Fréttablaðið - 09.09.2008, Qupperneq 46
30 9. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Ljósanótt.
2. Glacierworld.
3. 1998.
LÁRÉTT
2. skófla, 6. tveir eins, 8. hluti verk-
færis, 9. dýrahljóð, 11. tveir eins, 12.
glæsileiki, 14. trappa, 16. tveir eins,
17. æðri vera, 18. for, 20. í röð, 21.
umkringja.
LÓÐRÉTT
1. ákaflega, 3. tveir eins, 4. umhverfis,
5. ái, 7. töf, 10. bók, 13. arr, 15. dugn-
aður, 16. verkur, 19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. moka, 6. ff, 8. orf, 9. urr,
11. ii, 12. reisn, 14. stigi, 16. tt, 17.
guð, 18. aur, 20. mn, 21. króa.
LÓÐRÉTT: 1. ofur, 3. oo, 4. kringum,
5. afi, 7. frestur, 10. rit, 13. sig, 15.
iðni, 16. tak, 19. ró.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Bestu veitingastaðir Íslands eru
auðvitað sushi-staðir, enda er
ferskleikinn þeirra bragð. Vilji
maður spennandi sushi þá er
hraðlestin í Iðuhúsinu málið.
Vilji maður rómó með sinni
heittelskuðu þá er sushi take
out í fiskihúsunum málið, enda
toppar fátt að sitja og horfa á
sólina setjast yfir smábátahöfn-
inni.“
Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri.
Íslenskar auglýsingastofur og
markaðsdeildir hafa stundum
orðið uppvísar að því að fá að
„láni“ erlendar auglýsingar, her-
ferðir, lógó eða markaðsímyndir.
Nýjasta dæmið er Símaauglýs-
ingin fyrir „Núllið“ sem er alveg
eins og auglýsing frá T-mobile.
Það hljóta því að teljast ánægju-
leg tíðindi þegar dæmið snýst
við, þegar erlendir risar stela
íslenskum hugmyndum.
Breska sjónvarpsstöðin Sky
hóf á dögunum nýja „rebrand-
ing“ herferð og kynnti til sögunn-
ar nýtt útlit og nýtt lógó á Sky
One.
Allt er þetta sláandi líkt útliti
Stöðvar 2, blá glerbrot á flugi.
Leó Lúðvíksson hjá Sagafilm á
heiðurinn af
Stöðvar 2-útlit-
inu og var það
kynnt til sögunn-
ar fyrir um ári.
„Við lítum nú
bara á þetta sem
heiður,“ segir
Pálmi
Guðmundsson,
sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2. „Sky
er eitt eftirtekt-
arverðasta fyr-
irtækið í þess-
um bransa og
við lítum einna
mest til þess að
því er varðar fyrirmynd. Því er
það eiginlega bara sérstaklega
ánægjulegt að Sky skuli fá lánað
hjá okkur.“
En á að fara í hart og kæra?
„Nei, það væri afar kjánalegt
að fara að standa í málaferlum,“
segir Pálmi og hlær. - drg
Sky stelur frá Stöð 2
KJÁNALEGT AÐ
STANDA Í MÁLA-
FERLUM Pálmi
Guðmundsson,
sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2.
BLÁ GLERBROT Á FLUGI Útlit Stöðvar 2 og
Sky er sláandi líkt.
www.takk. is
Ólöf Arnalds spilar á WOMEX
(World Music Expo) í Sevilla á
Spáni um mánaðamótin októb-
er/nóvember. Þetta er langstærsta
heimstónlistarhátíð í heimi og
hefur verið haldin
árlega síðan 1994.
Ólöf verður fyrst
Íslendinga til að
spila á hátíðinni.
Nýrri plötu, sem
Ólöf hugðist gera
á árinu, hefur
verið slegið á
frest fram á
næsta ár.
Ljósanótt í Reykjanesbæ tókst gríð-
arlega vel. „Þetta er miklu flottara
en á menningarnótt,“ heyrðist víða
eftir flugeldasýninguna og
ljóst að verkefnastjórinn
Ásmundur Friðriks-
son og samstarfsfólk
hans getur verið stolt
af árangrinum.
Þá kom vera
hermanna á
Nato-æfingu
á djamminu
í Keflavík
mönnum í
nostalgíu fíling
með tilheyrandi
handalögmál-
um.
Börkur Gunnarsson vinnur fyrir
Nató í Afganistan og á í mestu
erfiðleikum með að skoða sumar
íslenskar heimasíður vegna ritskoð-
unar. Nato-sían bannar honum að
skoða síðu Jónasar Kristjánsson-
ar, sem væri kannski skiljanlegt
ef sían myndi ekki
líka banna honum
að skoða bjorn.is.
Börkur hefur áður
unnið fyrir Nató í
Írak og gerir þeirri
reynslu skil í bók
sem væntanleg
er á næstunni.
- drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er náttúrulega bara vit-
leysa og það verður að stoppa
þessa menn af,“ segir Ívar Örn
Þórhallsson sem hefur höfðað mál
á hendur tímaritinu Séð og heyrt
vegna umfjöllunar þess um hann.
Frétt birtist um Ívar í tímaritinu í
lok ágúst. Fyrirsögnin á forsíðu
blaðsins var „Sonur Ladda. Hommi
á Barnalandi“ Í stefnu Ívars er
þess krafist að fyrirsögnin verði
dæmd dauð og ómerk. Ívar fer
fram á tvær milljónir króna í
miskabætur, að dómurinn verði
birtur í Séð og heyrt og að blaðið
greiði 400 þúsund krónur til að
kosta birtingu í tveimur dagblöð-
um. Þá stefnir Ívar útgáfufélaginu
Birtingi, sem gefur út Séð og
heyrt, fyrir birtingu á ljósmynd-
um án leyfis. Krefst hann tæpra
260 þúsund króna í skaðabætur og
600 þúsund króna í miskabætur.
