Fréttablaðið - 19.09.2008, Page 62
42 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. heilu, 6. vírus, 8. sjór, 9. pota, 11.
númer, 12. skattur, 14. gort, 16. átt,
17. traust, 18. fornafn, 20. rún, 21.
áfall.
LÓÐRÉTT
1. hluti, 3. í röð, 4. jarðbrú, 5. dýra-
hljóð, 7. fótabúnaður, 10. eyrir, 13.
nytsemi, 15. ruddi, 16. smáskilaboð,
19. guð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. öllu, 6. rs, 8. mar, 9. ota,
11. nr, 12. tíund, 14. grobb, 16. sv, 17.
trú, 18. mér, 20. úr, 21. slag.
LÓÐRÉTT: 1. brot, 3. lm, 4. landbrú,
5. urr, 7. stígvél, 10. aur, 13. not, 15.
búri, 16. sms, 19. ra.
GAMLA MYNDIN
„Tískan hjá mér var náttúrlega
að vera ekki í tísku. Þetta er
gamall jakki af frænda mínum
og mér finnst ótrúlegt að ég hafi
verið með svona mikið hár og
svona stór gleraugu. Ég er átján
ára þarna og ábyggilega í við-
tali út af einhverjum tónleikum
með hljómsveitinni Nýja komp-
aníinu sem ég spilaði með.“
Sigurður Flosason saxófónleikari. Myndin
er tekin í september 1982.
VEISU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Lárus Elíasson.
2. Guðmundur Steinarsson.
3. Yoweri Kaguta Museveni,
forseti Úganda.
„Ég veit ekki hvort ég fer á kostum en
vonandi virkar þetta,“ segir Margrét Lára
Viðarsdóttir, knattspyrnukona og íþrótta-
maður ársins.
Verið er að leggja lokahönd á DVD-disk
þar sem Margrét Lára, í samvinnu við
þjálfara sinn hjá Val, Elísabetu Gunnars-
dóttur, kennir strákum og stelpum hvernig
þau geta orðið enn betri í fótbolta. Einnig
kemur við sögu Guðjón Baldvinsson,
markahrókur úr KR, sem og ungir og
efnilegir fótboltamenn af báðum kynjum.
Diskurinn ber heitið Trixin í takkaskónum.
„Já, þetta á ekki síður að höfða til stráka
en stelpna. Ekki veitir af því að efla karla-
knattspyrnuna í landinu líka,“ segir Margrét
Lára í léttum dúr. Á disknum er farið yfir
helstu grunnatriðin í sambandi við skot,
tækni, móttöku boltans og svo framvegis.
„Við tókum þetta upp í ágúst. Rétt eftir
verslunarmannahelgina. Þetta var heilmikið
púl. Maður varð að vera á hreyfingu stans-
laust í tvo daga,“ segir Margrét Lára. Hún og
Elísabet sáu um handrit og uppsetningu
disksins. Margrét Lára er spennt að sjá
hverjar viðtökurnar verða því hún sér alveg
fyrir sér framhald. „Í fyrra var ég með
fyrirlestra um allt land og þetta er eðlilegt
framhald af þeirri vinnu. Íþróttir eru í raun
besta forvörn sem hugsast getur. Og ég legg
mikið upp úr því að hjálpa öðrum til að ná
árangri og efla krakka og unglinga. Þessi
diskur er svolítið sóknarþenkjandi ef svo má
að orði komast. Og það er aldrei að vita nema
við eigum eftir að gefa út varnardisk og
markmannsdisk. En við eigum eftir að fá
einkunnina,“ segir Margrét Lára og vísar þá
til þess hvort diskurinn muni seljast eða
ekki.
- jbg
Margrét Lára sýnir trixin í takkaskónum
MARGRÉT LÁRA Knattspyrnusnillingurinn er nú að
senda frá sér DVD-disk þar sem hún sýnir trixin í
takkaskónum.
„Ég var að læra hjá Kristjönu niðri í FÍH og okkur
hefur lengi langað að gera eitthvað saman. Svo
þegar Kristjana hringdi í mig og spurði hvort við
ættum ekki að halda tónleika saman sagði ég
auðvitað já því það er ekkert meira
spennandi en að syngja með henni,“ segir
Urður Hákonardóttir um tónleika sem
hún og Kristjana Stefánsdóttir ætla að
halda á Múlakvöldi á Café Rósenberg
23. október næstkomandi.
„Ég fékk þessa hugmynd þegar
Funkmaster 2000 var að spila á
Glaumbar um daginn. Ég fékk þá til
að spila undir hjá okkur og við
verðum með mjög fönkí stöff og
mikið stuð. Við munum til dæmis
taka lög með Chaka Khan og
hljómsveitinni Rufus sem við
höldum báðar mikið upp á,“ útskýrir Kristjana.
Báðar hafa söngkonurnar í nógu að snúast þessa
dagana. Kristjana Stefánsdóttir gaf nýverið út
plötuna Better Days Blues sem hún mun fylgja eftir
með tónleikaferðalagi um Suðurland í nóvember, en
Urður hefur sagt skilið við hljómsveitina Gus Gus
og vinnur nú að sólóplötu.
„Væmin tilfinningaplata er eflaust besta en
ógirnilegasta leiðin til að lýsa plötunni. Hún
er samt svolítil diskóplata, en það gæti
breyst. Ég stefni á að klára hana fyrir
áramótin, en ég er ekki með útgáfu-
fyrirtæki svo það á allt eftir að
koma í ljós með útgáfu,“ segir
Urður. - ag
Urður og Kristjana sameina krafta sína
HÆTT Í GUSGUS Urður vinnur nú að
sólóplötu með diskóívafi, en óvíst er
hvenær hún kemur út.
