Fréttablaðið - 19.09.2008, Blaðsíða 44
24 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Japanir minnast dvalar hins íslenska
rithöfundar Nonna í landinu 1937 til
1938. Í næsta mánuði verður sett upp
sýning um hann og haldið málþing.
Fjöldi bóka hans hefur verið gefinn
út í japanskri þýðingu.
Fyrirhuguð er sýning um íslenska
rithöfundinn Jón Sveinsson, Nonna,
í Japan í næsta mánuði. Yfirskrift
hennar er: „Seinni ferð Nonna til Jap-
ans. 70 ára afmæli heimsóknar Nonna
til Japans 1937-1938.“ Hún verður
haldin á milli 14. og 18. október og 15.
október verður haldið málþing um ís-
lenskar bókmenntir og barnamók-
menntir Nonna.
Motokatsu Watanabe, fyrrverandi
sendifulltrúi við japanska sendiráðið
á Íslandi, er einn þeirra sem standa að
sýningunni, ásamt Japansk/íslenska
félaginu. Hann segir að Nonni eigi enn
erindi við Japani. „Ég vil kynna hinn
mikla íslenska rithöfund Jón Sveins-
son, Nonna, á ný fyrir japönsku þjóð-
inni, því hann getur heillað japönsk
börn á ný, líkt og hann gerði endur
fyrir löngu, og brúað bilið á milli ís-
lensku og japönsku þjóðarinnar,“
segir Watanabe.
Hann segir Ísland hafa verið óþekkt
í Japan þegar Nonna bar þar að garði,
en hann hafi vakið áhuga Japana á
landinu. „Með fyrirlestrum sínum og
bókum kynnti hann heimaland sitt
fyrir Japönum og kveikti
þannig fyrstu
áhugabylgj-
una á Íslandi.
Síðan hefur
önnur bylgja
áhuga á landinu
vaknað og áhugi
á íslenskri tón-
list, bókmenntum,
hönnun, friðarmál-
um og umhverfis-
og orkumálum er
nokkur. Sýning
okkar um Nonna er
táknræn fyrir þann
áhuga.“
Nonni dvaldi í Japan
1938 til 1939. Hann
fylgdi í kjölfar jesúít-
ans og kristniboðans
Francisco de Xavier
sem dvaldi þar á 16.
öld, en það hafði lengi
verið draumur Nonna. Við komuna
þangað sagði hann: „Jules Verne ferð-
aðist um heiminn á áttatíu dögum, ég
kynnist honum
áttatíu ára. Hinn
gamli draumur
minn um að sjá
Japan hefur nú
ræst.“
Nonni flutti
yfir fimmtíu
fyrirlestra meðan á dvöl hans í land-
inu stóð, skrifaði í blöð og tímarit og
flutti erindi í útvarp. Þá gaf hann út
þrjár bækur á japönsku. Meira en
fimmtán bækur Nonna hafa verið
gefnar út á japönsku. Sú fyrsta kom
út árið 1937, en sú nýjasta árið 1995.
Sýningin verður haldin í Tókýó
og hefst 14. október. Hún byggist á
minningarsýningum um Nonna sem
haldnar voru á Akureyri, Reykjavík
og í Köln í Þýskalandi á 150 ára af-
mæli Nonna í fyrra.
kolbeinn@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
NONNI Í JAPAN Rithöfundurinn Jón Sveinsson, Nonni, ferðaðist um alla
heimsbyggðina. Hann náði hylli í Japan á fjórða áratugnum og nú verður
haldin sýning um hann þar.
NONNI
Á JAPÖNSKU
JÓN SVEINSSON: JAPANIR MINNAST DVALAR NONNA Í LANDINU 1937-1938
Seinni ferð Nonna til Japans
LEIKARINN MATTHEW L. PERRY
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1969.
„Þegar ég var lítill vildi
ég verða atvinnumaður í
tennis. En ég var ekki nógu
góður svo ég varð leik-
ari í staðinn. Síðan hef ég
gert fátt annað en að kyssa
fallegar konur. Hugsið nú
aðeins um það, litlu tennis-
spilarar.“
Leikarinn Matthew Perry er
einna best þekktur fyrir að
leika hin góðkunna Chandler í
sjónvarpsþáttunum Friends.
MERKISATBURÐIR
1667 Gullskipið Het Wapen van
Amsterdam strandar á
Skeiðarársandi og farast
þar um 140 manns.
1874 Blaðið Ísafold kemur út í
fyrsta sinn.
1905 Brú á Jökulsá í Öxnafirði
er vígð. Þetta er hengibrú
og um sjötíu metrar milli
stólpa.
1978 Fatlaðir efna til kröfugöngu
í Reykjavík og leggja
áherslu á jafnrétti.
