Fréttablaðið - 31.10.2008, Síða 2
2 31. október 2008 FÖSTUDAGUR
Tómas, óttast þú ekki að fá
hníf Abrahams í bakið?
„Nei, það eina sem ég óttast er að
fá fljúgandi Hollending í bakið.“
Tómas Hermannsson er útgefandi hjá
forlaginu Sögum sem gefur út skáld-
söguna Hnífur Abrahams eftir Óttar M.
Norðfjörð. Útgáfuréttur sögunnar hefur
nú verið seldur til Hollands.
Við þurfum 70
blóðgjafa á dag
Við skorum á þig að koma og gefa blóð.
Taktu með þér vin, vinnufélaga eða ættingja
og gerðu heimsókn í Blóðbankann að
fastri venju.
Vertu hetja – gefðu blóð!
EFNAHAGSMÁL Síðan efnahags-
kreppan skall á þjóðinni hafa ráð-
herrar þjóðarinnar nefnt ýmsar
mögulegar leiðir til að koma til
móts við almenning. Ljóst er að
fáar þeirra verða færar fyrir
þessi mánaðamót og munu því
ekki koma fólki til góða strax.
Í neyðarlögum sem samþykkt
voru 6. október kvað á um að
Íbúðalánasjóður gæti tekið yfir
húsnæðislán hjá fjármálastofnun-
um. Reglugerð um málið hefur
ekki verið gefin út enn og þetta er
því ekki orðið að veruleika. Sú
ráðstöfun var ekki síst hugsuð til
að verða fjármálastofnunum úti
um lausafé og breytir hag almenn-
ings ekki mikið. Um þau lán gilda
þó reglur sjóðsins eftir að hann
hefur tekið þau yfir.
Viðskiptaráðherra hefur gefið
út tilmæli til ríkisbankanna um að
þeir beiti sömu úrræðum og
Íbúðalánasjóður fyrir þá sem
lenda í greiðsluerfiðleikum. Bönk-
unum er hins vegar í sjálfsvald
sett hvort þeir fara eftir þeim.
Tilmæli ráðamanna hafa áður
verið hunsuð, til að mynda inn-
heimta sumir bankarnir enn seðil-
gjöld þrátt fyrir áeggjan við-
skiptaráðherra um að leggja þau
af í byrjun þessa árs.
Frysting myntkörfulána er
komin í gagnið og þurfa menn að
semja við banka sína þar um, gegn
gjaldi.
Í umræðum um efnahagsmál á
Alþingi 15. október sagði Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra að leiðir yrðu skoðaðar til
að koma til móts við þá sem hafa
verðtryggð lán. Um það hefur
verið skipaður starfshópur sem á
að skila af sér 15. nóvember. Alls-
endis er óvíst hver niðurstaðan
er; hvort verðtrygging verður
afnumin eða vaxtabætur hækkað-
ar, svo dæmi séu nefnd. Ljóst er
að það snertir almenning ekki um
þessi mánaðamót.
Ríkisstjórnin hefur, að frum-
kvæði félagsmálaráðherra, sam-
þykkt tillögu til lagabreytingar á
atvinnuleysistryggingalöggjöf.
Þær gera fyrirtækjum kleift að
lækka starfshlutfall starfsmanna
og er hugsað til að sporna gegn
uppsögnum. Viðkomandi fær þá
tekjutengdar atvinnuleysisbætur
fyrir það starfshlutfall sem skerð-
ist. Þessar breytingar bíða sam-
þykktar Alþingis og munu því
ekki koma til framkvæmda fyrir
þessi mánaðamót. Kjördæmavika
var á þinginu í síðustu viku og því
engir þingfundir.
Aðrar breytingar, líkt og hækk-
un stýrivaxta í 18 prósent, virka
hins vegar af fullum þunga þessi
mánaðamót. kolbeinn@frettabladid.is
Fá úrræði eru kom-
in til framkvæmda
Ýmis úrræði sem ráðherrar hafa nefnt sem lausnir vegna kreppunnar eru ekki
enn komin til framkvæmda og nýtast almenningi ekki um þessi mánaðamót.
Stýrivaxtahækkun í 18 prósent hefur hins vegar strax áhrif.