LOFAR MIKLU STUÐI Kristjana lofar
mjög fönkí tónleikum á Múlakvöldi
á Café Rósenberg 23. október
næstkomandi þar sem hún og
Urður munu leiða saman hesta
sína.
„Já, hugsa sér,“ segir útvarps-
maðurinn Ólafur Páll Gunnarsson
– Óli Palli – spurður hvort þetta sé
ekki eitthvað: Að strákurinn af
Skaganum bara kominn í BBC sem
má heita mekka útvarpsmennsk-
unnar. „Ég er bara þokkalegur í
enskunni, held ég, þakka þér
fyrir.“
Í nóvember verður Óli Palli með
í tveggja tíma þætti þar sem hann
mun kynna hlustendum BBC
Merseyside íslenska tónlist. Þáttur-
inn er liður í mikilli menningarhá-
tíð sem efnt er til í Liverpool sem
er menningarborg Evrópu þetta
árið. „Ég á að vera þarna í hlut-
verki íslensks sendiherra. Ég er
nú ekkert farinn að leggja þetta
upp nákvæmlega. En maður reyn-
ir að leika góða íslenska tónlist.
Blanda saman nýju og svo ein-
hverju gömlu sem stendur upp úr
í rokksögunni,“ segir Óli Palli.
Hann segir jafnframt að BBC sé
eins og Betlehem útvarpsmanns-
ins. Hin helga borg. Allt sem gert
er í útvarpi miðist við BBC. „Þeir
bjuggu þetta til.“
Óli Palli gerir ekki ráð fyrir því
að rokktónlistarmenn muni leggj-
ast á sig til að koma sínu efni sér-
staklega að. En þegar hann er
minntur á að sjálfur konungurinn,
Bubbi Morthens, sakaði hann um
það fyrir skömmu að láta undir
höfuð leggjast að spila lög með
honum á Rás 2 segir Óli Palli: „Ég
get lofað þér því að ef þetta verð-
ur eins og ég held má reikna með
að eitt Utangarðsmannalag fái að
heyrast. Til dæmis Fuglinn er
floginn. Kæmi mér ekki á óvart.“
Óli Palli segir aðspurður að
helstu fyrirmyndir sínar í útvarpi
séu Jón Múli og Svavar Gests. Og
svo verður ekki hjá því komist að
nefna breska útvarpsmanninn
John Peel sem var á BBC Channel
One – stöð unga fólksins. „Það er
gott að geta bent á hann. Eins og
Rolling Stones hafa sýnt að það
má rokka fram í ellina hefur hann
sýnt fram á að það má spila rokk-
tónlist þar til maður dettur niður
dauður,“ segir Óli Palli og hefur
greinilega ekkert á móti því að sjá
sig í þeim sporum.
jakob@frettabladid.is / sjá einnig síðu 16
ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON: KYNNIR ÍSLENSKA TÓNLIST Á BBC
Skagastrákur kominn á BBC
Á VETTVANGI Útvarpsmaðurinn knái
tekur viðtal við Þorstein Eggertsson,
einmitt í Liverpool en í baksýn má sjá
Sverri Stormsker. FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB
ÓLI PALLI Á BBC Útvarpsmaðurinn þekkti verður fulltrúi Íslands í útvarpsþætti á BBC. Hann mun þar kynna hlustendum íslenska
tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðdáendur Ólafs Ragnars og
félaga í Dagvaktinni ættu að fylgj-
ast vel með sjónvarpsútsendingu
frá landssöfnun Mænu-
skaðafélags Íslands sem
verður á Stöð 2 í kvöld.
Eins og kunnugt er
hefur Dagvaktin
göngu sína á
sunnudagskvöld
en forskot
verður tekið á
sæluna í kvöld.
Þá verða sýnd
nokkur atriði sem rötuðu ekki í
endanlega útgáfu þáttanna, atriði
sem ekki þóttu passa eða ekki var
pláss fyrir.
Hlynur Sigurðsson, fyrrum frétta-
maður á Sjónvarpinu og umsjónar-
maður Fasteignasjón-
varpsins, hefur tekið
við starfi kynningar-
stjóra Latabæjar, eins
og greint var frá á
þessum stað fyrr
í vikunni. Hlynur
lét það verða sitt
fyrsta verk að
senda frá sér
tilkynningu þess
efnis að Magnús
Scheving, hefði
prýtt forsíðu dagblaðsins Canberra
Times. Canberra er höfuðborg
Ástralíu og lesa um tvö hundruð
þúsund manns blaðið á hverjum
degi, samkvæmt tilkynningu Hlyns.
Austfirðingar ætla að gera sér
glaðan dag á Players í kvöld en
það verða hljómsveitirnar Vax og
Rokkabillyband Reykjavíkur sem
halda uppi fjörinu og... sjálfur
Bjartmar Guðlaugsson. Fastlega
má gera ráð fyrir því að helsti aðdá-
andi Bjartmars, fréttahaukurinn og
Reyðfirðingurinn
Helgi Seljan,
láti sjá sig en
hann naut
þess heiðurs
nýverið að róta
fyrir Bjartmar
og lítur á það
sem einn
hápunkta
ferils síns.
- hdm, jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI