Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 6
6 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
Hnitmiðað námskeið um félagaform, skattlagningu fyrirtækja,
frádráttarbæran rekstrarkostnað, ábyrgð stjórnenda og fjármál.
Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og verður kennt
miðvikud. 24. sept., 1. og 8. okt. kl. 16-19 í Háskóla Íslands,
stofu N-128 í Öskju. Verð 30.000 kr.
Leiðbeinandi er Anna Linda Bjarnadóttir,
héraðsdómslögmaður, LL.M
VR og fl eiri félög styrkja félagsmenn sína til
þátttöku á námskeiðinu.
Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is
Nánari upplýsingar og skráning í síma 894 6090
eða á alb@lexista.is
Viltu stofna fyrirtæki?
SAMFÉLAGSMÁL Brúnin lyftist
heldur betur á Stefáni Sturlaugs-
syni, aðstoðarverslunarstjóra í
Bónus í Kringlunni, í gær þegar
Árni Kristinn Alfonsson, 10. bekk-
ingur frá Öskjuhlíðarskóla, kom
með tuttugu og tvær innkaupa-
kerrur sem hann hefur safnað
héðan og þaðan
um borgina í
þessum mánuði.
Að sögn Guð-
laugs Gauta
Þorgilssonar,
rekstrarstjóra
Bónuss, kostar
hver kerra á bil-
inu 11 til 12 þús-
und krónur svo
Árni hefur spar-
að Bónus 242 til 264 þúsund.
Við þetta tækifæri afhenti
aðstoðarverslunarstjórinn Árna
gjafabréf fyrir tvo á veitingastað-
inn Ruby Tuesday og kassa af
eplasvala sem er í miklu dálæti
hjá honum.
„Ég hef fundið nokkrar hjá
slökkvistöðinni og í Menntaskólan-
um í Hamrahlíð og meira að segja
nokkrar í kirkjugarðinum í Foss-
vogi,“ segir Árni Kristinn, sem
hefur lagt það í vana sinn að fara í
morgungöngu frá skólanum sínum
og tekur hann þá innkaupa-
kerrurnar sem verða á vegi hans.
Tómas Hermannsson, umsjónar-
kennari og göngufélagi Árna, segir
að honum sé sérstaklega annt um
að bæta samfélagið. „Þegar við
löbbum framhjá MH er hann vanur
að segja nemendum sem eru úti að
reykja að fara nú að hætta þessum
ósið. Margir eru farnir að fela
sígarettuna fyrir aftan bak þegar
þeir sjá Árna nálgast.“
Hann segir að kerrusöfnunin sé
orðin að miklu áhugamáli hjá
Árna, svo Bónusmenn megi eiga
von á honum fljótlega aftur í sömu
erindagjörðum.
„Þetta er mjög gott framtak hjá
þessum pilti og að sama skapi
sorglegt hvað fólk sýnir þessum
kerrum litla virðingu,“ segir
Jóhannes Jónsson, oftast kenndur
við Bónus. Hann segir að vel verði
tekið á móti Árna Kristni þegar
hann kemur færandi hendi næst.
„Ef hann er ánægður með það sem
hann bar úr býtum þá er ég
ánægður.“
jse@frettabladid.is
Árni Kristinn sparar
Bónus kvartmilljón
Árni Kristinn Alfonsson, færði versluninni Bónus í Kringlunni 22 innkaupa-
kerrur sem hann hefur safnað saman víða. Hann fékk málsverð fyrir tvo og
epladjús fyrir viðvikið. Jóhannes í Bónus er ánægður með framtakið.
KOMINN MEÐ KERRURNAR OG BÚINN AÐ FÁ UMBUNINA Árni Kristinn Alfonsson
hefur sparað Bónus skildinginn með því að safna innkaupakerrum sem fólk virðist
dreifa á ólíklegustu staði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JÓHANNES
JÓNSSON
EFNAHAGSMÁL Geir H. Haarde for-
sætisráðherra segir að skipaður
verði hópur sérfræðinga sem
gera eigi fræðilega úttekt á pen-
ingastefnunni þegar um hægist
en að ekki sé búið að ganga frá
skipun hópsins.
Í Kastljósi RÚV á þriðjudaginn
sagðist Tryggvi Þór Herbertsson,
efnahagsráðgjafi forsætisráð-
herra, halda að slík vinna færi í
gang á næstunni.
„Það sem ég hef í huga er að fá
nokkra sérfræðinga, útlenda og
innlenda, til að vinna þetta verk,“
segir Geir. Hann segir ýmis for-
dæmi fyrir slíkri vinnu en ekki
sé rétt að kalla þetta nefnd.
„Við erum ekki búin að ganga
frá þessu. Þetta er hugmynd sem
ég setti fram á ársfundi Seðla-
bankans,“ segir Geir.
Í Kastljósinu sagði Tryggvi Þór
að forsætisráðherra hafi boðað
að gerð yrði úttekt á kerfinu.
„[Hann] gerði það á ársfundi
Seðlabankans núna í vor og
væntan lega að þeirri skoðun lok-
inni, sem ég held, án þess að geta
sagt um það nákvæmlega, ég held
að fari í gang núna á næstunni, þá
munum við fá tillögur frá sér-
fræðingum sem munu leiða til
þess, væntanlega, að við munum
fá betra kerfi sem ræður betur
við þessar sveiflur,“ sagði
Tryggvi Þór. - ovd
Forsætisráðherra segir sérfræðihóp skipaðan:
Úttekt verður gerð
á peningastefnunni
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON
GEIR H.
