Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 20
20 19. september 2008 FÖSTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefándsóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Þjóðerni er að sögn sumra heimspekinga mikilvægt verðmæti, sem frjálshyggju- menn vanræki. En mættu ekki fleiri vanrækja það að ósekju? Skipta átti veldi Habsborgar- anna í Mið-Evrópu upp eftir þjóðerni 1918. En þar sem fólk af ólíku þjóðerni bjó margt á sama svæði, var verkefnið óleysanlegt. Annað dæmi var Írland 1921. Mótmælendur voru í minni hluta í landinu öllu, en í meiri hluta í norðurhéruðunum. Bretar skiptu eyjunni upp og héldu norðurhér- uðunum. Mér sýnast Rússar nú ætla að leika sama leik í Georgíu. Þeir styðja íbúa héraða, þar sem Ossetar og Abkasíumenn eru í meiri hluta, til að segja skilið við Georgíumenn. Þegar horft er til Balkanskaga, læðist raunar sú hugsun að, hvort íbúar þar ættu ekki að flýta sér að gleyma þjóðerni sínu. Í Bandaríkjunum búa innfluttir Serbar og Króatar saman í friði, af því að öll þeirra orka beinist að því að græða fé á frjálsum markaði. Á Balkan- skaga berjast Serbar og Króatar blóðugri baráttu, af því að þeir muna þjóðerni sitt, og getur hvorug þjóðin hugsað sér að vera undir stjórn hinnar. Sumir heimspekingar kveða samkennd nauðsynlega. Þá flýgur mér í hug áhrifamikið atvik úr kvikmyndinni Kabar- ett, sem gerð er eftir Berlínar- sögum Christophers Isher- woods. Söguhetjurnar eru staddar á veitingastað. Ungur, ljóshærður piltur stendur upp og tekur að syngja skærri röddu baráttusöng þjóðernisjafnaðar- manna, „Morgundagurinn er minn.“ Smám saman taka aðrir gestir undir, uns þeir syngja loks flestallir sönginn saman. Er slík samkennd blessun eða bölvun? Þó er til friðsamleg lausn á þeim vanda, sem stæk þjóðernis- kennd síðustu aldar hefur valdið: atkvæðagreiðsla. Þetta gerðu Suður-Jótar eftir fyrri heims- styrjöld. Í sumum héruðum vildi meirihlutinn sameinast Dan- mörku, í öðrum Þýskalandi. Var í meginatriðum farið eftir úrslitum. Annað dæmi um friðsamlega lausn var þegar Tékkar sættu sig við það að Slóvakar stofnuðu sjálfstætt ríki. Heimurinn er miklu betur kominn með fjölda smáríkja en nokkur stórveldi. Vonandi fá Tíbetbúar, Kúrdar, Ossetar, Abkasíumenn, Tsjetsjenar, Kasmírbúar og fleiri þjóðir, sem una sér illa undir oki voldugra granna, sjálfsforræði einn góðan veðurdag. Sem betur fer veiktist Rússa- veldi snögglega 1991, svo að smáþjóðir á jaðri þess endur- heimtu sjálfstæði sitt. Því má ekki heldur gleyma, að sum Evrópuríki eru ekki sjálfsprott- in, heldur sköpuð með valdi. Bretónar og aðrar smáþjóðir í Frakklandi voru muldar undir miðstjórnina í París. Skotar á Bretlandi og Katalóníumenn og Baskar á Spáni hafa lítt notið sín í sambýli við fjölmennari þjóðir. En aðalatriðið er ekki, að nýr meiri hluti fái að kúga nýjan minni hluta, til dæmis Eistar rússneska minnihlutann í landi sínu, heldur að sjá svo um, að enginn kúgi neinn. Það er aðeins unnt með því að halda ríkisvaldi í skefjum, eins og frjálshyggju- menn vilja. Réttur smáþjóða SPOTTIÐ HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Í DAG | Frjálshyggja og þjóðerni V eiking íslensku krónunnar í gær, fjórða daginn í röð, ætti að færa okkur heim sanninn um þunga þeirra efnahags- þrenginga sem dynja yfir íslensku þjóðina og raunar heimsbyggðina alla nú um stundir. Sífellt verður dýrara að vera Íslendingur og sú spurning hlýtur að vakna hver sársaukamörkin eru í tilviki krónunnar. Hvað má gengið veikjast mikið áður en hagkerfið leggst hreinlega á hliðina? Sjálfsagt er ekkert einhlítt svar við slíkum spurningum, en þó er vert að benda á að Seðlabanki Íslands greip til þess óvenjulega ráðs skömmu fyrir páska í vor að efna til sérstaks aukavaxtaákvörðunardags og hækka stýrivextina í einu lagi um 125 punkta. Ástæðan? Jú, krónan hafði veikst jafnt og þétt dagana á undan, gengisvísitalan stóð fast við 160 stig og talið var nauðsynlegt að grípa í taumana með einhverjum hætti. Því var síðan fylgt eftir af hálfu bankans með annarri vaxtahækkun hálfum mánuði síðar, um 50 punkta, og voru þá vextir komnir í 15,50% og hafa haldist óbreyttir síðan. Við