Fréttablaðið - 16.10.2008, Qupperneq 12
16. október 2008 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Bæjarstjórn Álftanes braut lög með því
að fresta afgreiðslu á umsókn lóðareiganda um
byggingarleyfi með vísan til þess að nýtt deili-
skipulag væri í burðarliðnum.
Deilur um sjávarlóðina í Miðskógum 8 hafa verið
í fréttum á síðustu misserum. Hæstiréttur telur
lóðina vera byggingarlóð en bæjaryfirvöld á
Álftanesi hafa talið að svo sé ekki. Eigandi
lóðarinnar hafði fengið eina synjun á útgáfu
byggingarleyfis enda uppfylltu uppdrættir að
fyrirhuguðu húsi þá ekki skilmála deiliskipulags
fyrir Skógtjarnarsvæðið. Afgreiðslu nýrrar
umsóknar hans frá í apríl hefur verið frestað hjá
bæjaryfirvöldum sem hafa verið að endurskipu-
leggja svæðið. Í ágúst kærði lóðareigandinn
málsmeðferðina til úrskurðarnefndar skipulags-
og byggingarmála.
„Úrskurðarnefndin telur að þessi frestun
málsins hafi verið ólögmæt,“ segir í niðurstöðu
nefndarinnar. „Hefur þessi ólögmæta málsmeðferð
leitt til dráttar á meðferð málsins og má fallast á
með kæranda að afgreiðsla málsins hafi dregist
óhæfilega.“
Lagt er fyrir skipulags- og byggingarnefnd og
bæjarstjórn Álftaness að taka
byggingarleyfisumsókn á Miðskógum 8 til
efnislegrar afgreiðslu án ástæðulauss dráttar. - gar
Bæjarstjórn Álftaness brýtur á lóðareiganda vegna byggingarleyfisumsóknar:
Afgreiði umsóknina tafarlaust
MIÐSKÓGAR 8 Forseti bæjarstjórnar Álftaness býr ofan við
hina umdeildu sjávarlóð og hefur vikið sæti þegar um hana
hefur verið fjallað í bæjarstjórninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EFNAHAGSMÁL Vestmannaeyjabær
ætlar að mæta þyngri rekstri
heimila í efnahagsþrengingunum
með lækkunum á gjaldskrám.
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur
lagt fram áætlun í fimmtán liðum,
sem gildir frá 1. nóvember næst-
komandi til 1. maí 2009. Meðal
þess sem þar kemur fram er að
gjaldskrár á velferðasviði Vest-
mannaeyjabæjar verða ekki
hækkaðar næstu sex mánuði; leik-
skólagjöld verða lækkuð um níu
til tíu prósent; tekið verður upp
styrktarkerfi fyrir börn hjá dag-
mæðrum; niðurgreiðslur vegna
fæðisgjalda í grunnskóla verða
auknar; ókeypis verður í sund
fyrir yngri en átján ára og styrkur
til félags eldri borgara verður
hækkaður um 50 prósent.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segir að þegar
kreppir að sé brýnt að slá skjald-
borg um velferðarkerfið.
„Við teljum okkur hafa svigrúm
til að ráðast í þessar aðgerðir þar
sem mikils aðhalds hefur verið
gætt í rekstri bæjarfélagsins
undanfarin tvö ár. Við höfum náð
mikilli hagræðingu í rekstri og
stefna okkar er sú að hagræðingin
skili sér aftur til bæjarbúa. Við
höfum rætt við marga af
hagsmunaðilum og vitum að
bæjarbúar og fyrirtæki leggjast á
árarnar með okkur í þeirri viðleitni
að standa vörð um grunngildi
okkar, jafnvel þótt eitthvað harðni
á dalnum tímabundið.“ - bs
Vestmannaeyjabær leggur fram áætlun til að létta róður heimilanna:
Lækka leikskólagjöld í Eyjum
ELLIÐI VIGNISSON Bæjarstjórinn í
Vestmannaeyjum telur að þegar
kreppi að sé brýnt að standa vörð um
velferðarkerfið.
46%
afsláttur
50%
afsláttur
við kassa
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Hverafold
Akureyri - Höfn - Grindavík
...betra verð!
