Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 36
10 föstudagur 19. september
tíðin
✽ pabbi karlakókið sýpur...
DÍANA MIST
Föstudagur 12. september: partískinka frá Alí
Þessi vika var alger hrotti. Víkingurinn sem bar mig út
af b5 um síðustu helgi hafði heldur betur lagst í rann-
sóknarvinnu og fundið mig og mitt nýja símanúmer
og gjörsamlega „stolkað“ mig alla vikuna. Þegar betur
var að gáð var það kannski ekkert skrýtið þar sem
gæjinn er í rannsóknarlöggunni og virðist hafa að-
gang að öllum upplýsingum. Hef hann grunaðan um
að hlera símann minn því þegar ég hætti að svara sím-
tölum frá honum þá byrjaði hann
að sitja fyrir mér, beið fyrir utan
hjá vinkonu minni með rauðar
rósir. Hversu ömurlegt er það???
Í uppreisn minni lét ég lita á mér
hárið allt of ljóst, fór í ljósatíma og
mætti fersk á djammið um kvöld-
ið. Var reyndar svolítið eins og
partískinka frá Alí en þetta svínvirkaði! Kíkti á Boston.
Þar var Krummi, Daníel Ágúst og fatadrottningin,
Harpa Einars. Ég sá líka glitta í Hollywood-leikkonuna
Anítu Briem. Var búin að innbyrða allt of marga gin
+ tónik þegar klukkan sló þrjú og ákvað að drífa mig
heim á leið áður en einhver annar brjálæðingur tæki
mig á öxlina og héldi á mér heim til sín.
Laugardagur 13. september: gólftuskan á b5
Eins og sannri partískinku sæmir vaknaði ég með máln-
inguna frá því í gær. Þegar ég leit í spegilinn var alveg
ljóst að ég yrði að gera eitthvað í mínum málum. Fékk
mér rauðrófusafa og hélt áfram að sofa. Var viss um að
það gæti verið gott „múv“ fyrir útlitið. Þegar ég vaknaði
loksins málaði ég yfir gærdaginn og passaði að setja
bara nógu mikinn augnskugga svo vibbinn skini ekki í
gegn. Vinkonur mínar komu yfir í einn drykk áður en við
fórum út að borða. Þegar ég stóð upp á veitingastaðn-
um var ég orðin vel full, annað kvöldið í röð. Við slysuð-
umst inn á Ölstofuna í von um stuð og stemningu. Það
var nú öðru nær, eina almennilega kjötið á markaðnum
var Mikael Torfason rithöfundur. Eftir að vinkona mín
reyndi ítrekað að ná augnsambandi við hann án árang-
urs fórum við yfir á b5 svekktar fyrir hönd vinkonunnar.
Þegar við vorum búnar að bíða í röð fyrir utan í hálftíma
komumst við loksins inn. Þar var Katla Jónasdóttir
listakona, Lilja Björk Ketilsdóttir, Almar hjá Sterling,
Siggi Hall og Jóhanna Kristín Ólafs-
dóttir í miklu stuði. Eftir sirka átta
vodka í vatni var ég komin að því að
henda mér í þvöguna og láta henda
mér út þegar ég sá glitta í víking síð-
ustu helgar. Einhvern veginn náði ég
að skríða undir háborðið og fela mig
svo hann myndi ekki verða mín
var. Næst þegar ég rank-
aði við mér var maður að
þrífa staðinn... í guðanna
bænum ekki segja nein-
um frá þessu...usss
MAMMA MIA! SINGALONG Ef þú ert ekki búin(n)
að fara á Mamma mia! einu sinni eða tvisvar nú þegar
er ekki seinna vænna en að drífa sig í Háskólabíó klukk-
an átta í kvöld. Á Singalong-sýningunni er staðið upp og
sungið hástöfum með öllum Abba-smellunum, svo enginn
þarf að halda aftur af sér.
KONUSÍÐDEGI Í KRYDDLEGNUM HJÖRTUM
Allar konur sem hafa áhuga á heilbrigðum lífsstíl eru vel-
komnar á Kryddlegin hjörtu, sem er nýr lífrænn veitinga-
staður á Skúlagötu 17, á laugardag milli klukkan fimm og
sex. Lífrænt vín og matur verður á staðnum, auk kynning-
ar á náttúrulegum snyrtivörum. Ekki láta þig vanta!
PÚÐURBURSTINN
LEÐURTASKA ÚR KISUNNI
eftir Jerome Dreyfuss.
SHURE MÍKRÓFÓNNINN
TOPP
10
VESKI FRÁ PEKING
ESPRESSOVÉLIN
Borgarbúar
og bæjargestir!
fá ókeypis dagpassa
í heilt ár.
Góða skemmtun!
fjölskylduárskortið
12.500 krónur
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Hafrafelli v/Engjaveg
104 Reykjavík
Sími: 5757 800
Opið alla daga
10.00 – 18.00
www.mu.is
IPOD MINI
LITLA HEYRNARTÆKIÐ MITT
BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR
leik- og söngkona
IPHONE sem ég
fékk í afmælis-
gjöf frá mannin-
um mínum.
LOVE JANIS Ævisaga Janis
Joplin sem systir hennar,
Laura Joplin, skrifaði.
BAUGAFELARI