Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 6
6 31. október 2008 FÖSTUDAGUR Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2008 Hér með er auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2008 er lokið á alla lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með síðari breytingum, sem og aðra sem lagt er á í samræmi við VIII. – XIV. kafla tilvitnaðra laga. Jafnframt er lokið álagningu á lög aðila, sem skattskyldir eru af fjármagnstekjum samkvæmt ákvæði 4. mgr. 71. gr. laganna. Álagningarskrár með gjöldum lögaðila verða lagðar fram í öllum skatt - umdæmum í dag, föstudaginn 31. október 2008. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju sveitarfélagi dagana 31. október til 14. nóvember nk. að báðum dögum meðtöldum. Álagningarseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila, hafa verið póstlagðir. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda 2008 samkvæmt ofan greindu skulu hafa borist skattstjóra eigi síðar en mánudaginn 1. desember 2008. Auglýsing þessi er birt samkvæmt ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum. 31. október 2008. Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Rósa Helga Ingólfsdóttir Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Hanna Björnsdóttir Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Steinþór Haraldsson Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson TAKTU Í TAUMANA! Ekki láta depurðina íþyngja þér – fáðu aukinn kraft og endurheimtu lífsorkuna! D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Löguð að íslenskum aðstæðu m! EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands sendi frá sér athugasemd í gær í tengslum við hækkun stýrivaxta úr tólf í átján prósent. Kemur þar fram árétting um að hækkunin sé hluti af samkomulagi ríkisstjórnar- innar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF). Í athugasemdinni og rök- stuðningi bankans á þriðjudag er látið að því liggja að bankinn hafi ekki komið að ákvörðuninni, þvert á fullyrðingar ráðherra í ríkis- stjórninni. Hafi bankinn ekki komið að vaxtaákvörðuninni hafa lög um Seðlabanka Íslands verið brotin. Davíð Oddsson, formaður stjórn- ar Seðlabankans, tilkynnti stýri- vaxtahækkun á þriðjudag. Í rök- stuðningi bankans kom fram að ríkisstjórnin hefði gert samkomu- lag við sendinefnd Alþjóðagjald- eyrissjóðsins í síðustu viku. Þar komi fram að Seðlabankinn skuli þá hafa hækkað stýrivexti í 18 pró- sent. Geir H. Haarde forsætisráð- herra og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra höfðu, þegar tilkynnt var um að formlega yrði óskað eftir aðstoð IMF, sagt að skilyrði um vaxtahækkun væri ekki að finna í samkomulagi við IMF. Hafi ákvörðun um stýrivaxta- hækkun verið tekin án vitundar Seðlabanka gengur það þvert á grundvöll laga um Seðlabankann sem sjálfstæðrar stofnunar í eigu ríkisins, samkvæmt 1. og 10. grein. Ingibjörg hefur sagt í fjölmiðlum að Seðlabankinn hafi komið að þeirri ákvörðun að hækka vextina. Forsætisráðherra sagði í viðtali við Fréttablaðið á miðvikudag að ríkisstjórnin, Seðlabankinn og IMF kæmu að efnahagsáætluninni á bak við aðstoð frá sjóðnum „og það er þá undirliggjandi í henni að það þurfi að hækka vextina“. Hann sagði jafnframt að Seðlabankinn myndi einn sjá um næstu stýri- vaxtaákvörðun. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir hækk- unina hafa verið gerða með vitund og vilja Seðlabankans en ríkis- stjórnin beri ábyrgð á samkomu- laginu við IMF. „Seðlabankinn leik- ur stórt hlutverk í að fylgja eftir samkomulaginu og það skiptir máli að hann sé vel upplýstur. Þorgerður hafnar því að lög um bankann hafi verið brotin með því að vaxta- ákvörðunin hafi verið tekin úr höndum bankans. „Nei, þess vegna varð Seðlabankinn að vera með í þessu. Þótt Seðlabankinn taki ákvörðunina þá er hún í samræmi við það samkomulag sem liggur fyrir og Seðlabankinn vissi það.“ Fréttablaðið óskaði í gær eftir svörum frá Seðlabanka við spurn- ingum varðandi stýrivaxtahækkun- ina. Svara var óskað samdægurs. Við því var ekki orðið. svavar@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is Óljóst hver ákvað stýrivaxtahækkun Seðlabankinn gefur í skyn að hann hafi ekki komið að stýrivaxtahækkun; það hafi verið bundið í samkomulag ríkisstjórnar og IMF. Ráðherrar segja bankann hafa verið með í ráðum enda sé annað brot á sjálfstæði hans samkvæmt lögum. I. Var ákvörðun sú um vexti, sem kynnt var 28. október sl., tekin skv. 10 gr. laga um Seðlabanka Íslands, sbr. 1. gr. um sjálfstæði hans? II. Var við undirbúning þeirrar ákvörðunar farið eftir starfsreglum um undir- búning, rökstuðning og kynningu ákvarðana í peningamálum? III. Hafi verið vikið frá þeim reglum, í hvaða greinum var það? IV. Byggir ákvæðið í 19. tl. samkomulags ríkisstjórnarinnar og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (letter of intent), á ákvörðun Seðlabankans eða lítur bankastjórnin svo á að nefnt ákvæði feli í sér fyrirmæli frá ríkisstjórn um vaxtaákvarðanir? V. Til hvaða yfirlýsinga ráðherra í ríkisstjórn Íslands er vísað í athugasemd bankans frá í dag? SPURNINGAR FRÉTTABLAÐSINS TIL SEÐLABANKA Eins og kunnugt er hefur verið litið svo á að samningsgerð (Letter of Intent) á milli ríkisstjórnar Íslands og sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé enn trúnaðarmál. 19. tl. samningssgerðarinnar er þó eðli málsins samkvæmt ekki lengur trúnaðarmál. Ráðherrar úr ríkisstjórn hafa undrast vaxtahækkun í 18% og hafa jafnframt sagt að ekkert ákvæði um slíka gjörð sé í samningsgerðinni. Í samnings- gerðinni segir í 19. tl: „To raise the policy interest rate to 18 percent.“ Lög um Seðlabanka Íslands: 1. gr. Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins. 10. gr. Seðlabanki Íslands ákveður vexti af innlánum við bankann, af lánum sem hann veitir og af verðbréfum sem hann gefur út. ATHUGASEMD FRÁ SEÐLABANKA ÍSLANDS STÝRIVEXTIR HÆKKAÐIR Davíð Oddsson, formaður stjórnar Seðlabankans, tilkynnti um umdeilda stýrivaxtahækkun á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR EFNAHAGSMÁL Öllum starfsmönn- um Skjásins, sem sér um rekstur Skjáseins, var í gær sagt upp. Upp- sagnirnar taka gildi 1. nóvember. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins, segir þó enn mikinn hug í fólki og vilja til að róa lífróður fyrir fyrirtæk- inu áður en uppsagnarfresturinn rennur út en hann er að jafnaði þrír mánuðir að lengd. Fjörutíu fastráðnir starfsmenn hafa starf- að hjá fyrirtækinu auk fimm verk- taka. Sigríður segir tvennt þurfa að gerast til að grundvöllur sé fyrir áframhaldandi starfsemi Skjásins. Í fyrsta lagi þurfi stjórnvöld að koma á eðlilegu samkeppnisum- hverfi í líkingu við það sem ger- ist annars stað- ar á Norðurlönd- um og hins vegar koma gjaldeyrisvið- skiptum í lag svo kaupa megi efni frá erlend- um birgjum. Sigríður telur undarlegt að á meðan gríðarlegur samdráttur hafi orðið á auglýsingamarkaði sem reyni mjög á sjálfstæða sjón- varpsstöð sem byggi tekjur sínar einvörðungu á auglýsingum þurfi þær einnig að keppa við ríkisrekna sjónvarpstöð um þær reytur sem eftir séu. Þorsteinn Þorsteinsson, mark- aðsstjóri RÚV, segir illt í ári alls staðar í samfélaginu og samdrátt- ur á auglýsingamarkaði reyni á alla fjölmiðla, ekki bara Skjáinn. Honum þyki leitt að Skjárinn hafi þurft að grípa til uppsagna. Hann telji hins vegar ómögulegt fyrir þá sem þar stjórna að varpa sökinni yfir á RÚV. „Þar fyrir utan er ég ekki viss um að rekstrargrundvöll- ur fyrir Skjáeinum hafi nokkurn tímann verið fyrir hendi,“ segir hann. - kdk Skjárinn vill láta endurskoða samkeppnisumhverfi fjölmiðla: Öllu starfsfólki Skjásins sagt upp Frítt í sund í Þorlákshöfn Öll börn og ungmenni á leik- og grunnskólaaldri frá frítt í sund í Þorlákshöfn frá og með 1. janúar næstkomandi. Bæjaryfirvöld í Sveit- arfélaginu Ölfusi ákváðu þetta nýlega en með þessu vilja þau leggja sitt af mörkum til að standa vörð um vel- ferð barna í sveitarfélaginu og milda áhrif sem slæmt efnahagsástand getur haft á börnin. ÞORLÁKSHÖFN Ert þú með yfirdrátt í banka eða sparisjóði? JÁ 52,8% NEI 47,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Þekkir þú einhvern sem hefur misst vinnuna í þessum mán- uði? Segðu skoðun þína á vísir.is Gott veganesti „Það er afar gott að fá svona vega- nesti fyrir daginn,“ segir Ragnar Jör- undsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, en á Patreksfirði beið falleg orðsend- ing og konfektmoli undir rúðuþurrk- um bíla bæjarbúa í gærmorgun frá leynihópi sem kallar sig F.f. Ragnar sagði ekki veita af smá hvatningu þar enda efnahagsástandið í þjóðfélaginu erfitt nú um stundir. PATREKSFJÖRÐUR SIGRÍÐUR MAR- GRÉT ODDSDÓTTIR ATVINNA Fjölmiðlafyrirtækið 365 hf., sem meðal annars gefur út Fréttablaðið, hefur ákveðið að segja yfir tuttugu manns upp störfum nú um mánaðamótin. Fyrirtækið grípur einnig til launalækkana til að bregðast við breyttu efnahagsástandi. Í bréfi Ara Edwald, forstjóra 365, til starfsmanna kemur fram að mikill samdráttur sé á auglýsingamarkaði eins og víða í efnahagslífinu. Ekki verði lagðar niður einingar innan fyrirtækis- ins og fyrirtækið ætli sér að komast í gegnum erfiðleikana, sem geti tekið mánuði eða jafnvel ár. - shá Uppsagnir og lækkun launa: 365 hf. segir upp starfsfólki KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.