Fréttablaðið - 19.09.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
19. september 2008 — 255. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Leikkonan Hanna María Karls dóttir
ólst upp við fisk á borðum fimmsinnum í viku Hún s if
rétti endar allt í einu fati “Hann M
Saltfiskur fer vel í maga
Hanna María Karlsdóttir leikkona, sem ólst upp við fisk á disk fimm daga vikunnar, lumar á góðri upp-
skrift að ofnbökuðum saltfisk. Hún eldar réttinn oft enda uppáhaldsmaturinn hennar.
Hanna María Karlsdóttir leikkona segir ofnbakaðan saltfisk herramannsmat.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LEIKHÚSIN standa fyrir ýmsum fjölskylduvænum sýningum
sem tilvalið væri að skella sér á um helgina. Þjóðleikhúsið sýnir
fjölskylduverkin Einar Áskel og Skilaboðaskjóðuna og Borgarleik-
húsið hefur tekið Gosa aftur til sýninga. Nánar á www.leikhusid.
is og www.borgarleikhus.is.
6.490 kr.
4ra rétta tilboðtil 25. september
· Léttreyktur lax með granateplum og wasabi sósu ·
· Humarsúpa, rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu ·
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.990 kr.
Banfi kvöldverður26. september er á ný boðið upp á Banfi kvöldverð í Perlunni, þar sem andi Toscana héraðsins á Ítalíu svífur yfir vötnum. Í boði verður 4ra rétta seðill með eða án víns. Jazztríó Björns Thoroddsen spilar.Sjá nánar á perlan.is.
Villibráðarhlaðborðið hefst 16. október.
Aftur á dagskrá!
VEÐRIÐ Í DAG
HANNA MARÍA KARLSDÓTTIR
Lumar á uppskrift að
ljúffengum saltfiski
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
föstudagur
SAMEINAKRA
Dísa í World Class og Arnar Grant ræða um vinnuna, aldurinn og útlitið
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 19. september 2008
DÍSA OG ARNAR GRANT
Sameinast í því
að hjálpa fólki
FÖSTUDAGUR FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Nonni aftur í
Japan
Motokatsu Watanabe er
einn þeirra sem kynna
Nonna á ný fyrir
japönsku þjóðinni.
TÍMAMÓT 24
SAMGÖNGUMÁL Samkeppniseftirlitið
hefur til rannsóknar hvort Íslands-
póstur, sem er hlutafélag í eigu
ríkisins, hafi brotið lög um fjár-
hagslegan aðskilnað opinberra
fyrirtækja vegna einkaleyfis- og
samkeppnisrekstrar og hvort
fyrirtækið hafi misnotað markaðs-
ráðandi stöðu sína. Forstjóri
Íslandspósts telur rannsóknina
hluta af eðlilegu eftirliti.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir
stofnunina fylgjast með aðstæð-
um á póstmarkaði og þar starfi
Íslandspóstur að hluta til í skjóli
einkaréttar. Til að stuðla að eðli-
legum starfsaðstæðum hafi sam-
keppnisyfirvöld mælst fyrir um
fjárhagslegan aðskilnað svo að
einkaréttarstarfsemi skerði ekki
samkeppni á öðrum mörkuðum.
Fyrirtæki eins og Íslandspóstur
geti verið í ráðandi stöðu og verði
að gæta þess að misnota ekki þá
aðstöðu.
„Það sem Samkeppnis eftirlitið
er að skoða hvað þetta varðar eru
aðstæður á samkeppnis markaði
með dreifingu fjölpósts þar sem
þessi tvö atriði eru til skoðunar,
eða hvernig lögbundinn fjárhags-
legur aðskilnaður er framkvæmd-
ur og hvort að öðru leyti er farið
að samkeppnis lögum.“
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Íslandspósts, segir að frá
eftirlitsstofnunum berist reglu-
lega fyrirspurnir um rekstur
fyrirtækisins. Hann segir að
Íslandspósti hafi borist fyrirspurn
frá Samkeppniseftirlitinu fyrir
nokkru síðan og henni hafi verið
svarað. Hann telur að um eðlilegt
eftirlit sé að ræða á vegum sam-
keppnisyfirvalda.
Rannsóknin er gerð að frum-
kvæði Samkeppniseftirlitsins en í
því felst að stofnunin tekur mál til
umfjöllunar án þess að um form-
lega kvörtun sé að ræða. Spurður
hvort fleiri atriði í rekstri Íslands-
pósts séu til skoðunar segir Páll
Gunnar að svo sé ekki. Hann segir
að enginn lögbundinn tímarammi
sé við rannsókn mála af þessu tagi
og ekki sé hægt að áætla hvenær
rannsókninni ljúki.
