Fréttablaðið - 19.09.2008, Side 53

Fréttablaðið - 19.09.2008, Side 53
FÖSTUDAGUR 19. september 2008 33 Vinahópurinn Someone Else, sem samanstendur af fjórum plötusnúð- um og aðstoðarmönnum þeirra, heldur sitt fyrsta partí á skemmti- staðnum Q Bar á laugardagskvöld. Hópurinn ætlar að vera duglegur við skemmtanahald á næstunni og lofar mikilli skemmtun þetta fyrsta kvöld. Plötusnúðarnir sem munu þeyta skífum nefnast DJ Karíus og Baktus, DJ Shaft og Yamaho og spila þeir latin-, teknó-, og neo- sálartónlist. „Someone Else byrjaði þannig að við héldum Studio 54-kvöld á Q Bar sem heppnaðist rosalega vel. Þeir sem reka staðinn vildu halda fleiri svona kvöld og þá sáum við að þetta væri eitthvað sem vantaði í skemmt- analífið,“ segir Hildur Sif Krist- borgardóttir, sem sér um almanna- tengsl fyrir hópinn. Someone Else hefur á stefnu- skránni að flytja inn erlenda plötu- snúða og jafnvel spila erlendis en þær hugmyndir eru enn á vinnslu- stigi. Partíið á Q Bar á laugardag hefst klukkan 22 og er frítt inn. - fb Snúðar með partí SOMEONE ELSE Efri röð frá vinstri: Agatha, Hildur Sif, Birna Sif og Natalie. Neðri röð frá vinstri: Skapti, Heimir, Raffi og Óli Hjörtur. Cheryl Cole, eiginkona fótbolta- mannsins Ashley Cole, er nú loks farin að skarta giftingarhring sínum aftur. Þau hjúin komust í fréttirnar fyrr á árinu eftir að breskir fjölmiðlar afhjúpuðu ítrekað framhjáhald Ashleys. Cheryl, sem sjálf er þekkt úr hljómsveitinni Girls Aloud, fór frá honum um tíma, en ákvað síðar að gefa honum og hjóna- bandinu annað tækifæri. Cheryl skartar hringnum í viðtalsþættinum Friday Night with Jonathan Ross, þar sem hún talar einnig um álagið sem fylgir því að vera undir smásjá fjöl- miðla. „Það er ekki til neitt einkalíf í þessum bransa. Ég hef talað opinskátt um hjónaband mitt í fortíðinni, sem mér hegnist fyrir núna. Ég er búin að læra að maður á ekki að gera það,“ segir Cheryl, sem kveðst halda að almenningur trúi því ekki að „fræga fólkið“ hafi tilfinningar. „Fólk þarf að slaka aðeins á og átta sig á því að við erum líka mannleg,“ segir hún. Ashley lærir af mistökum GENGUR BETUR Cheryl Cole hefur aftur sett upp giftingarhringinn, svo eitthvað virðist hjónaband hennar og Ashley Cole ganga betur. Pete Wentz, bassaleikari í sveitinni Fall Out Boy og eiginmaður Ashlee Simpson, getur ekki sofið án aðstoðar svefnlyfja. Wentz þjáist af svefnleysi, kvíða, athyglisbresti og þunglyndi og getur ekki sofið lengur en í klukkutíma án aðstoðar lyfja. „Ef ég tek ekki Ambien [töflu], sef ég í klukkutíma. Með Ambien get ég sofið frá 2 til 7. En ef maður sofnar ekki af lyfinu fer maður að sjá ofsjónir. Fyrir um fjórum mánuðum tók ég Ambien og kveikti næstum því í húsinu,“ segir tónlistarmaðurinn í nýlegu viðtali við tímaritið Playboy. Þar sem Ashlee ber nú fyrsta barn þeirra hjónakorna undir belti fer hún töluvert fyrr í bólið, sem gerir Pete nokkuð einmana. „Hún fer upp í rúm klukkan átta... svo þá er ég bara einn með hundunum. Þú getur ekki ímyndað þér hvað spjallað er um þá,“ segir Wentz. Rokkari háður svefnlyfjum Tökur á nýrri auglýsingu fyrir drykkinn Actimel frá franska mjólkurvöruframleiðandanum Danone fóru nýverið fram við gatnamót Austurstrætis og Pósthússtrætis. Íslenska fyrirtækið Á ís, sem einnig kallast On the Rocks, sá um framleiðsluna en auglýsingin er ætluð fyrir þýskan markað. „Þetta gekk allt rosalega vel. Allir útlendingarnir og kúnnarnir fóru mjög ánægðir af landi brott,“ segir Pétur Sigurðsson hjá Á ís. Þrátt fyrir töluverða gjólu við tökurnar var notuð vindvél, sem er frekar sjaldgæft hér á landi. „Við vorum með stærstu gerðina. Þau vildu hafa brjálað rok og rigningu til að minna fólk á að taka þennan drykk fyrir haust- og vetrarveðrið því hann á að styrkja ónæmiskerfið.“ Pétur reiknar með að auglýsingin verði frumsýnd í Þýskalandi um næstu mánaðamót. Leikstjóri hennar er Þór Ómar Jónsson og með aðalhlutverkið fer Þórunn Lárusdóttir. - fb Íslenskt óveður í auglýsingu ROK OG RIGNING Sérstök vindvél var notuð við tökur á aug- lýsingunni, sem verður sýnd í Þýskalandi á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.