Fréttablaðið - 09.09.2008, Síða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn
9. september, 253. dagur ársins.
6.34 13.25 20.14
6.15 13.10 20.02
För mín út á vinnumarkaðinn úr háskólanum einkenndist af
háleitum hugsjónum og hóflegum
skammti af reiði út í heiminn. Mér
fannst ég sérlega gáfuð og herðar
mínar voru sligaðar af byrðum pól-
itískrar rétthugsunar og fögrum
vangaveltum um hvað mætti og
mætti ekki í fjölmiðlum. Robert
Fisk var minn maður og stuðnings-
menn Íraksstríðsins óvinir mínir.
AF FYRRGREINDUM ástæðum
varð ég svolítið hissa fyrsta vinnu-
daginn minn á ritstjórn. Reiðileg
kona færði mér prentaða snepla og
undraðist ég að á þeim voru aðeins
frásagnir af holdafari fólks í Holly-
wood, samförum þeirra við aðra
íbúa svæðisins, smáhundum þess
og fatnaði. Eins og glaðværri ljósku
sæmir þá brosti ég kurteislega til
illskulegu konunnar og hófst svo
handa við þýðingar. Mér fannst ég
sérlega sniðug og bjóst við því að
eftir að reiða konan hefði lesið skrif
mín og glöggvað sig á mér myndi
hún sleppa mér úr slúðrinu og yfir í
að bjarga heiminum.
ÉG REYNDIST ekki sannspá held-
ur rétt leit hún á skrifin og því næst
á mig yfir gleraugun og spurði:
„Fyrirgefðu, þekkir þú ekki muninn
á Kid Rock og Chris Rock,“ Ég vildi
náttúrulega ekki að hún héldi að ég
væri hálfviti og reyndi því að redda
mér með því að svara. „Æ, jú er
annar þeirra ekki kallaður The
Rock?“ Reiða konan ályktaði að ég
væri fáviti og sagði. „Þetta eru mest
lesnu fréttir fjölmiðla og þeim á að
sýna virðingu.“ Ég sá að engu tauti
yrði komið við þetta illkvendi sem
virtist halda að jörðin snerist í
kringum rassinn á Jennifer Lopez
og brosti því bara blítt.
LEIÐIR okkar grömu konunnar
hafa síðan legið samhliða í gegnum
árin. Þó hvorug okkar skrifi lengur
um áhyggjur heimsins af skalla-
blettum eða fitusogsaðgerðum á
fræga fólkinu erum við býsna vel að
okkur hvað þetta varðar. Það sama
virðist gilda um þorra fréttanotenda
ef marka má lista vefmiðla yfir
mest lesnu fréttirnar. Það eru sko
ekkert fréttir af efnahagskreppu,
orkumálum eða góðum stjórnsýslu-
háttum sem þar slá í gegn.
ÞETTA eiga stjórnmálamenn að
vita og nýta sér. Sá eini í heiminum
sem virðist hafa áttað sig á því er
auðvitað Pútín, maðurinn sem svo
ótrúlega heppilega er staddur með
deyfibyssu í Síberíu einmitt þegar
sjaldgæfur tígur sleppur af friðlandi
sínu. Aldrei bregst það heldur að
færir ljósmyndarar eru með forset-
isráðherranum í för. Þetta hefði
okkar fólk mátt hafa í huga þegar
ísbirnir gengu hér upp á land og ein-
hverra hluta vegna þurfti að hringja
í Dani til að biðja um búr og engin
deyfibyssa fannst á öllu landinu.
Fræg og fáklædd