GREIÐSLUBYRÐI Hætt er við að margir lendi í erfiðleikum nú um mánaðamótin vegna efnahagsástandsins. Þær aðgerðir sem
ríkisstjórnin hefur boðað almenningi til aðstoðar eru fæstar komnar í gagnið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÚTIVIST „Hér er allt á syngjandi
kafi í æðislegum snjó. Þetta er
meiri snjór en nokkurn tímann
var hérna allt árið í fyrra. Svæðið
er ísbjarnarfrítt og gæti ekki
verið betra,“ segir Viggó Jónsson,
umsjónarmaður skíðasvæðisins í
Tindastól við Sauðárkrók, sem
verður opnað í dag klukkan tólf í
fyrsta sinn í vetur.
Skíðasvæðið á Ólafsfirði er líka
opið og færðin góð. Þar hefur ekki
sést eins gott færi í mörg ár. Þykk-
ur og jafnfallinn snjór yfir öllu.
Á Ísafirði er gert ráð fyrir að
allt verði komið á fullt í dag og
allar brekkur opnar.
Dalvíkingar voru fyrstir til
þennan veturinn og opnuðu sitt
skíðasvæði í Böggvisstaðafjalli
um síðustu helgi. Þar hefur verið
opið síðan og ekkert sem bendir
til þess að lokað verði í bráð.
Akureyringar opna sín svæði
um helgina. Gert er ráð fyrir að
Andrésarbrekka og barnabrekk-
an Töfrateppið í Hlíðarfjalli verði
opnaðar á laugardaginn.
Ekki geta þó allir landsmenn
skellt sér á skíði um helgina. Lítið
hefur snjóað á Austurlandi í vetur
og lítil von til að skíðasvæðin í
Oddsskarði og Stafdal verði opnuð
í bráð. Í Bláfjöllum hafa brekkur
ekki enn verið opnaðar.
- hhs
Frábært skíðafæri er víða um land og mörg skíðasvæði opin:
Allt á syngjandi kafi í snjó
LYFTURNAR Í BÖGGVISSTAÐAFJALLI Góð
skíðastemning var á Dalvík um liðna
helgi enda snjórinn nægur.
KONGÓ, AP Uppreisnarherforinginn Laurent
Nkunda, sem situr um borgina Goma í austanverðu
Kongó, vill nú viðræður við ríkisstjórn landsins
um vopnahlé í héraðinu.
Nkunda segir að stjórnarhermenn hafi barist við
hlið hútúa frá Rúanda gegn tútsum í héraðinu.
Hann krefst þess að hútúarnir afvopnist og láti af
ofsóknum gegn tútsum, sem eru þar í minnihluta.
Hútúarnir flúðu til Kongó frá Rúanda árið 1994 í
kjölfar þjóðarmorðsins, þar sem hútúar myrtu um
hálfa milljón tútsa.
„Það er óviðunandi að stjórnarhermenn berjist
við hlið þjóðarmorðingja,“ segir Nkunda.
Stjórnin í Kongó neitar þó öllum ásökunum um
að hafa stutt tútsa í þessum átökum.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hvetur Nkunda
til að virða vopnahlé sem gert var í ársbyrjun.
Óttast er að borgarastyrjöld brjótist út á ný á
þessu svæði, eins og var á árunum 1996 til 2002
þegar nokkur nágrannaríki flæktust inn í átökin.
Nkunda barðist á sínum tíma með tútsum í
Rúanda sem stöðvuðu þjóðarmorðið og náðu
völdum í Rúanda. Nkunda gekk síðan til liðs við
uppreisnarmenn í Kongó sem steyptu af stóli
Mobutu Sese Seko einræðisherra árið 1997. - gb
Uppreisnarforingi í Kongó sakar stjórnvöld um að berjast með tútsum:
Vill viðræður um vopnahlé
ÖNGÞVEITI Sameinuðu þjóðirnar eru með herlið í Goma, en
uppreisnarmenn sitja um borgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest úrskurð héraðsdóms um
áframhaldandi farbann yfir Litháa
sem dæmdur hefur verið fyrir
árás á lögreglumenn í miðborg
Reykjavíkur í janúar.
Maðurinn var í héraðsdómi
dæmdur í 60 daga fangelsi,
skilorðsbundið. Ríkissaksóknari
áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar,
til refsiþyngingar, þar sem málið
er nú.
