Fréttablaðið - 19.09.2008, Síða 22

Fréttablaðið - 19.09.2008, Síða 22
22 19. september 2008 FÖSTUDAGUR UMRÆÐAN Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir skrifar um heilbrigðismál Bera má saman fjármálakerfi og heilbrigðiskerfi. Þó að fjár- festingar innan þessara kerfa og sú þekking sem þarf til að meta ávinning og áhættur fjárfestinga séu afar ólíkar þurfa svipuð skil- yrði að vera til staðar til að tryggja góða ákvarðanatöku. Til dæmis eru þrjár meginástæður taldar skýra þann vanda sem nú ríkir á fjármálamörkuðum: a) skortur á tilhlýðilegum leikreglum, b) skortur á gegnsæi og góðum upp- lýsingum, og c) gölluð líkön sem notuð eru við áhættumat. Þessir þrír orsakaþættir vandræða í fjármálakerfum valda líka vand- ræðum í heilbrigðiskerfum. Öllum heilbrigðiskerfum er hætta búin ef ekki er til staðar tilhlýðilegt reglu- verk, góðar upplýsingar og þekking til að meta kerfislægar áhættur. Við skipulag og stýringu heil- brigðiskerfa þarf að taka mið af þessu. Landsmenn fjárfesta í heilbrigðiskerfinu með greiðslu skatta. Ný Sjúkratryggingastofnun mun fjárfesta fyrir hönd skattgreið- enda í líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu landsmanna. Með nýjum lögum um sjúkra- tryggingar hafa kjörnir fulltrúar búið stofnuninni leikreglur til að tryggja aðgengi, jöfnuð, öryggi, gæði, árangur og hagkvæmni þjónustunnar. Það kemur í hlut Sjúkratryggingastofnunar að framfylgja lögunum, tryggja aðgengi að góðum upplýsingum og byggja upp þekkingu til að meta kerfislægar áhættur. Framkvæmd laganna felur í sér innleiðingu þeirra kerfisbreytinga sem ríkisstjórnin boðaði í stefnuyfirlýsingu sinni í maí 2007. Góðar og áreiðan legar upplýsingar eru forsenda þess að Sjúkratrygg- ingastofnun nái markmiðum ríkisstjórnarinnar. Góð upplýs- ingatækni verður lífæð stofnunar- innar og tryggir ekki bara gæði og öryggi þjónustunnar fyrir sjúk- linga, heldur má hér finna helstu hagræðingarvon í rekstri heil- brigðisþjónustunnar á Íslandi. Með Sjúkratryggingastofnun fæst á einum stað í kerfinu heildarsýn við samningagerð um kaup og greiðslur fyrir heilbrigðis- þjónustu. Þannig má draga úr kerfislægri áhættu, það er hætt- unni á því að einn samningur um tiltekna þjónustu raski þjónustu annars staðar í kerfinu. Við mat á kerfislægum aðstæðum og áhætt- um þarf meðal annars að taka mið af upplýsingum um heilsufars- aðstæður og þarfir landsmanna, samsetningu og stöðu mannauðs og tækni, og kostnað. Fjárfestar í opinberum heil- brigðiskerfum eru sífellt kröfu- harðari hópur. Það sem einkennir þennan hóp á Norðurlöndunum er hollusta við kerfið að því tilskildu að jafnt skuli yfir alla ganga, og að áhættunni sé dreift milli eldri og yngri í kerfinu, milli heil- brigðra og veikra, efnameiri og efnaminni. Þessi samanburður á að undir- strika að til að vel takist til við framkvæmd nýrra laga verða ákveðnar forsendur að vera til staðar. Kerfisbreytingarnar eru langtíma samstarfsverkefni starfsfólks í heilbrigðisþjónustu. Hafa þarf áhuga og vilja til að tak- ast á við ný verkefni, getu til að læra af reynslu annarra, tilfinn- ingu fyrir gildi smárra skrefa, úthald og skilning á því að árang- ur skilar sér ekki á einu ári. Mark- miðið er verðugt; að tryggja áfram hágæðaþjónustu og þar með velferð á varanlegum grunni. Höfundur er stjórnsýslufræðingur og einn af hugmyndafræðingunum að baki nýsamþykktum lögum um sjúkratryggingar. Fjárfesting í heilsu og mannslífum SIGURBJÖRG SIGURGEIRSDÓTTIR UMRÆÐAN Víglundur Þorsteins- son skrifar um krón- ur, evrur og íslenska „kreppu“ Þegar hækkanir kjara-samninganna komu inn í yfirspennt hagkerfið þar sem hágengi og hráefna- hækkanir voru allt að drepa hlaut undan að láta. Fyrirtækin sem það gátu keyrðu út verðhækkanir hið snarasta. Verðbólgan birtist á ný. Allir