Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 19. september 2008 11 HAFNARFJÖRÐUR Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segjast efast um að bærinn geti með samningi við fjórtán íbúa við Staðarhvamm haldið því til streitu að hafa tvær lausar kennslustofur við leikskól- ann Hvamm. „Fyrir liggur skýr úrskurður Skipulagsstofnunar um að framkvæmd og staðsetning húsanna brjóti gegn byggingar- lögum og vekur það upp spurn- ingar um hvort bænum beri því ekki að fjarlægja húsin hið fyrsta,“ bókuðu sjálfstæðismenn. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir það sameiginlega hagsmuni bæjaryfirvalda og bæjarbúa að tryggja farsælt leikskólastarf í öllum hverfum. - gar Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði: Efast um gildi leikskólasáttar VIÐ LEIKSKÓLANN HVAMM Lausu kennslustofurnar eiga að vera við Hvamm í vetur. Z EB R A Fimmtíu þúsund kall Starfsmenn í föstu starfi hjá sveitar- félaginu Borgarbyggð fá 50 þúsund króna aukagreiðslu um leið og þeir fá útborguð laun fyrir janúar á næsta ári. Samkvæmt samþykkt byggðarráðs miðast upphæðin við fullt starf. BORGARBYGGÐ HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæslan í Hamraborg mun ekki fara í leikskóla í Kópavogi í vetur til að sinna skoðunum á börnum. Slíkar skoðanir muni fara fram á heilsugæslustöðinni. Sigríður Pálmadóttir, hjúkrun- arforstjóri heilsugæslunnar í Hamraborg, segir að fyrir liggi breytingar á þroskaprófun barna og í framhaldinu hafi verið tekin ákvörðun um að skoðunin fari fram á heilsugæslustöðinni. Vonir standi til að síðar muni verða hægt að gera þroskaprófin aftur á leikskólum. Heilsugæslan í Salahverfi mun sinna skoðunum í leikskólum fram að áramótum. - ss Smábarnavernd í Kópavogi: Úr leikskólum á heilsugæslustöð Vantar öryggisþjónustu Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, segir að Norðmenn verði að koma á fót öryggisþjónustu vegna siglinga í Íshafinu í samstarfi við Bandaríkjamenn, Kanadamenn, Grænlendinga og Rússa. Støre bendir á að bregðast þurfi skjótt við ef slys verða á siglingum á svæðinu. NOREGUR DÓMSMÁL Konu sem Landspítalinn færði til í starfi í kjölfar ásakana um kynferðislega áreitni voru í gær dæmdar 800 þúsund króna miskabætur í Hæstarétti. Dómurinn ógilti þá ákvörðun að færa konuna til í starfi, ákvörð- unin hefði verið óþörf og ólögmæt, hún hefði verið brot gegn æru konunnar. „Þetta er mikill áfellisdómur yfir stjórn- sýslu spítalans,“ segir Gísli Guðni Hall, lögmaður konunnar. Hann segir miskabæt- urnar með því hæsta sem þekkist í málum sem þessum, en auk þeirra áskilji konan sér möguleika á að sækja bætur vegna tekjutaps. Konan starfaði sem hjúkrunarfræðingur á geðdeild Landspítalans allt þar til annar hjúkrunarfræðingur sakaði hana um kyn- ferðislega áreitni haustið 2006. Yfirmaður hennar ákvað þá þegar að færa hana til í starfi og fól henni að starfa á Kleppsspítala. Við þetta sætti konan sig ekki, enda sagði hún ásakanirnar ósannar og vegið að æru sinni. Lögmaður hennar krafðist þess fyrir hennar hönd að hún fengi fyrra starfið aftur, en hún mætti ekki til vinnu á Kleppi. „Henni var gert ókleift að starfa á spítalan- um þar sem hún sætti sig ekki við flutninginn,“ segir Gísli. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að forsvarsmenn spítalans hafi talið það samræmast lögum að færa konuna til í starfi til að starfsandi skaðaðist ekki. - bj Landspítali dæmdur til að greiða hjúkrunarfræðingi 800 þúsund króna bætur: Brotið gegn æru hjúkrunarfræðings KLEPPUR Hjúkrunarfræðingurinn var færður til í starfi í kjölfar ásakana samstarfsmanns um kynferðislega áreitni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVÍÞJÓÐ Nauðgun unglingsstúlkna, sem gættu barna á kvöldin fyrir hjón á þrítugsaldri, skiptir 200 manna þorpi í Värmland í Svíþjóð í tvennt eftir afstöðu til sektar eða sakleysis foreldranna. Barnfóstrurnar voru 14 og 15 ára þegar foreldrarnir komu heim úr samkvæmi og nauðguðu þeim. Faðirinn hefur verið dæmdur í þriggja ára og konan í sex mánaða fangelsi. Íbúarnir í þorpinu eru ýmist sannfærðir um sekt eða sakleysi parsins, sumir þeirra telja óþolandi að beðið hafi verið fyrir fólkinu í kirkjunni á staðnum. - ghs Deilt um sekt ellegar sýknu: Hjón nauðguðu barnfóstrum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.