1985 Yfir þrjátíu þúsund manns
farast í jarðskjálfta í Mexíkó-
borg.
1991 Nokkrir þýskir ferðamenn
finna ísmanninn Ötzi á
landamærum Austurríkis
og Ítalíu.
2006 Taílenski herinn steypir for-
sætisráðherranum Thaksin
Shinawatra af stóli.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir
og afi,
Níels Krüger
skipasmiður, Byggðavegi 136 a, Akureyri,
lést miðvikudaginn 10. september. Útför hans fer
fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. september
kl. 13.30.
Kristjana Krüger Níelsdóttir Sigurður Pálmi Randversson
Haraldur Krüger Bryndís Benjamínsdóttir
Þorsteinn Krüger Guðrún Heiða Kristjánsdóttir
Auður Stefánsdóttir Herbert B. Jónsson
og afabörnin.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristín Gestsdóttir
Goðabraut 22, Dalvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 14. september. Útförin hennar fer fram frá
Dalvíkurkirkju laugardaginn 20. september kl. 13.30.
Friðþjófur Þórarinsson
Þorsteinn Friðþjófsson Harpa Sigfúsdóttir
Björn Friðþjófsson Helga Níelsdóttir
Atli Viðar, Silja, Kristinn Þór, Andri Freyr, Rúnar Helgi
og Daníel.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og stórfrænka,
Kristín E. Jónsdóttir
læknir,
sem lést sunnudaginn 7. september sl. á
Landspítalanum við Hringbraut, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 23. september kl. 13.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Bergljót Elíasdóttir
Ester Auður Elíasdóttir Snorri Hrafnkelsson
Nicolas Ragnar Muteau
Móðir okkar og tengdamóðir,
Sigríður Ingibjörg
Kristinsdóttir
Grund, Hringbraut 50,
lést miðvikudaginn 17. september. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 24. september kl. 11.00.
Sölvi Þór Þorvaldsson Kristín Kristjánsdóttir
Valur Steinn Þorvaldsson Guðrún Sigurðardóttir
Þorvaldur Þorvaldsson Gróa Kristjánsdóttir
Haukur Þorvaldsson
ömmu- og langömmubörn.
AFMÆLI
VÍGLUNDUR
ÞORSTEINS-
SON, stjórn-
arformaður
BM Vallár, er
65 ára.
AGNES
BRAGA-
DÓTTIR
blaða maður
er 56 ára.
ÞÓRÓLFUR
SVEINSSON,
formaður
Lands-
sambands
Kúabænda,
er 59 ára.
JÓHANN
JÓHANNS-
SON tónlist-
armaður er
39 ára.
Greg Louganis er allra þekktastur fyrir að hafa
orðið tvöfaldur heimsmeistari í dýfingum. Þenn-
an dag árið 1988 hlaut Louganis alvarlega
höfuðáverka í undankeppni fyrir Ólympíu-
leikana í Seúl í Kóreu. Þrátt fyrir áverkana
hélt Louganis sínu striki og vann gullið á
Ólympíuleikunum þetta ár fyrir dýfingar.
Sjónvarpsstöðin ABC útnefndi Lougan-
is íþróttamann ársins 1988, þá 28 ára
að aldri.
Þegar Louganis var aðeins sex-
tán ára gamall tók hann þátt í
sumar ólympíuleikunum sem
voru haldnir í Montreal í Kanada
og lenti þar í öðru sæti. Tveim-
ur árum seinna tókst honum að
vinna sinn fyrsta heimsmeist-
aratitil.
Louganis kom út úr skápn-
um árið 1994 og árið 1995 tilkynnti hann að
hann væri HIV-smitaður. Eftir að hafa tilkynnt
sjúkdómsgreiningu sína drógu allir hans styrktar-
aðilar, nema Speedo, styrki sína til baka.
Tilkynningin kom rétt fyrir útgáfu ævi-
sögu hans, „Breaking the Surface“,
þar sem Louganis greinir frá því að
fyrrverandi sambýlismaður hans hafi
bæði misnotað hann og nauðgað
honum og þar með smitað hann af
HIV-veirunni. Bókin var síðar gerð að
bíómyndinni: „Breaking the Surface:
The Greg Louganis Story“. Eftir að
Louganis hætti í dýfingum hefur
hann stigið á svið á litlum leik-
sviðum í Bandaríkjunum. Árið
2006 endaði hann sjö ára sam-
band sitt við Steve Kmetko sem
vinnur hjá sjónvarpsstöðinni E!
ÞETTA GERÐIST: 19. SEPTEMBER 1988
Vann gullið þrátt fyrir höfuðáverka