HAARDE
KJARAMÁL Kjararáð ákvað í lok
síðasta mánaðar að æðstu
ríkisstarfsmenn þjóðarinnar;
þingmenn, ráðherrar og forseti
ásamt dómurum, skuli hækka í
launum um 20.300 krónur, frá og
með 1. maí þessa árs.
Ráðið telur tilefni til þessara
breytinga, í ljósi kjarasamninga
almennra opinberra starfs-
manna. Samræmis skuli gætt
milli kjara þeirra og kjara
ofantaldra.
Kjararáð bendir á að almennir
launataxtar hafi hækkað um
18.000 krónur á mánuði en taxtar
iðnaðarmanna og skrifstofufólks
um 21.000 krónur. - kóþ
Ráðamenn Íslands:
Launin hækka
aftur í tímann
SKOÐANAKÖNNUN Alls telja 92,1
prósent fasteignakaupenda að
Íbúðalánasjóður eigi að starfa
áfram í óbreyttri mynd, sam-
kvæmt könnun Capacent fyrir
sjóðinn. Alls 56,7 prósent telja að
ríkið eigi að styrkja eignalítið og
tekjulágt fólk við húsnæðiskaup.
Í sömu könnun kom fram að
tæplega helmingur, eða 49,35
prósent, telja að verðtryggð
húsnæðislán ættu að vera 80-85
prósent af kaupverði. Tæp 23
prósent telja að hámarkslán ættu
að vera 90 prósent af kaupverði.
Könnunin var gerð frá 19. júní
til 14. júlí meðal 1.266 einstakl-
inga sem höfðu keypt fasteign á
árinu. Svarhlutfall var 44,4
prósent. - ss
Könnun um Íbúðalánasjóð:
Níu af tíu vilja
Íbúðalánasjóð
í sömu mynd
Ert þú sátt(ur) við sameiningu
fréttastofa Ríkisútvarpsins?
Já 85,5%
Nei 14,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hyggst þú leita þér ráðgjafar í
fjármálum á næstunni vegna
þrenginga í efnahagsmálum?
Segðu þína skoðun á visir.is
STJÓRNMÁL Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hafa bætt
lífeyrisréttindi sín um 23.610 krónur á mánuði, með
því að stuðla ekki að breytingu á eftirlaunalögunum,
segir Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks VG.
Hann bendir á að ráðherrar fái þriggja prósenta
árlega ávinnslu á lífeyrisréttindi sín af þingmanna-
launum og sex prósenta ávinnslu á ráðherralaunin.
„Sé þetta tekið saman og miðað við frumvarp
Valgerðar Bjarnadóttur um að þingmenn ættu að
vera með almenn lífeyrisréttindi opinberra starfs-
manna, sem eru um 1,8 prósent, hafa þeir áunnið sér
þessa upphæð með því að þumbast við,“ segir
Ögmundur. Ráðherrarnir eigi því nokkurra hagsmuna
að gæta að dragist á langinn að breyta lögunum.
Árleg lífeyrisávinnsla ráðherra sé 42.082 krónur,
en ávinnsla ríkisstarfsmanna, á sömu launum, 18.472
krónur.
Í stjórnarsáttmála Samfylkingar og sjálfstæðis-
manna segir að eftirlaunalögin verði endurskoðuð og
að „meira samræmi“ verði komið á í lífeyrismálum
ráðamanna og almennings. - kóþ
Eftirlaunaréttindi hækka um 23.610 krónur á mánuði, umfram aðra, á einu ári:
Ráðherrar hagnast á töfinni
ÖGMUNDUR JÓNASSON Segir eftirlaunalögin mala gullið ofan
í vasa ráðherranna, sem hafi unnið varnarsigur með því að
skjóta málinu á frest. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VESTURLAND
Vindmyllur í Belgsholti
Haraldur Magnússon bóndi í Belgs-
holti í Melasveit ætlar að flytja inn
vindmyllu til raforkuframleiðslu á jörð
sinni. Þetta kemur fram skessuhorni.
is. Vindmyllan verður sú fyrsta hér á
landi og mun nýtast búinu.
MENNTUN Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðabæjar,
leggur til að stofnuð verði
þekkingar- og handverksmiðstöð
gamalla húsa og báta á Ísafirði.
Greindi hann frá þessu í
fyrirlestri sem hann hélt í gær á
fundi sem var efnt til á Ísafirði
vegna Farskóla íslenskra safna og
safnamanna sem nú stendur yfir.
Markmiðið með miðstöðinni yrði
að byggja upp frekari þekkingu á
viðhaldi gamalla húsa og báta og
breiða hana síðan um landið. Sagði
hann að hugsa mætti sér samstarf
Húsafriðunarsjóðs, Menntaskól-
ans á Ísafirði, Ísafjarðarbæjar og
fleiri við þetta verkefni. - jse
Bæjarstjóri Ísafjarðar:
Handverksmið-
stöð á Ísafirði
FRÁ ÍSAFIRÐI Mörg gömul hús eru varð-
veitt á Ísafirði en nú vil bæjarstjórinn
gera enn meira í þeim efnum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Segist hafa logið um mansal
Kínversk kona sem óskaði hér eftir
hæli og sagðist vera fórnarlamb
mansals hefur dregið ásakanirnar til
baka. Þetta kom fram í fréttum RÚV.
Lögregla handtók Kínverja á föstudag
sem var með vegabréf hennar.
Sluppu út um glugga
Lögreglan á Hvolsvelli segir mildi að
ekki fór verr þegar ökumaður missti
stjórn á bíl sínum á Þykkvabæjarvegi
í gær. Bíllinn hafnaði ofan í vatns-
miklum skurði og sást illa frá vegi.
Ökumaður og farþegi voru með með-
vitund og komust út um glugga.
KJÖRKASSINN