Fréttablaðið - 12.09.2008, Blaðsíða 4
4 12. september 2008 FÖSTUDAGUR
Steindu gluggarnir í Hallgrímskirkju
eru ekki eftir Gerði Helgadóttur eins
og fram kom í blaðinu á sunnudag.
Annar glugginn er eftir Leif Breiðfjörð
en hinn Guðmund frá Miðdal.
LEIÐRÉTTING
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
16°
18°
11°
12°
16°
19°
18°
23°
22°
19°
28°
27°
19°
19°
25°
23°
32°
19°
Á MORGUN
5-13 m/s, hvassast vestan
til og með ströndum
SUNNUDAGUR
8-15 m/s, hvassast
vestan til.
11
13
15
16
16
12
12
12
12
12
10
5
6
4
4
7
7
5
6
6
6
6
13
14 14
14
16
12
14
15
1613
HORFUR UM
HELGINA
Horfurnar þessa
helgina eru nokkuð
skýrar. Suðlægar
áttir, nokkuð
vindasamar sunnan
og vestan til annars
hægari. Á morgun
má víða búast við
rigningu eða skúr-
um en á sunnu-
daginn verður þurrt
og jafnvel nokkuð
bjart norðaustan
og austan til. Hlý-
indi eru í kortun-
um.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
VIÐSKIPTI Halli á vöruskiptum í
Bandaríkjunum nam 62,2 millj-
örðum dala, jafnvirði rúmra 5.600
milljarða króna, í júlí, samkvæmt
gögnum bandaríska viðskipta-
ráðuneytisins, sem birt voru í
gær.
Niðurstaðan, sem er 5,7
prósenta aukning á milli mánaða,
er nokkuð meiri en gert var ráð
fyrir. Mismunurinn skýrist af
mikilli verðhækkun á innfluttri
olíu í mánuðinum en olíufatið fór
þá hæst í rúma 147 dali.
Hefðu olíutölurnar verið
undanskildar útreikningunum
hefðu vöruskipti orðið svo jákvæð
að slíkar tölur hefðu ekki sést í
tæp sex ár, að sögn Bloomberg.
Viðlíka halli á vöruskiptum
hefur ekki sést vestanhafs síðan í
mars í fyrra. - jab
Óvæntur halli á vöruskiptum:
Olíuverð skekkir
vöruskiptatölur
OLÍUBORPALLUR Verð á innfluttri olíu
jók viðskiptahallann í Bandaríkjunum
í júlí.
SAMGÖNGUMÁL Kristján L. Möller
samgönguráðherra telur uppbygg-
ingu Íslandspósts á samskipta- og
flutningamarkaði eðlilega þróun
fyrirtækisins til framtíðar, og
hafnar því að einkaleyfi fyrir-
tækisins sé nýtt til að niðurgreiða
samkeppnisrekstur. Hann segir
póstþjónustu hafa þróast með
þeim hætti að ekki sé undan því
komist að breyta þjónustu í dreifð-
um byggðum.
Íslandspóstur, sem er hlutafélag
í eigu ríkisins, hyggur á sókn á
flutninga- og sam-
skiptamarkaði og
hefur endurskil-
greint hlutverk
sitt og starfsemi
frá því að sinna
almannaþjónustu
að stærstum
hluta.
„Já, þetta er eðli-
legt enda ekkert
sem bannar opin-
beru hlutafélagi
að stunda svona atvinnustarfsemi,
enda er hún stunduð á frjálsan og
eðlilegan hátt. Einkaleyfishlutan-
um er haldið aðskildum frá þessum
rekstri,“ segir Kristján spurður
hvort eðlilegt sé að hlutafélag í
ríkis eigu beiti sér í samkeppni við
einkarekin fyrirtæki á flutninga-
markaði.
Íslandspóstur hefur ráðist í
byggingu tíu pósthúsa sem eru sér-
hönnuð með þarfir flutningafyrir-
tækis í huga, eins og kemur fram í
ársskýrslu 2007. Kostnaður er
áætlaður rúmlega milljarður
króna. Kristján segir ekki um vöru-
flutningamiðstöðvar að ræða, eins
og er skilningur forsvarsmanna
einkarekinna flutningafyrirtækja.
„Þetta eru einfaldlega nútímaleg
pósthús sem geta tekið við þeim
vörum sem fólk flytur með fyrir-
tækinu. Þetta er nútíminn; húsin
eru glæsileg og leysa úreltar bygg-
ingar af hólmi.“ Hann segir upp-
byggingu Íslandspósts heldur ekki
hamla rekstri einkarekinna fyrir-
tækja og hafnar þeirri gagnrýni
alfarið að verið sé að nýta skattfé
almennings til að niðurgreiða sam-
keppni og byggja upp flutninga-
fyrirtæki á vegum ríkisins.
