Fréttablaðið - 19.09.2008, Side 38

Fréttablaðið - 19.09.2008, Side 38
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 19. SEPTEMBER 2008 KLINGENBERG SPÁIR Elín Hirst fjölmiðlakona Elín Hirst er fædd 04.09. 1960. Þegar fæðingardagur hennar er lagður saman kemur út talan 29 sem er jafnt og 11 sem gerir 2 þegar tölurnar eru plúsaðar saman. „Elín Hirst er nýbúin að eiga afmæli. Þegar við eigum afmæli þá eru okkar áramót. Þið skulið skoða vel í kringum ykkur hvað gerist mest í kringum ykkar eigin afmælisdag. Elín er búin að vera á ári fjarkans sem framkallar erfiðleika og álag í öllum þáttum lífs- ins. Ár fjarkans á það til að senda manni veikindi, álag í vinnu og álag í kringum skyldmenni. Ástin gæti líka verið brösótt á þessum tímum. Ástæðan fyrir því að þetta liggur svona er til þess að líf manns taki allsherjar breytingum. Ár fjarkans er þar af leiðandi að senda manni nýtt líf. Lífsskútan hennar Elínar Hirst hefur tekið 180 gráðu beygju. Þetta er henni til góðs þó það gæti verið að hún muni ekki skynja það alveg strax. Hún er alger vinnuþjarkur en í gegnum tíðina hefur hún reynt að aðskilja vinnu og sitt eigið líf eftir bestu getu. Elín mun taka sér smáfrí, læra pínulítið meira og það er ný vinna að banka á gluggann hjá henni. Hún þarf bara að hlusta vel eftir bankinu. Hún þarf líklega að teygja aðeins út hend- ina og hleypa orkunni inn. Elín Hirst á eftir að verða ofsalega ánægð með þessar breyting- ar því innst inni var hún líklega búin að óska þeirra. Hún á eftir að fá frábært starf. Núna á hún eftir að hafa nógan tíma til að hlæja því hún er að fara á frábært fjögurra ára tímabil,“ segir Sigríður Klingenberg. www.klingenberg.is FRÁBÆR FÖSTUDAGUR Birgir Örn Steinarsson tónlistarmaður VERTU MEÐ Í VISTAKSTRI www.landvernd.is/vistakstur Námskeið á vegum Landverndar – tilvalið fyrir vinnustaðim in n i m e n g u n – fæ rri s ly s – m in n i k o s tn a ð u r! 4 1 2 3 5 Ég byrja daginn á því að kveikja á sjón- varpinu og sé að Barack Obama er að fara með þakkar ræðu sína. Á leiðinni í hljóðverið mitt heyri ég í útvarpsfréttum að allir trúar- leiðtogar séu búnir að stofna þing, ekki ósvipað Sameinuðu þjóðunum. Ég mæti í hljóðverið og sé að undirleikssveit Nicks Cave er tilbúin fyrir litla djammið okkar. Ég hendi saman ein- hverjum flottum hljómum úr tóm- inu og úr verður ódauðlegur slag- ari sem á svo eftir að tryggja mér nægilegar tekjur til þess að komast af – alla ævi. Ég fer heim og fjölskyldan er búin að undir búa veisluhöld. Ég og Lúkas litli semjum nokkrar sprellvísur sem ég spila á gítarinn á meðan hann syngur og dansar. Allur þessi æsingur hefur komið konunni minni af stað, og dóttir mín er loksins á leið í heiminn. Við förum upp á spítala og stúlkan skýst út eins og tappi úr kampavínsflösku. Fæðingin er sársaukalaus fyrir konuna mína og stúlkubarnið heilbrigt og fallegt eins og móðir hennar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.