Fréttablaðið - 19.09.2008, Qupperneq 32
6 föstudagur 19. september
Í haust verður engin
afsökun fyrir því að
forðast tækjasali eins og
heitan eldinn, því tveir af
þekktustu líkamsræktar-
frömuðum landsins
munu kenna fólki að
gera réttar æfingar á
væntanlegum DVD-diski.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
D
ísa í World Class og
Arnar Grant hafa
starfað saman um
árabil í World Class.
Hún byrjaði í dansi
fyrir 25 árum sem þróaðist í átt
að heilsuræktinni en hann byrjaði
að æfa vaxtarrækt á Akureyri árið
1988. „Ég flutti til Reykjavíkur 2001
og hef unnið síðan þá hjá Dísu og
Bjössa í World Class. Ég hafði allt-
af mikinn áhuga á þjálfun sem
slíkri og þjálfaði hesta lengi vel.
Ég gekk í Félag tamningamanna
sautján ára gamall og keppti í
hestaíþróttum bæði hér heima og
í Austurríki þar sem ég bjó í fjög-
ur ár og keppti meðal annars með
landsliðinu.“
Aðspurður segist hann þó ekki
stunda hestamennskuna ennþá.
„Ég var búinn að gera allt sem var
í boði í hestunum svo ég yfirfærði
þjálfunina yfir á fólk,“ segir Arnar
brosandi.
ALLT ER FERTUGUM FÆRT
Þegar Dísa var 21 árs fannst henni
mikilvægt að læra eitthvað annað
en heilsurækt því hún gat ekki séð
sjálfa sig fyrir sér vera að kenna
leikfimi fertug að aldri. „Í dag er
ég 46 ára, enn að kenna og finn
ekkert fyrir því að vera orðin þetta
gömul. Ég er alls ekkert í síðra
formi en ég hef verið og ég horfi
björtum augum á næstu 30 árin
því hún Ástbjörg sem kennir fjóra
tíma í viku hjá okkur í Laugum er
orðin 79 ára og er í frábæru lík-
amlegu og andlegu formi,“ segir
Dísa.
Þegar þau eru spurð að því hvort
þau finni fyrir kreppu í ræktinni
segja þau svo ekki vera.„Fólk lítur
ekki á líkamsrækt sem munað
lengur, þetta er bara orðið nauð-
synlegt og sérstaklega þegar eitt-
hvað bjátar á, því þó maður missi
tök á hlutunum í kringum sig er
mjög mikilvægt að missa ekki
tökin á sjálfum sér. Það eru líka
mörg fyrirtæki farin að sjá kosti
þess að borga fyrir starfsfólkið sitt
í heilsuræktina, því ef starfs maður
er að rækta sjálfan sig, þá er hann
hugmyndaríkari og afkastameiri í
vinnu,“ segir Dísa.
Í næsta mánuði er væntanlegur
DVD-diskur sem Arnar og Haf-
dís unnu í sameiningu. Diskurinn
mun vera sá fyrsti sinnar tegundar
hérlendis og miðar að því að hjálpa
fólki að gera réttar æfingar í tækja-
sal, en hvað kom til að þið ákváðuð
að ráðast í verkefnið?„Það er þetta
vandamál sem við heyrum oft, að
fólk þorir bókstaflega ekki inn í
líkamsræktar stöð því það heldur
að þetta sé svo erfitt, flókið og er
hrætt um að gera sig að fífli. Það
eru allt of margir sem veigra sér við
að leita sér aðstoðar við æfingar í
tækjum og auka þá líkur á meiðsl-
um og ná litlum árangri. Á disknum
sýnum við æfingar sem eru unnar
inni á heilsuræktarstöðvunum og
hvernig á að framkvæma þær rétt.