Eins og umrædd fyrirsögn gefur
til kynna er Ívar sonur skemmti-
kraftsins Þórhalls Sigurðssonar -
Ladda. Ívar er afar ósáttur við
umfjöllun blaðsins, segir hana
alranga og að hún hafi skaðað
mannorð hans. Málavextir eru
þeir að Ívar tók þátt í umræðum á
spjallsíðunni ER.is. Þar birtist
mynd af honum förðuðum og í
kjölfarið fór af stað umræða um
að hann liti út fyrir að vera sam-
kynhneigður. Ívar segist hafa
tekið þátt í umræðunni í gríni.
Þegar hann svo fór aftur inn á síð-
una rúmum sólarhring síðar og
umræðan var enn í gangi hafi
hann leiðrétt hana. „Svo hringir
Séð og heyrt tveimur dögum síðar.
Ég sagði þeim að þetta hafi verið
grín sem fór úr böndunum. Ég sé
ekki samkynhneigður, mér þyki
bara alltof vænt um kvenfólk til
þess. Svo veit ég ekki fyrr en blað-
ið kemur út. Og þá lít ég allt í einu
út eins og barnaníðingur,“ segir
Ívar. Hann segist sérstaklega
ósáttur við þessa Barnalandsteng-
ingu, enda hafi umræðan ekki
farið fram þar.
Myndirnar sem birtust með
fréttinni segir Ívar að hafi verið
teknar í leyfisleysi af læstri
Myspace-síðu. „Þessar myndir
voru af mér og fyrrverandi konu
minni óléttri. Hún var auðvitað
líka mjög óhress þegar fólk fór að
hringja í hana út af þessari
frétt.“
Lögmaður Ívars er Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson og er Ívar von-
góður um málið vinnist og honum
verði dæmdar miskabætur. „Þeir
eru að birta vitleysu trekk í trekk.
Mér finnst þetta síst of há upp-
hæð enda er verið að stimpla mig
sem barnaníðing. Ætli þeir hafi
ekki líka fengið meira út á aug-
lýsingar og sölu vegna þessa. Mér
finnst að sem flestir sem hafa
lent í blaðinu ættu að kæra þá og
fara fram á háar bætur, svo þeir
finni fyrir því.“
Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð
og heyrt, var erlendis þegar
Fréttablaðið náði af honum tali í
gær. Hann kvaðst ekki hafa heyrt
af stefnu Ívars og því ekki geta
tjáð sig um málið að svo stöddu.
hdm@frettabladid.is
ÍVAR ÖRN ÞÓRHALLSSON: KREFST MILLJÓNA VEGNA RANGRAR FRÉTTAR
Sonur Ladda í dómsmál
vegna fréttar Séð og heyrt
ÓSÁTTUR OG KREFST MILLJÓNA Ívar Örn Þórhallsson, sonur skemmtikraftsins Ladda,
er ósáttur við frétt blaðsins Séð og heyrt um sig. Hann hefur höfðað mál gegn blað-
inu og krefst hárra fébóta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það er ekki alveg tilbúið. Við
erum að leggja lokahönd á það og
það kemur á næstu dögum, við
erum að vona fyrir helgi,“ segir
tónlistarmaðurinn Magnús
Kjartansson um nýtt lag með
söngvaranum Vilhjálmi
Vilhjálmssyni sem
nefnist Tölum
saman.
Eins og komið
hefur fram
hefur Magnús
unnið að nýrri upp-
töku á þessu týnda
lagi og nýtur hann
liðsinnis tónlist-
armanna á borð
við Gunnlaug
Briem, Vilhjálm Guð-
jónsson og Þóri Bald-
ursson í hljóðverinu.
„Þetta er gert árið 2008,
þannig að það mun bera
keim af því,“ segir
Magnús um lagið og
bætir því við að það
eigi eftir að koma á
óvart. „Það hefur hver
tími sinn sjarma og sitt
sánd en þetta verður á
2008-sándi. Þetta
verður alveg eins og
þetta hafi verið
unnið með Villa í síðustu viku.“
Tölum saman verður að finna á
hátíðarútgáfu síðustu plötu Vil-
hjálms, Hananú, sem kemur út
skömmu fyrir tónleika til heiðurs
söngvaranum í Laugardalshöll í
október. Maðurinn á bak við þá er
einmitt Magnús Kjartansson. Um
tvenna tónleika verður að ræða
en uppselt varð á þá fyrri eftir að
fjögur þúsund miðar seldust á
tuttugu mínútum. Magnús segist
hafa orðið undrandi á þessum
frábæru viðbrögðum. „Ég var
viss um að það yrði full höll einu
sinni en núna er fólk búið að
hrekja mann í að halda aðra tón-
leika. Núna lætur maður sig
dreyma um að þeir sem voru
seinir til síðast láti sig detta inn á
þá tónleika. Þetta verður á laug-
ardagskvöldi á besta tíma og allir
verða sjóðheitir,“
segir hann.
- fb
Nýtt lag Villa Vill á leið í spilun
VILHJÁLMUR
VILHJÁLMSSON
Vilhjálmur söng
lagið Tölum
saman fyrir 33
árum en nú
lítur það loksins
dagsins ljós.
MAGNÚS KJARTANSSON Nýtt lag með
Vilhjálmi Vilhjálmssyni, Tölum saman,
er væntanlegt í spilun á allra næstu
dögum.