Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 28
2 föstudagur 19. september núna ✽ heyrði ég rétt? Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabladid.is Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 augnablikið ÁSA OTTESEN STÍLISTI OG TÍSKUBLOGGARI Ég er að fara til Manchester í verslunarferð í dag svo laugardagurinn mun fara í að kaupa föt og kannski nokkrar gjafir. Sunnudagurinn fer svo í heildsölugeðveiki þar sem ég verð labbandi út um allt að leita að skarti, sokkabuxum og öðru fyrir Gyllta köttinn. Um kvöldið er mér svo boðið í mat hjá breskum vini mínum. helgin MÍN Í nýjasta hefti Tímarits Máls og menningar birtist kvæði sem er skrásett af Finni Þór Vil- hjálmssyni lögfræðingi. Þegar kvæðið er lesið yfir kemur í ljós að um er að ræða samtal Arnars Gauta Sverrissonar tískulöggu og Ásgeirs Kol- beinssonar sjónvarpsmanns í þættinum Innlit/ útlit. Þegar Finnur er spurður að því hvers vegna hann hafi gert þetta segir hann að það megi hugsa þetta sem óð til ákveðins tímabils. „Kær- astan mín var að horfa á þáttinn á Youtube.com. Ég sat við hliðina á henni og var að lesa bók. Þegar ég heyrði samtalið á milli þeirra fannst mér að það væri eitthvað í þessu. Það vakti hjá mér löngun til að skrásetja þetta og at- huga málið,“ segir Finnur. Hann segir að það hafi tekið töluverðan tíma að pikka samtal- ið inn því hann hafi viljað hafa það alveg orðrétt. „Er ekki sagt að sá sem ekki geti lært af sögunni sé dæmdur til að endurtaka hana?“ segir Finnur. martamaria@365.is Á sunnudaginn verða Svartir englar frumsýndir í Sjónvarpinu. Steinn Ármann Magnússon leikari sýnir á sér nýjar hliðar. „Sagan fjallar aðallega um fjóra lögreglumenn sem eru teymi og ég er einn af þeim. Minn karakter hefði alveg getað dottið hinum megin við lögin og er svolítið gróf týpa. Hann fer óhefðbundnar leiðir og sér ekkert athugavert við að beygja aðeins lögin til að ná árangri,“ segir hann. Þættirnir eru byggðir á bókunum Skítadjobb og Svartir englar eftir Ævar Örn Jósepsson. „Það er búið að vera ofsalega gaman að leika í þáttunum. Hlutverk mitt er kannski ekki svo ólíkt því sem ég hef verið að gera, en í gegnum tíð- ina hef ég verið í gamanleik auk þess sem ég hef fengið hin ýmsu fúlmenni eða illmenni og ætli karakter minn í Svörtum englum myndi ekki flokkast undir eitt þeirra,“ segir Steinn Ármann, sem hefur starfað sem leikari í lausamennsku í tæp tuttugu ár og hefur nóg að gera. „Ég er að vinna verkefni fyrir Stundina okkar með Helgu Brögu og mun leika lítið hlutverk í mynd- inni Reykjavík Whale Watching Massacre. Annars er ég skemmtikraftur og veislu- stjóri annað slagið, auk þess sem ég tala inn á eina og eina auglýsingu og teikni- mynd,“ segir Steinn Ármann. - ag Steinn Ármann Magnússon í Svörtum englum: Leikur grófa týpu Steinn Ármann Magnússon Hefur starfað sem leikari í lausamennsku í rétt tæp tuttugu ár. Finnur Vilhjálmsson setti saman raunveruleikakvæðið fyrir eftir ÓÐUR TIL LIÐINS TÍMA BROT ÚR RAUNVERU LEIKA- KVÆÐINU FYRIR EFTIR heyrðu geiri þú ert hérna búinn að festa kaup á íbúð hérna úti á granda já svona helvíti fínt útsýni sem þú ert með hérna og svona já mjög skemmtilegt en þessi íbúð er með þeim verri sem ég hef séð já það var eiginlega svona aðlaðandi við hana hvað hún var já akkúrat hvað hún var eitthvað öll sjúskuð og leiðinleg og ég sá bara möguleikana í að breyta henni já hérna náttúrlega ertu með sko ógeðslegt eldhús já og þú ætlar að breyta í raun og veru öllu hérna er það ekki þetta verður allt rifið út já bara gjörsamlega það verða bara menn sem þurfa útrás sem verður hleypt hingað inn með kúbein það er bara þannig þeir mega bara ráðast á þetta já sama með þennan vegg hérna já sem er svolítið mikið barn síns tíma svolítið mikið þetta verð- ur tekið niður og ný innrétt- ing sem sagt sett hér inn kán- trí stællinn fer hér út já [...] SÖNGKONAN MADONNA VAR SMART Á DÖGUNUM Hún mætti á veitingastað í New York í hvítum glansstuttbuxum með splunku- nýja Louis Vuitton-tösku. Þessi slær gamla mónógrafið alveg út. MYND/GETTYIMAGES Ásgeir Kolbeins. Finnur Þór Vilhjálmsson var lengi að pikka samtalið inn enda sleppti hann engu. MYND/VALLI þetta HELST Arnar Gauti. Kominn aftur Aðdáendur hárgreiðslumannsins Baldurs Rafns Gylfasonar geta tekið gleði sína á ný því hann er kominn aftur með skæri í hendi. Hann átti hárgreiðslustofuna mojo/ monroe um nokkurra ára skeið og klippti allar helstu skvís- urnar í bænum eins og Sirrý í Fólk og Ásdísi Rán. Svo klippti hann líka Pál Óskar, Erp Eyvindar, Atla Rafn leikara og Geir Ólafsson. Nú er hann hins vegar kominn sterkur til baka á hárgreiðslu- stofuna Kompaníið sem er nýflutt í Turn- inn á Smáratorgi. Það má því segja að hann sé kom- inn aftur heim því hann lærði á stof- unni á sínum tíma áður en hann fór út í eigin atvinnu- rekstur. Upprisinn í Lundúnum Lítið hefur farið fyrir Hannesi Smárasyni hérlendis síðustu mán- uðina og hafa menn verið að velta því fyrir sér hvað hafi orðið um kappann. Föstudagur hefur þó heimildir fyrir því að hann sé búsett- ur í Lundúnum og sitji alls ekki með hendur í skauti. Heldur sé hann kominn með fyrirtæki á lagg- irnar sem sér- hæfi sig í heim- sendingum á tilbúnum mat.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.