Jón Bjarnason, þingmaður
Vinstri-grænna, segir Íslandspóst
vera að hverfa frá þjónustuskyld-
um sínum úti um land og niður-
skurði sé beitt mjög harkalega.
„Það er augljóst að verið er að búa
fyrirtækið undir sölu. Ég kalla
eftir því að samgönguráðherra
taki þetta föstum tökum og að
þetta verði tekið upp á Alþingi.“
Kristján svarar gagnrýni
Vinstri-grænna með því að benda
á að póstflutningar hafi breyst svo
mikið að útilokað sé að reka þjón-
ustustöðvar með sama hætti og
undanfarin ár. Í stað þeirra komi
landpóstar sem bæti þjónustuna í
mörgum tilvikum. Hvað sölu á
fyrirtækinu varðar segir hann
engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar innan ríkisstjórnarinnar um
það mál. svavar@frettabladid.is
Ráðherra telur uppbyggingu
flutningsþjónustu eðlilega
Kristján L. Möller telur eðlilegt að Íslandspóstur byggi upp flutningaþjónustu í samkeppni við einkarekin
fyrirtæki og verji milljarði til nýrra pósthúsa. Sala fyrirtækisins hefur ekki verið rædd í ríkisstjórn.
KRISTJÁN L.
MÖLLER
PÓSTURINN Kristján hefur mælst til þess að pósthúsum verði ekki lokað fyrr en háhraðatengingar hafa verið settar upp í viðkom-
andi byggðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
RÚSSLAND, AP Sergei Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, sagði í
gær að íbúar Suður-Ossetíu hefðu
ekki í hyggju að láta innlima sig í
Rússland.
Fyrr um daginn hafði Eduard
Kokoity, leiðtogi Suður-Ossetíu,
sagt að Suður-Ossetía ætlaði ekki
að vera sjálfstætt ríki til frambúðar,
heldur verða hluti af Rússlandi.
Síðar um daginn dró hann svo þessi
orð sín til baka og sagði af og frá að
Suður-Ossetía yrði partur af Rúss-
landi.
„Ég hef sennilega verið misskil-
inn,“ sagði hann.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch sögðust í gær hafa
fengið það staðfest að um eitt
hundrað almennir borgarar hefðu
farist í stríði Rússa og Georgíu-
manna um Suður-Ossetíu í síðasta
mánuði.
Tatiana Lokshina, rússneskur
fulltrúi samtakanna, segir þetta
niðurstöðuna af heimsókn sinni til
Suður-Ossetíu, þar sem hún fór á
sjúkrahús og í kirkjugarða og
ræddi við íbúa.
Vladimír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, réttlætti í gær hörð við-
brögð rússneska hersins við innrás
Georgíuhers í Suður-Ossetíu.
„Þegar skriðdrekum, eldflauga-
vörpum og þungavopnum er beitt
gegn okkur, eigum við þá að nota
teygjubyssur?“ spurði Pútín. „Hvað
er hæfileg beiting valds?“
- gb
Suður-Ossetíustríðið kostaði um hundrað almenna borgara lífið:
Engin áform um innlimun
RÚSSAR Í SUÐUR-OSSETÍU Leiðtogi
Suður-Osseta varð tvísaga um áform
héraðsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
Akureyri handtók þrjá karlmenn
og lagði síðan hald á nokkurt
magn af fíkniefnum í húsleit sem
gerð var skömmu síðar.
Handtökurnar áttu sér stað á
miðvikudagskvöld. Mennirnir
voru handteknir vegna gruns um
fíkniefnamisferli. Í framhaldinu
var svo gerð húsleit á Akureyri.
Þar fundust 160 grömm af
kannabisefnum, nokkrar e-töflur
og nokkur grömm af amfetamíni.
Auk þess voru tæki og tól til
fíkniefnaneyslu haldlögð.
Mennirnir voru látnir lausir að
loknum yfirheyrslum og telst
málið upplýst. - jss
Þrír handteknir á Akureyri:
Tóku kannabis-
efni og e-töflur
GENGIÐ 11.09.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
167,6603
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
90,83 91,27
158,84 159,62
126,43 127,13
16,954 17,054
15,629 15,721
13,297 13,375
0,8494 0,8544
139,17 139,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR