Fréttablaðið - 03.10.2008, Síða 48
28 3. október 2008 FÖSTUDAGUR
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Klónun
ehf.
Þrátt fyrir skrámurnar
hefur litli þýski
kúrekinn sett nýtt met!
2,3 sekúndur!
Já, mamma er
ekki eins frá
á fæti og hún
var. Hún er að
eldast.
Þessi heimur!
Mamma, get ég fengið
vasapeningana fyrir fram,
geturðu aflétt útgöngubann-
inu mínu og geturðu skutlað
mér í partí? Án þess að
spyrja nokkurra spurninga?
Nú? Við skulum
bara segja að
mamma hefur
ákveðið að ég
eigi að vera óvin-
sæll að eilífu.
Erum við þá
sammála um
að leggjast
í híði í allan
vetur?
Nákvæm-
lega!
Þegar
sjónvarps-
þáttur inn
minn er búinn.Kli
kk
Þú lítur vel
út í dag.
En gaman. Ég er að
meina það!
Hættu
þessu rugli
Lárus.
Ég er í íþróttabuxum og
stuttermabol, óförðuð
og hef ekki komist í
sturtu í 36 tíma.
Hvað getur mögu-
lega verið heillandi
við það? Það getur
ekki annað
en batnað.
Inn Inn Út Út
Það getur verið vandasamt að skrifa fréttir á þessum tímum skuldasúpna, gjaldþrota og bjargaráætlana. Vandinn
felst einna helst í að koma því sæmilega
skiljanlega frá sér um hverslags fjárupp-
hæðir er að ræða, og hvað þær þýða í raun
og veru. Það er erfitt að fá ekki á
tilfinninguna að hinn almenni lesandi botni
varla í þessum óteljandi núllum sem hnýtt er
aftan á hinar og þessar tölur, eða greini
lengur muninn á trilljónum, billjónum,
silljónum, og guðjónum. Þetta er
hausverkur.
Einhver góður maður vestra
reiknaði út að fyrir þá 700
milljarða dollara sem átti að nota
til að redda strákunum á Wall
Street fyrir horn mætti kaupa tvö
þúsund McDonalds eplabökur
handa hverjum einasta Banda-
ríkjamanni. Svona útreikningar
hjálpa meðaljóni eins og mér að tengja við
tölurnar. Ég þekki mínar eplabökur.
Lítum á nokkrar af þessum ofurfjárhæð-
um sem kastast hafa milli frétta síðustu
daga. Ríkið spýtti 84 milljörðum króna inn í
Glitni. Fyrir þá upphæð hefði verið hægt að
fjárfesta í 28 milljón eintökum af bók Davíðs
Oddssonar „Nokkrir góðir dagar án
Guðnýjar“, og færa öllum íbúum Úganda að
gjöf. Ekki verra að hafa Úgandamennina
góða á þessum síðustu og verstu. Gert er ráð
fyrir 57 milljarða króna halla á rekstri
ríkissjóðs á næsta ári. Sú upphæð hefði
dugað til að halda 1.843 sinnum upp á 1.
desember með pompi, pragt og blöðrum til
að hjálpa forseta Íslands að gleyma
kreppunni. Að lokum hefðu þeir 60 milljarð-
ar sem Jón Ásgeir tapaði á þjóðnýtingunni
nægt fyrir sextán milljón herraklippingum á
Rakarastofu Gríms, Efstalandi 26. Þetta er
kannski ekki svo flókið þrátt fyrir allt.
Tombóla! Hellingur af núllum!
Kynntu þér verkefnið Verndarar barna
inn á www.blattafram.is
Glitnir og Velferðarsjóður barna eru stoltir
bakhjarlar “Verndarar barna”
Brynhildur Guðjónsdóttir
Ég styð verkefnið
Það er á okkar ábyrgð að vernda börnin!
Það eru engar auðveldar, algildar og gulltryggðar lausnir
á þeim vandamálum sem tengjast kynferðisofbeldi á
börnum. Bestu viðbrögðin í einum aðstæðum eru ekki
endilega besti kosturinn í öðrum. Verndarar Barna
námskeiðið mun gefa þér ógrynni upplýsinga sem munu
auðvelda þér að finna þín eigin svör – hver svo sem tengsl
þín við vandann eru.
Ein af hverjum fimm stúlkum og einn af hverjum tíu
drengjum verða fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur.
Markmið okkar er að fyrirbyggja kynferðisofbeldi á
börnum.
Við bjóðum þér að slást í lið með okkur.