sem um þurftu að véla sáu að gengisstyrkurinn hlaut að breytast í veikleika og flóttinn úr erlendum lánastöðum og spákaupmennsku með krónunni hófst af ógnarhraða. Bjartsýnin varð að bölsýni. Óttinn og flóttinn tóku völdin. Afleiðingin er öllum ljós í dag. Krónan hríðféll og er nú um 30% lægri en um síðustu áramót. Við þessar aðstæður glymja upphróp- anirnar úr öllum áttum svo sem: Krónan er ónýt. Það þarf nýja þjóðarsátt. Ætlar ríkisstjórnin virkilega ekkert að gera? Í þessari umræðu fljóta síðan alls konar skyndihugmyndir um úrbætur sem engu fá breytt um stöðu mála nú. Jafnvel má heyra stjórnmála- foringja í grímulausu lýðskrumi gera því skóna að auðvelt verði að halda uppi kaupmætti liðinna ára. Því fer víðsfjarri. Kaupmáttur hefur versnað og batnar ekki í bráð. Enginn mannlegur máttur breytir því. Við erum nefnilega búin að „taka út svo mikið kaup fyrirfram“. Við ráðum því hins- vegar hvort kaupmáttarsamdrátt- urinn (endurgreiðslan á fyrirfram greiddu laununum) verður við litla eða vaxandi og viðvarandi verðbólgu. Eyðsla undanfarinna ára og tilheyrandi skuldasöfnun verður ekki lagfærð nema með því að spara og greiða skuldir. Þessi ráð hefur forsætisráðherr- ann reynt að færa okkur en talað fyrir daufum eyrum hingað til. Allir vilja hinsvegar björgunar- aðgerðir, nýja þjóðarsátt eða „kraftaverkalausnir“ eins og nýjan gjaldmiðil, allt í þeirri von að slíkt leysi okkur undan vandanum án fórna. Þá fyrst að við horfumst í augu við það að engra kraftaverka er að vænta verður hægt að hefja vinnu við að leggja drög að lausninni. Án slíkrar viðurkenningar verður engin von um árangur. Forsendur þjóðarsáttarinnar Vilji menn kalla verkefnið „nýja þjóðarsátt“ er rétt að rifja upp út á hvað hún gekk: 1. Það var sameiginleg niður- staða ASÍ og VSÍ árið 1990 að verð- bólguhjólið yrði ekki lengur knúið og að kaupmáttarrýrnun væri óum- flýjanleg. Íslensk fyrirtæki voru búin að brenna upp eða rétt að klára að tapa öllu sínu eiginfé á verðbólgubálinu. 2. Þá var það sömuleiðis sameigin- leg niðurstaða beggja að óumflýjan- legur kaupmáttarsamdráttur yrði öllum bærilegri við lága verðbólgu en háa. 3. Efla þyrfti samkeppnis- stöðu útflutnings- og sam- keppnisgreina með leið- réttingu á gengisskráningu krónunnar til að endur- reisa fyrirtækin svo von væri um framtíðarbata. 4. Sérstakar aðgerðir þyrftu að koma til varnar þeim þegnum sem lakast voru settir. 5. Að öðru leyti þyrftu allir að bera þá almennu kjara- skerðingu sem við þjóðinni blasti. 6. Gerðar voru harðar kröfur á fyrirtækin til framleiðniaukningar og endurskipulagningar sem endur- gjald fyrir bætta samkeppnisstöðu þeirra. 7. Loks var á því byggt að ríkis- stjórn myndi með sínum aðgerðum stuðla að framgangi þjóðarsáttar með fjárlagagerð og gengisskrán- ingu. Ástand okkar efnahagsmála þá og nú er ekki til að jafna saman. Eigi að síður er okkur nú vandi á höndum. Sá vandi er þó auðleystur ef við hættum að flýja umræðuna óumflýjanlegu um væntanlega kjaraskerðingu. Lága verðbólgu frekar en háa Sú kjaraskerðing sem blasir við verður bærilegri við lága verð- bólgu en háa. Verkefnið er mun léttara nú en þá að við búum við jákvæða þróun útflutnings og vax- andi þjóðartekjur. Öflugt lífeyris- kerfi og mikinn peningalegan sparnað og þvert á alla umræðu nægan og mikinn gjaldeyrisvara- sjóð, eða allt að 1.800 milljarða þegar allt er talið. Nokkuð sem ekki var til staðar á árunum 1988 til 1990 þegar þjóðarsáttin var í þróun og undirbúningi. Þá var allt einfaldlega í kaldakoli. Nú sér brátt fyrir endann á þeim innistæðulausu verðbólgusamn- ingum sem gerðir hafa verið á þessu ári. Að vísu eru nokkrir smá- hópar eftir. Engu að síður er nú komið að því að líta upp og glíma við afleiðingar þeirra og forða frekara tjóni en orðið er. Þegar við neyðumst nú