lok markaða í gær stóð gengisvísitala íslensku krónunnar í 178,2 stigum og markaði nýtt hámark, enn á ný. Bandaríkja dalur hefur ekki verið hærri síðan í ársbyrjun 2002, en evra, dönsk króna, sænsk króna, norsk króna eða japanskt jen hafa aldrei verið dýrari. Útlendingar eru farnir að hópast hingað til lands í innkaupaleiðangra. Hér má allt í einu finna einn ódýrasta bjór í Evrópu. Hver hefði nú trúað því? Er furða þótt bros leiki um varir erlendra ferðalanga sem allt í einu verður svo mikið úr farar- eyrinum? Nei, auðvitað ekki. En hvað með fólkið sem í þessu landi býr? Ætli okkar bros sé farið að stirðna? „Líklega hefur líking krónu við fljótandi korktappa á úthafi aldrei átt jafn vel við og nú,“ sagði greiningardeild Glitnis í umfjöllun um gengislækkunina í gær. Það eru orð að sönnu og engin ástæða til að skammast yfir svo sjálfsögðum sannindum, hvað þá að kalla þau lýðskrum. Flotkrónan má sín lítils í þeim ólgusjó sem nú ríkir á alþjóðlegum mörkuðum, en það erum við Íslendingar sem fyrst og fremst borgum brúsann. Hvað halda menn að ríflega sex pró- senta gengislækkun þýði á aðeins einni viku ofan á tæplega þrjá- tíu prósenta gengisfall ársins? Jú, auðvitað verðhækkanir og aftur verðhækkanir. Hækkun á verði matvöru, fatnaði og hvaðeina sem við þurfum að nota í okkar daglega lífi. Það mun aftur skila sér í hækkandi verðbólgu, sem aftur hlýtur að leiða til þess að líkur aukist á vaxtahækkun Seðlabankans. Þessari öfugþróun má í raun réttri líkja við efnahagslegt fár- viðri. Það eru engin landráð að ræða það. Höfuðstóll lána hækkar vegna verðbólgunnar. Greiðslubyrði erlendra lána þyngist stöðugt. Hér duga engar ódýrar samsæriskenningar og stjórnmálamenn fremur en embættismenn eiga og verða að móta stefnuna. Staðreyndin er sú að Íslendingar verða að horfast í augu við þá staðreynd, sem margar og miklu fjölmennari þjóðir hafa gert á undan okkur, að það er hreint glapræði að halda úti sjálfstæðri og fljótandi mynt við þessar aðstæður. Fórnarkostnaðurinn við það er ógurlegur og verður satt að segja sífellt ógurlegri. Forsætisráðherra hefur áður sagt að hreint hagsmunamat eigi að ráða því hvort okkur sé betur borgið innan Evrópusambands- ins og Myntbandalags Evrópu en utan. Gott og vel. Ætlar einhver að halda því fram að slíkt hagsmunamat hafi ekki nú þegar farið fram? Liggur svarið ekki í augum uppi? Hvað þýðir áframhaldandi gengislækkun? Af lýðskrumi BJÖRN INGI HRAFNSSON SKRIFAR Engin sérstök frétt Allir hljóta að vera sammála um að helstu tíðindi af nýlegum miðstjórnar- fundi Frjálslynda flokksins hafi verið samþykkt áskorunar um að þing- flokkurinn svipti Kristin H. Gunnars- son þingflokksformannsembættinu og munstraði í það Jón Magnússon. Ritstjóri heimasíðu flokksins er þó ekki á þeirri skoðun. Aldeilis ekki. Í frétt á síðunni af fundin- um segir nefnilega að auk umræðna um þing- málin fram undan hafi verið rætt um tíma- setningu landsþings og hvort flokkurinn ætti að standa að fræðslu um Evrópumálin. Nýi og gamli tíminn Mörður Árnason skrifar á síðu Samfylkingarinnar um þverpólitíska sátt vatnalaganefndar og segir að fáa hefði grunað vorið 2006 að slíkt einhuga álit gæti legið fyrir, aðeins hálfu þriðja ári eftir tveggja vetra styrjöld um málið. Telur hann að deilan hafi sprottið af alls ófullnægj- andi undirbúningi „… og ekki síður af pólitískum vinnubrögð- um sem eiga að tilheyra liðnum tímum í menntuðu nútímalegu lýðræðisríki“. Eflaust er gagnlegt fyrir þá er ráku málið á sínum tíma að fá þessa einkunn frá Merði en óvíst að þeir séu honum sammála. Sundabraut færist fjær Kristján Möller samgönguráðherra spilaði út ás í Sundabrautarmálinu í Kastljósinu í fyrrakvöld. Sagði nýjar upplýsingar benda til að brú í stað ganga kæmi til greina. Rætt hefur verið um Sundabraut í ára- tugi. Kostir vegnir og metnir. Hald manna var að göngin hefðu orðið ofan á. Sumir héldu jafnvel að það væri frágengið. Eru þau ekki annars í umhverfismati? En nú þarf sjálfsagt að skoða brúarmálin í þaula, meta umhverfisáhrif og hvað eina og við það færist draumur- inn um samgöngubót- ina fjær og fjær. bjorn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.