Við náðum nú ekki að fara yfir allar
æfingarnar, því þá væri þetta um
sex tíma vídeó, en við förum yfir
allt það helsta,“ segir Arnar og hlær
.„Það eru svo margir sem vilja bara
gera þetta sjálfir, en finnst óþægi-
legt að koma í ræktina og vita ekki
hvað á að gera. Eftir að hafa horft
á diskinn getur fólk gengið inn á
heilsuræktarstöð og vitað hvernig
það á að bera sig að. Í framhaldi
af þessu verðum við með æfingaá-
ætlanir á heimasíðunni okkar sem
fylgir disknum og fólk getur prent-
að út, svo þetta mun vonandi taka
skjálftann úr fólki og nýtast því
vel.“
SAMAN Í MYNDBANDI
Fram undan eru annasam-
ir tímar hjá Arnari því hann
ætlar að keppa á sínu tuttug-
asta móti í fitness og vaxtarrækt
og stefnir á Norðurlandameist-
aratitilinn. Minnstu munaði þó
að ferli hans lyki árið 2005 þegar
hann fótbrotnaði á báðum ökkl-
um við æfingar. „Snemma árs
2005, þegar ég var þrefaldur Ís-
lands- og bikarmeistari í fitness,
braut ég báða fæturna á mér við
æfingar. Ég var að hoppa jafnfætis
yfir grindur á Laugardalsvellinum
þegar ég flaug fram fyrir mig í síð-
asta stökkinu og lenti beint á nef-
inu. Ég var svo harður af mér, norð-
anmaðurinn, að ég haltraði fyrst á
eftir og fór ekki strax að láta búa
um brotin, en áttaði mig svo á því
hversu alvarlegt þetta var. Það var
mjög erfitt að geta ekki tekið þátt
í næstu tveimur mótum og ég hélt
satt best að segja að mínum ferli í
fitness væri lokið. Það var ekki fyrr
en ég fór í uppskurð til Örnólfs
Valdimarssonar á báðum fótum í
byrjun árs 2007, sem ég sá fram á
að geta keppt aftur og varð fitness-
meistari um haustið sama ár. Þá
fékk ég sjálfstraustið aftur og er
núna að æfa ellefu sinnum í viku
fyrir Norðurlandamótið í fitness
og vaxtarrækt sem verður haldið í
Háskólabíói 19. október. Margir er-
lendir þátttakendur munu koma til
að taka þátt í því svo maður byrjar
sérstaklega snemma að undir-
búa sig og matseðillinn hjá mér
er mjög einfaldur og hreinn þessa
dagana. Mikið vatn, hafragrautur,
LIFA EFTIR ÞVÍ SEM ÞAU SEGJA
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n Stjörnumerki:
H: Sporðdreki.
A: Vog.
Uppáhaldsmatur:
H: Góðir fiskréttir og hreindýra-
steikur.
A: íslenskt lambakjöt úr Eyjafirði
og humar frá Höfn.
H: Íslenska vatnið er alltaf best.
A: Eðaltoppur.
Diskurinn í spilaranum:
H: Eva Cassidy.
A: Safndiskur með Sálinni.
Draumafrí:
H: Skíðaferð í Colorado, Borgar-
ferð til New York, sólarfrí til Balí og
veiðiferð í Grímsá.
A: Með fjölskyldunni á Spáni.
Skemmtilegast:
H: Það er svo margt, aðallega að
vera til og hafa heilsu til að gera
allt þetta skemmtilega.
A: Að elda og borða góðan mat í
góðum félagsskap.
Leiðinlegast:
H: Ég veit það ekki.
Arnar Grant og Dísa, oft kennd við World Class, eru samstíga í heilsuræktinni og eru búin að gera myndband saman.
Miðað við það sem ég hef heyrt í
kringum mig er annar hver maður í
einhverju stappi við nágranna sína.
- flegar flú kaupir parket!
undirlag
og gólflistarFRÍ
TT!
Eikarparket
Kr. 4.990,- m2
Krókhálsi 4 • Sími 567 1010 • wwwparket.is
E
in
n
,
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
7
.1
13