Ef sannast að Íslandspóstur hafi
brotið samkeppnislög getur Sam-
keppniseftirlitið mælst til að
úrbætur verði gerðar hjá fyrir-
tækinu og ákvarðað stjórnvalds-
sektir. - shá / sjá síðu 8
Samkeppniseftirlitið tekur
Íslandspóst til rannsóknar
Rannsókn stendur yfir af hálfu samkeppnisyfirvalda um hvort Íslandspóstur hafi brotið samkeppnislög við
dreifingu fjölpósts og misnotað markaðsráðandi stöðu sína á póstmarkaði. Eðlilegt eftirlit, segir forstjóri.
BJART EYSTRA Í dag verða
suðvestan 8-15 m/s, hvassast með
ströndum norðvestan til. Rigning
eða skúrir en þurrt og bjart eystra.
Hiti 10-15 stig.
VEÐUR 4
10
12
13
1312
VIÐSKIPTI „Þetta er björgunar aðgerð
í nafni almannaheilla og til að varð-
veita stöðugleika fjármálakerfis-
ins,“ segir Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra um samruna
Lloyds og HBOS (Halifax) í Bret-
landi í gær, en við hann varð til
stærsti banki Bretlandseyja, með
nær þriðjungs markaðshlutdeild.
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, hefur lýst því yfir að
breska ríkisstjórnin muni beita sér
fyrir því að yfirtökusamningnum
verði hraðað í gegn án þess að til
komi tímafrek athugun þarlendra
samkeppnisyfirvalda.
„Það er heimild fyrir þessu í
breskum lögum og einnig í íslensk-
um lögum, ef fjármálastofnun er á
leið í þrot. Ef sambærilegar aðstæð-
ur kæmu upp hér ábyrgðumst við
slíkar aðgerðir með sama hætti,“
segir viðskiptaráðherra.
Spurður um hvort athugun á sam-
runa SPRON og Kaupþings hafi
tekið of langan tíma, segir við-
skiptaráðherra ólíku saman að
jafna. „Þar er á ferðinni hefðbund-
inn samruni en ekki neyðar-
aðstoð.“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að við
athugun á samruna sé fyrir hendi
svigrúm til að taka tillit til alvar-
legra erfiðleika í rekstri einstakra
fjármálafyrirtækja.
„Það er að sjálfsögðu eitt af því
sem litið er til við þær aðstæður
sem nú eru.“ - bih / sjá síðu 18
Samkeppnislögum vikið til hliðar í risavöxnum bankasamrunum víða um heim:
Heimild til að hraða samruna
VISTAKSTUR Geir H. Haarde forsætisráðherra hleypti í gær af stað vistakstursátaki Landverndar með því að koma, sjá og sigra í vistaksturs-
keppni í þar til gerðum aksturshermum á ráðstefnu um sjálfbærar samgöngur. Sigrún Pálsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landvernd, og
Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Toyota, fylgjast hér með Geir undir stýri. Í ávarpi sínu sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti að
Ísland ætti að vera „tilraunastofa framtíðarorkugjafa og fundarstaður þeirra sem vinna að vistvænum samgöngum“. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR
Miðlar af
reynslu sinni
Gefur út kennslumyndband í fótbolta
FÓLK 42
Réttur smáþjóða
„Heimurinn er miklu betur kominn
með fjölda smáríkja en nokkur
stórveldi,“ skrifar Hannes Hólm-
steinn Gissurarson.
Í DAG 20
ÍA fallið
Skagamenn féllu úr
Landsbankadeild
karla í gær er þeir
gerðu markalaust
jafntefli við KR á
heimavelli.
ÍÞRÓTTIR 36
FÓLK Útvarpsmaðurinn Ólafur Páll
Gunnarsson, betur þekktur sem
Óli Palli, mun sjá um þætti um
íslenska tónlist á útvarpsstöð
Breska ríkis-
útvarpsins,
BBC, í Liver-
pool í nóvember.
„Ég á að vera
þarna í hlut-
verki íslensks
sendiherra,“
segir Óli Palli.
Uppátækið er
hluti af menn-
ingarhátíð í
Liverpool, sem
er menningarborg Evrópu í ár.
Íslenskir listamenn verða
áberandi í Liverpool af þessu
tilefni. Til dæmis verða þrír
myndlistamenn með sýningu,
Langholtkirkjukórinn ætlar að
troða upp upp og íslensk/
færeyskir jólatónleikar munu
koma gestum í jólaskapið.
- bj / sjá síður 16 og 42
Óli Palli í útrásarverkefni:
Kynnir íslenska
tónlist á BBC
ÓLAFUR PÁLL
GUNNARSSON
Allir elska Abba
Tuttugu atriði sem
þú hélst að þú
þyrftir ekki að vita
um Agnethu,
Björn,
Benny og
Fridu.
FÓLK 30