Um var að ræða árás á fjóra
óeinkennisklædda lögreglumenn
sem voru við fíkniefnaeftirlit á
Laugaveginum.Tveir þeirra voru
fluttir á sjúkrahús, annar með
heilahristing. - jss
Lögregluárásin í miðbænum:
Árásarmaður
enn í farbanni
SKOÐANAKÖNNUN Fylgi við Vinstri-
hreyfinguna grænt framboð mælist
meira en fylgi Sjálfstæðisflokksins
í nýjum þjóðarpúlsi Gallups sem
ríkisútvarpið birti í gær.
Vinstri grænir eru samkvæmt
könnuninni næststærsti stjórn-
málaflokkurinn, með 27 prósenta
fylgi en fylgi Sjálfstæðisflokksins
mælist 26 prósent og minnkar
fylgi hans um 5 prósent frá síðustu
könnun. Samfylkingin nýtur mests
fylgis íslenskra stjórnmálaflokka
en 31 prósent sögðust myndu kjósa
þann flokk ef gengið yrði til
kosninga nú. Þá mælist Framsókn-
arflokkurinn með 10 prósenta fylgi
og Frjálslyndi flokkurinn með 3
prósent. Könnunin var gerð 29.
september til 26. október síðastlið-
inn og var úrtakið tæplega 6.000
manns. - ovd
Nýr þjóðarpúls Gallup:
VG upp fyrir
Sjálfstæðisflokk
VINNUMARKAÐUR Jóhanna Sigurðar-
dóttir, félags- og tryggingamála-
ráðherra, hefur skipað Magnús
Pétursson, fyrrum forstjóra
Landspítala, til
þess að gegna
embætti
ríkissáttasemj-
ara til næstu
fimm ára.
Magnús tekur
við starfinu á
morgun, 1.
nóvember, af
Ásmundi
Stefánssyni sem í haust ákvað að
hætta sem ríkissáttasemjari.
Ásmundur vinnur nú fyrir
forsætisráðuneytið við samræm-
ingu aðgerða vegna kreppunnar.
„Þetta starf leggst ljómandi vel í
mig,“ segir Magnús og bætir við
að nóg sé af viðfangsefnum fram
undan þótt menn séu að hugsa um
aðra hluti þessa dagana. - ovd
Mörg spennandi verkefni:
Magnús ríkis-
sáttasemjari
MAGNÚS
PÉTURSSON
BANDARÍKIN, AP Vonir bandarískra
stjórnvalda, um að samningur við
Íraksstjórn um áframhaldandi
dvöl bandaríska herliðsins takist
áður en stjórnarskipti verða í
Bandaríkjunum, hafa dvínað mjög.
Írakar vilja að gerðar verði
breytingar á samningsdrögum,
sem Bandaríkjastjórn getur ekki
fallist á. Írakar vilja fá víðtækari
völd yfir bandaríska herliðinu í
Írak, auk þess sem Írakar vilja
ekki ákvæði um að bandarískt
herlið geti verið áfram í Írak til
bráðabirgða eftir að samningstími
rennur út í árslok 2011. - gb
Bandaríkjaher í Írak:
Íraka vilja ekki
semja við Bush
SUÐUR-KÓREA, AP Blindir nuddarar
í Suður-Kóreu fögnuðu sigri þegar
dómstóll úrskurðaði þeim í vil í
óvenjulegri kjaradeilu.
Dómstóllinn komst að þeirri
niðurstöðu að lög, sem banna
öðrum en blindu fólki að fá starfs-
leyfi sem nuddarar, brjóti ekki í
bága við stjórnarskrá landsins.
Í nærri heila öld hafa nuddarar
í Suður-Kóreu flestir verið blind-
ir og segja þeir þessa starfsgrein
nánast þá einu sem þeir geta
stundað í landinu.
Árið 2006 voru sett lög sem
staðfesta þetta skipulag, en þau
lög voru kærð til stjórnarskrár-
dómstóls sem nú hefur hafnað
kærunni. - gb
Óvenjuleg kjaradeila:
Blindir nuddar-
ar fagna sigri
Amfetamínmenn áfram inni
Þrír karlar voru í dag úrskurðaðir í
áframhaldandi gæsluvarðhald til 13.
nóvember að kröfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru grun-
aðir um aðild að ætlaðri framleiðslu
fíkniefna í Hafnarfirði.
DÓMSTÓLAR
SPURNING DAGSINS