til að stokka upp er óumflýjanlegt að líta til baka og læra af mistökunum. Skuldir okkar hverfa ekki við það að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru, verðbólgan ekki heldur. Áður en nokkrar aðgerðir geta orðið til gagns verðum við að viðurkenna staðreyndir. Verð- bólgan er og skuldirnar líka. Ef ekkert er að gert getur bólgan allt eins magnast. Við berum öll ábyrgð á ástand- inu og það er engin töfralausn til bjargar. Kaupmáttur okkar sem nú er að rýrna verður ekki aukinn í bráð og líklega ekki fyrr en eftir 12-24 mánuði. Það er hinsvegar engin kreppa við þann kaupmátt sem stefnir í á næstunni. Við þurfum jafnframt nú eins og á tímum þjóðarsáttarinnar að horfa á peningamálastjórnina, í þetta sinn síðastliðin sjö ár. Skerpa stjórntækin, læra af mistökum sem gerð hafa verið og leiðrétta stefnuna svo „seðlabankastýrið“ virki með þeim hætti sem þarf. Þjóðarsáttin nýja snýst um þær sameiginlegu leiðir sem við þurfum að feta til að gera Seðlabankanum unnt að lækka vexti. Eitt verkefni á þeirri leið er að ákveða hverja af þrem mismun- andi íslenskum krónum við viljum styðjast við í framtíðinni. Já, hverja af þrem viljum við nota því þrjár eru þær sannanlega. Sú fyrsta er sjálf gengisvogin sem í dag ber stýrivexti sem eru 4,093%. Númer tvö er Seðlabanka- krónan með sína 15,5% stýrivexti og loks verðtryggða krónan með vexti til viðbótar verðtryggingu á bilinu 5-11% í dag. Ástand peninga- málastjórnar á Íslandi er eins og skip með þrjú stýri sem hvert stýrir sína átt. Sú stefnuskekkja hefur leitt af sér gengissveiflur sem við höfum búið við og ýtt undir mikla spá- kaupmennsku með íslensku krón- una. Gert hagnaðarmöguleika spá- kaupmanna í stöðutökum með og á móti krónunni fyrirsjáanlega vegna auðlesins seðlabanka. Svo mjög að segja má að þeir „róli sér í gengisrólunni“ á tiltölulega áhættu- lausan máta og sæki gengishagnað fremur auðveldlega. Verðum að viðurkenna staðreyndir Slíkt ástand getur ekki og má ekki halda áfram. Nú verðum við að við- urkenna staðreyndir og mistökin. Í því sambandi er rétt að líta til okkar nágrannaþjóða og krónanna þeirra. Vaxtamun eins og hér gildir á íslensku seðlabankakrónunni sjáum við að sjálfsögðu hvergi þar. Þeim nægir vaxtamunur á sínar gengisvogir sem nemur 1-2% og ná árangri. Gengissveiflur þessara mynta eru smávægilegar saman- borið við okkar krónu. Sama árangri getum við náð með því einu að gera eins og þeir sam- hliða því að taka okkur því taki sem við þurfum hvort eð er. Öll umræða um upptöku nýs gjaldmiðils er flótti frá verkefninu og gerir ekk- ert annað en að drepa málum á dreif. Í framtíðinni má síðan ræða Evr- ópusamband og evru og framtíðar- kosti okkar og ekki síður framtíð Evrópusambandsins. Mér segir svo hugur að í þeirri umræðu þurfi fleira að skoða en við höfum gert hingað til. Það eru margar spurningar sem kvikna. Hvernig verður framtíðar hagþróun hinnar auðlindasnauðu Evrópu? Evrópu Pútíns sem heldur um olíu- og gaskranana? Evrópu fátæktarinnar sem hvergi nærri getur getur staðið við lífeyris- skuldbindingar sínar nú, hvað þá í framtíðinni. Hvernig reynist 60 ára gömul hugmyndafræði Monet og Schumans á 21. öldinni? Öld Asíu og heimssamkeppninnar? Er hið unga óreynda myntsamstarf með mismunandi skattkerfum og mis- gengi hagvaxtar á svæðinu líklegt til langlífis? Allt eru þetta spurn- ingar til viðbótar við áður ræddar séríslenskar. Enn fleiri spurningar munu síðan koma til. Þær og aðrar bíða hins vegar betri tíma. Höfundur er stjórnarformaður BM Vallár. Kjarasamningar og kreppa VÍGLUNDUR ÞORSTEINSSON UMRÆÐAN Guðmundur Örn Gunnarsson Áætlað er að um 3,5-4,5 milljónir manna í heiminum búi við mænu- skaða vegna slysa. Á Íslandi eru rúmlega hundrað einstaklingar mænuskaddaðir. Nær helmingur þeirra slasað- ist í