp með
rótum.
Löng og góð reynsla er af því á
Kúbu að rýma hús, sem eru á
hættusvæðum, til að forðast mann-
fall. Að þessu sinni fóru meira en
900 þúsund manns að heiman og
biðu af sér veðrið þar sem hættan
var ekki eins mikil.
Óvíst er hvar fellibylurinn geng-
ur næst á land, en það verður ein-
hvers staðar á suðurströnd Banda-
ríkjanna, líklega Louisiana þar sem
íbúar eru enn að jafna sig eftir
fellibylinn Gústav, sem var þar á
ferð í síðustu viku.
Á Key West í Flórída höfðu tugir
þúsunda manna forðað sér burt um
helgina, íbúar jafnt sem ferða-
menn. Stjórnvöld þar hvöttu íbúa
til að halda sig að heiman fram á
miðvikudag og báðu ferðamenn um
að koma ekki fyrr en um næstu
helgi. Allar líkur bentu til þess að
Ike kæmi hvergi nærri Key West,
þótt svo hafi virst um tíma.
gudsteinn@frettabladid.is
Ike rústar Kúbu og
stefnir á Bandaríkin
Níu hundruð þúsund Kúbumenn fóru að heiman meðan fellibylurinn Ike reið
yfir eyjuna. Eyðileggingin var mikil en engar fréttir bárust af dauðsföllum. Í
suðurríkjum Bandaríkjanna búa menn sig nú undir hamfarir enn á ný.
Á REIÐHJÓLI Í ÓVEÐRINU Þessi Kúbumaður lét hvorki steypiregn né storm á sig fá og
hjólaði sína leið í Cameguey á Kúbu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ert þú hlynnt(ur) fyrirhugaðri
Bjallavirkjun?
Já 47,2%
Nei 52,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að beita brottvísunum á
erlenda brotamenn meira en
nú er gert?
Segðu skoðun þína á visir.is
LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn voru í gær úrskurðaðir
í gæsluvarðhald til 12. september, en þeir eru
grunaðir um að hafa átt þátt í hnífsstungu á heimili
við Mánagötuna. Lögreglan leitar enn tveggja vegna
málsins.
Lögreglunni barst tilkynning rétt eftir hádegi á
sunnudag frá manni sem sagði hóp manna vera að
reyna að ryðjast inn í íbúð sína. Þegar lögregluna bar
að garði voru mennirnir á bak og burt en sá sem
tilkynnti um atburðinn var með stungusár á læri eftir
hníf. Sá sem fyrir stungunni varð sagði í samtali við
fréttastofu Stöðvar 2 í gærkvöldi að hann hefði verið
að verja systur sína fyrir ágangi mannanna. Þeir
hefðu setið að sumbli í innréttuðum bílskúr tengdum
húsinu, þar sem þeir dveljast. Síðan hafi þeir með
háreysti heimtað að verða hleypt inn í íbúðina.
Þegar systur fórnarlambsins bar að og fór inn í
íbúðina hafi mennirnir reynt að brjótast inn á eftir
henni, en maðurinn varnað þeim inngöngu. Einn
mannanna hafi þá lagt til hans með hnífi og þeir síðan
flúið af vettvangi.
Ekki eru önnur tengsl á milli hinna meintu árásar-
manna og þess sem fyrir árásinni varð en að þeir eru
nágrannar. - kóp
Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna hnífsstungu við Mánagötu á sunnudag:
Tveir í varðhaldi, tveggja leitað
MÁNAGATA Lögreglan leitar enn tveggja manna vegna hnífs-
stunguárásarinnar.
LÖGREGLUMÁL Stangaveiðifélag
Reykjavíkur hótar nú veiðiþjóf-
um í Hraunsfirði á Snæfellsnesi
kæru til lögreglu. „Þeir leggja
net með bökkunum og jafnvel
hefur sést til manna við ádráttar-
veiði við botn fjarðarins þar sem
hrygningarstöðvar laxfiska er að
finna,“ segir á svfr.is. „Virðist
sem lítill hópur manna af
Snæfellsnesi fari fram með
þessum hætti og stundi sjálftöku
í firðinum í formi netaveiði og
hunsi öll lög og reglur svo og rétt
þeirra sem veiðiréttinn leigja.“
Eru stangveiðimenn síðan hvattir
til að taka niður bílnúmer
veiðiþjófa. - gar
Veiðiþjófar í Hraunsfirði:
Grunur beinist
að heimafólki
KJÖRKASSINN