Fréttablaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 30. september 2008 17 ÞORLEIFUR GUNNLAUGSSON UMRÆÐAN Þorleifur Gunnlaugs- son skrifar um utangarðsfólk Það sem er fyrst og fremst gott við stefnu borgarinnar í málefnum utangarðsfólks af báðum kynjum er það að hún er fyrsta stefna sinnar tegundar á Íslandi og brautryðjandi sem slík. Utangarðsfólk á erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér, verja stjórn- arskrárvarin mannréttindi og rétt til húsaskjóls. Stefnan er árangur af baráttu þeirra fjölmörgu sem tekið hafa upp hanskann fyrir þetta fólk. Það er verðugt mark- mið að efla samstarf og forvarnir, auka reglubundna þjónustu, styrkja tímabundin úrræði og fjölga langtíma úrræðum. Stefnan er aðgengileg á vefsvæði Velferð- arsviðs Reykjavíkurborgar. Stefnumótun Undirritaður hefur átt sæti í starfshópi á vegum velferðarráðs Reykjavíkur um málefni utan- garðsfólks síðan 6. febrúar 2007, eða í rúma nítján mánuði. Hópur- inn boðaði fjölmarga hagsmuna- aðila og fagfólk til samráðs og hélt átján formlega fundi. Má þar nefna fulltrúa frá Þjónustumið- stöð Miðborgar og Hlíða (sem er þekkingarmiðstöð í málaflokkn- um), Landspítala, SÁÁ, Geðhjálp, Krísuvíkursamtökunum og svo mætti lengi telja. Safnað hefur verið saman gríðarlegri reynslu og þekkingu sem getur orðið góður grunnur að stefnu borgarinnar í málaflokknum. Þegar drögin að stefnunni voru lögð fram til fyrstu (og einu) umræðu í velferðarráði lagði minnihlutinn til að þau yrðu send til allra þeirra sem að málinu komu til umsagnar. Slíkt er alvana- legt og ber vott um vönduð vinnu- brögð og virðingu fyrir þeim sem að málinu hafa komið á formlegan hátt. Þessu var samt sem áður hafnað af hálfu meirihlutans. Hjáseta Vinstri græn í velferðarráði og borgarráði ákváðu að sitja hjá við afgreiðslu málsins aðallega af neðangreindum ástæðum: a) Stefnan tryggir það ekki að utangarðsmenn fái þak yfir höfuð- ið á þessu ári heldur einhvern tíma á því næsta. b) Opna á langtíma húsnæðisúr- ræði fyrir utangarðskonur í neyslu einhvern tíma á næsta ári. Þetta þolir enga bið. Sumar konurnar sjá sig tilneyddar að búa hjá körl- um gegn misnotkun. c) Talað er um að „skammtíma gistiskýli uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til úrræða af þessu tagi. Skoðaður verði núverandi húsakostur og lagðar fram tillögur að breytingum ef þurfa þykir“. Og þetta á að gera einhvern tíma á næsta ári. Starfshópur sem starfað hefur í nítján mánuði hefur ekki skoðað það húsnæði sem er til staðar. Það hefur undirrit- aður gert og er á þeirri skoðun að neyðarskýlin eru í húsnæði sem er í raun ekki boðlegt þessu veika fólki. Nú þegar þarf að byggja eða kaupa sæmandi húsnæði í mið- borginni. d) Engin hugmyndafræði er í stefnunni um bata og eðlilegt líf. Þótt talað sé um „búsetuúrræði með félagslegum stuðningi“ og hafa eigi „samstarf um rekstur á slíku úrræði við viðeigandi aðila“ er það ekki útlistað frekar. Stefna í þessum málaflokki sem ekki talar skýrt um leið út úr vandan- um er gölluð. e) Ýmislegt annað er umhugsun- arvert eins og það að samkvæmt stefnunni á það ekki að vera tryggt fyrr en á árinu 2010 að utangarðs- fólk njóti heimilislæknis. Drög að stefnu VGR Eftir þá vinnu sem nú hefur átt sér stað telur undirritaður að eft- irfarandi aðgerðir eigi að vera skýrar í stefnu og aðgerðaráætlun í málefnum utangarðsfólks en sumar þeirra eru nú þegar í stefnu Reykjavíkurborgar: ■ Rannsókn í samráði við fagaðila á umfangi þeirra sem teljast til utangarðsfólks. Má þar nefna Landspítalann, SÁÁ, RKÍ, Geð- hjálp, Samhjálp, Lögregluna og Þjónustumiðstöð miðborgar. ■ Gistiskýli (neyðarathvarf) fyrir konur og karla í neyslu. Staðsett í eða við miðbæinn – tengt mötu- neyti. Borgin kaupi eða byggi við- unandi húsnæði. ■ Áfangahús fyrir konur og karla í neyslu – staðsett í eða við miðbæ- inn. ■ Færanleg hús fyrir pör og ein- staklinga í neyslu sem ekki þrífast í sambýli. ■ Búsetuúrræði fyrir konur og karla í neyslu í eða við miðbæ. ■ Búsetuúrræði fyrir utangarðs- fólk í bata tengt meðferðarstöð. 1- 3 ár. ■ Búsetuúrræði fyrir utangarðs- fólk í bata í Reykjavík með miklu utanumhaldi. ■ Félagslegt húsnæði, sjálfstæð búseta. Höfundur er borgarfulltrúi VG og átti sæti í starfshópi um málefni utangarðsfólks sem nýverið lauk störfum. Drög að stefnu Vinstri grænna í málefnum utangarðsfólks Opna á langtíma húsnæðis- úrræði fyrir utangarðskonur í neyslu einhvern tíma á næsta ári. Þetta þolir enga bið. Sumar konurnar sjá sig tilneyddar að búa hjá körlum gegn misnotk- un. Löggildir rafverktakar Rafmagnsvandamál Talaðu þá við okkur Uppl. síma 8604507 / 8494007 islagnir@islagnir.is www.islagnir.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.