umferðarslysum. Þá hlýst mænuskaði einnig af völdum íþrótta, glæpa, sjúkdóma, vinnu- slysa, útreiða og af ýmiss konar falli. Meðalaldur þeirra sem skaddast á mænu er um 20 ár þannig að flestir eru mjög ungir þegar þeir verða fyrir þessari lífsreynslu. Karlmenn eru um 80 þeirra sem hljóta mænuskaða vegna slysa. Varlega áætlað eru um 250.000-300.000 einstakling- ar í Bandaríkjunum skaddaðir á mænu vegna slysa, 400.000- 450.000 í löndum Evrópu og um 500.000-550.000 í Kína. Margir átta sig ekki á því að skaði á mænu snýst ekki einvörð- ungu um að bindast hjólastól. Sá hluti líkamans sem er fyrir neðan skaðann lamast eða starfsemi hans skerðist verulega, svo sem útlimir, innyfli, þvagblaðra og innri og ytri kynfæri. Lungna- starfsemi minnkar eða hverfur hjá hátt lömuðu fólki auk þess sem skynið, sem er viðvörunar- kerfi líkamans, hverfur. Þess vegna er mænuskaði einn alvar- legasti skaði sem einstaklingur getur hlotið og hann skilur eftir sig mikla eyðileggingu. En það er alltaf von og sú von endurspeglast í tilurð Mænu- skaðastofnunar Íslands sem varð til vegna þrautseigju Auðar Guð- jónsdóttur, móður mænuskadd- aðrar stúlku, sem hefur árum saman barist fyrir því að íslenska þjóðin beiti sér fyrir því á alþjóðavísu að lækning á mænu- skaða verði að veruleika. Elja Auðar hefur vakið verðskuldaða athygli og nú hafa íslensk stjórn- völd, fyrirtæki og einstaklingar tekið höndum saman og sett á fót Mænuskaðastofnun í þeim til- gangi að styðja hugsjón hennar. VÍS er stolt af því að vera eitt þessara fyrirtækja – enda hefur VÍS notið krafta Auðar og Hrafn- hildar, dóttur hennar, í þágu umferðarslysaforvarna félags- ins. Mænuskaðastofnun Íslands var stofnuð 11. desember 2007. Markmið stofnunarinnar er að vera leiðandi afl á sviði úrræða fyrir mænu- skaddaða og vinna að því með öllum tiltækum ráðum að lækning á mænuskaða verði að veruleika. Aðaltilgangur stofnunarinnar er að vekja athygli á málefn- inu á alþjóðavettvangi og safna fé til handa læknum, vísindamönn- um og öðrum sem vinna að fram- förum til heilla mænusködduð- um. Annar tilgangur stofnunar innar er að safna á einn stað upplýsingum um tilrauna- meðferðir sem nú fara fram víðs vegar um heim á mænusködduðu fólki og koma á tengslum meðal brautryðjenda sem vinna að lækningu. Það er álit fagaðila að með starfrækslu stofnunarinnar gæti Ísland orðið leiðandi í þeirri þróun að vestræn ríki taki tiltek- in baráttumál á heilbrigðissviði upp á sína arma – safni fé og nýti það til rannsókna og upplýsinga- gjafar á alþjóðavísu. Það getur haft mjög mikla þýðingu fyrir heimsbyggðina að vel menntuð og vel stæð þjóð tali máli mænu- skaddaðra á alþjóðavísu og beiti áhrifum sínum til framfara á sviðinu. Gagnabanki hefur verið starf- ræktur í tvö ár undir merkjum heilbrigðisráðuneytisins og WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar. Yfirmaður hans er Bandaríkjamaðurinn dr. Laur- ance Johnston. Gagnabankinn er hugsaður sem alþjóðleg upplýs- ingabrú um nýjungar í meðferð við mænuskaða og er þegar framsettur á nokkrum tungu- málum en unnið er að þýðingu hans á fleiri tungumál. Þannig munu vísindamenn um allan heim fá aðgang að upplýsingum og geta miðlað reynslu í þeirri viðleitni að finna lækningu við mænuskaða. Nú er hafið fjáröflunarátak til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands sem nær hámarki með beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 föstudaginn 19. september. Leitað verður eftir stuðningi almennings til þess að hægt verði að efla stofnunina og rannsóknir í þágu mænuskaddaðra. Enginn veit hver verður næstur í röðinni. Höfundur er forstjóri VÍS og varamaður í stjórn Mænuskaða- stofnunar Íslands. Þekking í þágu mænuskaddaðra GUÐMUNDUR ÖRN GUNNARSSON Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.