TILBOÐIN GILDA 16. - 19. OKTÓBER
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
32%
afsláttur
VILLIKRYDDAÐ LAMBALÆRI
1.484 kr/kg
2.183 kr/kg
TOPPUR M/SÍTRÓNU OG
ÁVAXTATOPPUR M/APPELSÍNU
99 kr/stk.
SALTKJÖT, ÓDÝRT
278 kr/kg
515 kr/kg
NAUTALUNDIR, FROSNAR
2.145 kr/kg
4.290 kr/kg
ATVINNUMÁL „Straumur erlends
vinnuafls frá Íslandi er þegar haf-
inn og ef að líkum lætur mun hann
einungis aukast á næstunni. Við
höfum heyrt af vaxandi óróleika
meðal þessa fólks. Upplýsingar
því til handa eru víða af skornum
skammti og allt hefur þetta sín
áhrif,“ segir Jón Steindór Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins. Efnahags-
ástandið sem skapast hefur síð-
ustu vikur er líklegt til að skila
sér í fólksflótta erlends vinnuafls
frá landinu.
Helst er um að
kenna verk-
efnaskorti,
rokkandi gengi
íslensku krón-
unnar og óvissu-
ástandi í banka-
málum, en
margir hafa
lent í vandræð-
um með að
koma peningum til fjölskyldna
sinna erlendis vegna stíflu í gjald-
eyrisviðskiptum.
Jón Steindór segir sífellt bera
meira á þeirri skoðun erlends
verkafólks að ekki borgi sig leng-
ur að starfa á Íslandi. „Fólk sem
ræður sig til landsins á nokkurs
konar vertíð til að græða fé snar-
lækkar skyndilega í launum og
veit hreinlega ekki hvað það fær
fyrir aurana sína. Stíflan í banka-
kerfinu bætir svo gráu ofan á
svart.“
Hann segir íslenskt atvinnulíf á
sumum sviðum vera farið að
treysta mjög á útlent vinnuafl. „Til
dæmis eru dæmigerð láglauna-
störf sem Íslendingar eru meira
og minna horfnir frá, eins og verk-
smiðju- og byggingarvinna, mat-
vælaiðja, fiskvinnsla og ýmis þjón-
ustustörf, mjög háð erlendu
vinnuafli. Ef útstreymið færist í
aukana, sem allar líkur eru á, mun
vanta fólk í þessi störf. Tíminn
mun svo leiða í ljós hvort Íslend-
ingar færist úr öðrum störfum yfir
í þessi. Ég held að það liggi nú í
eðli Íslendinga að vilja fremur
vinna, ef vinnu er að fá, en að vera
atvinnulausir,“ segir Jón Steindór.
Steindór Skúlason, forstjóri Slát-
urfélags Suðurlands, segist vel
skilja áhyggjur erlends starfs-
fólks. „Við höfum ekki orðið vör
við að erlent fólk sé að segja upp
störfum sínum ennþá, en hver veit
hvað gerist á morgun. Mörgum er
órótt og það er brýnt að koma
málum eins og gjaldeyrisviðskipt-
um og gengismálum í lag. Við biðj-
um fólk um að sýna biðlund og
reynum eftir megni að útskýra
stöðuna fyrir því,“ segir Steindór.
Guðmundur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri ISS Ísland,
sem býður meðal annars upp á
hreingerningar um land allt, segir
erlent starfsfólk hafa skipað 50 til
60 prósent vinnuafls innan fyrir-
tækisins á allra síðustu árum. „Það
er vaxandi að fólk af erlendu bergi
brotnu sé að hætta með skömmum
fyrirvara. Okkur hefur heyrst að
stefnan hjá mörgum sé að fara til
Noregs, þar sjái fólk fyrir sér betri
stöðu,“ segir Guðmundur.
kjartan@frettabladid.is
Erlendir verkamenn
flýja af landi brott
Erlendir verkamenn munu streyma frá landinu á næstunni. Fólki er órótt
vegna gengisbreytinga og stíflu í bankakerfinu, sem hamlar þeim að koma fé til
fjölskyldna sinna. Búist við Íslendingar gangi í þau störf sem fylla þurfi.
ERLENT VINNUAFL Verkamenn frá Slóvakíu helluleggja við Hringbraut árið 2006.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JÓN STEINDÓR
VALDIMARSSON