Fréttablaðið - 19.09.2008, Síða 55
FÖSTUDAGUR 19. september 2008
Strákarnir í hljómsveitinni Hvar er
Mjallhvít? eru efnilegir hljóðfæra-
leikarar, það heyrist langar leiðir,
en eiga nokkuð í land til að geta
talist góðir laga- og textasmiðir.
Músíkin minnir oft á bönd eins og
Ný dönsk og Spilverkið, jafnvel
Mannakorn og Mezzoforte. Á
heimasíðu sinni segjast þeir meðal
annars vera undir áhrifum frá Toto
og The Police og það heyrist
stundum í gítarsándi og spileríi.
Þetta er gamaldags plata, sem
þarf ekki að vera neikvætt, en
strákarnir mættu samt alveg líta
sér nær í tíma, þótt ekki nema væri
til annars en að uppfæra hljóðheim
sinn og stíl.
„Ég kalla allt ömmu mína“, þar
sem rokkað er stífast, er fínt, og
„Að verð‘ eins og hann“ með
lyftulegu saxófón-sólói og skondn-
um söngkafla er ágætt. Umslagið
er ágætlega heppnað og þeir fá
plús fyrir að syngja á íslensku.
Það er ekki spurning að með
áframhaldandi pælingum og
þjálfun smellur allt saman hjá
strákunum. Ég er viss um að ef
þeir halda áfram munu þeir líta á
þessa fyrstu plötu sína sem
skondið byrjendaverk, sem þeim
þykir vænt um, en roðna samt smá
yfir líka. Dr. Gunni
Efnilegt
TÓNLIST
Hvar er Mjallhvít?
Hvar er Mjallhvít?
★★
Efnilegt byrjendaverk með gamaldags
tónlist.
Í VERSLUNUM BÓNUS Í
SEPTEMBER
DVD MARKAÐUR
898
kr. stk.
Fyrsta afrek
dagsins er góður
morgunverður
Til að eiga möguleika á góðum árangri, jafnt í námi sem íþróttum,
verð ég ávallt að hefja daginn með næringarríkum morgunverði.
Ég ætla mér að halda áfram að keppa að góðum árangri. Þess
vegna fæ ég mér Kellogg’s Special K í morgunverð til að tryggja
að ég fái orku, góða næringu og auðvitað lífsnauðsynleg
vítamín og steinefni. Ég mæli með því að þú gerir það líka.
Ég hlakka til …
…haustsins þegar lífið kemst í fastar
skorður á ný. Ég sest á skólabekk og
nýr kafli tekur við hjá mér. En eitt
breytist ekki – ég fæ mér alltaf
Kellogg’s Special K á morgnana.
Erla Dögg Haraldsdóttir, nemi og sundkona
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
4
2
9
1
specialk.is