Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 4
4 31. október 2008 FÖSTUDAGUR VINNUMARKAÐUR Hundruð uppsagnarbréfa hafa streymt til landsmanna nú fyrir mánaðamótin. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, segir að uppsagnirnar í lok þessarar viku skipti nú þegar nokkur hundruðum. Hann á von á því að uppsagnir iðnaðarmanna geti farið upp í samtals 600-700 í október. Inni í þessum tölum eru uppsagnir hjá verktakafyrirtækj- um á borð við BYGG, Ístak og Klæðningu en síðastnefnda fyrirtækið hefur sagt upp rúmlega fimmtíu starfsmönnum. Fjölmörg fyrirtæki hafa tilkynnt starfs- mönnum sínum um hagræðingaraðgerðir, styttra starfshlutfall, launalækkun og niðurfellingu allrar eftirvinnu. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir eitthvað um uppsagnir í verslunargeiranum en VR hafi ekki nákvæmar tölur um það. „Það er ljóst að það er þó nokkuð um uppsagnir. Víða er verið að bjóða minnkað starfshlutfall og það verður hver og einn að gera upp við sig,“ segir hann. Þjónustu Vinnumálastofnunar hefur verið breytt til að auka skilvirkni við móttöku, skráningu og ráðgjöf við atvinnulausa. Vefskráning verður tekin í gagnið í dag. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofn- unar, segir að með henni eigi skráning að ganga hraðar, vera nákvæmari og minna álag á starfsfólki. „Fólk getur með þessu fyllt út umsókn um atvinnuleysisbætur á netinu heima hjá sér og sent til okkar,“ segir hann. Unnið er að fjölgun starfsfólks við móttöku og grunnráðgjöf með opnun sérstakrar móttökumiðstöðvar á höfuðborg- arsvæðinu auk þess sem teknir verða upp kynningarfundir fyrir stærri hópa í stað einstaklingsviðtala. Ráðgjafarþjónustan verður endurskipulögð. Teknir verða hópfundir með fólki með líkan bakgrunn í menntun eða störfum. Þá verða settar upp miðstöðvar til að veita fólki ráðgjöf og stuðn- ing. Stefnt er að því að móta tillögur um vinnumarkaðsúrræði. Áhersla er lögð á að greina þann hóp sem er á atvinnuleysisskrá og afla upplýsinga til að meta hvaða hópar þurfi líklegast þjónustu á næstunni. ghs@frettabladid.is Hundruð fá uppsagnarbréf Íslendingar hafa hundruðum saman fengið uppsagnarbréf fyrir mánaðamót og fjölmargir hafa neyðst til að minnka við sig vinnu eða lækka í launum. Atvinnulausir eru sárir og segja enga vinnu að hafa. Mikael Ágúst Guð- mundsson hefur starfað á vinnu- vélum, nú síðast á Egilsstöðum. Fyrir- tækið á Egilsstöð- um varð að hætta með jarðvinnu- deildina og því er hann kominn aftur til Reykjavíkur og búinn að skrá sig atvinnulausan enda búsettur í Reykjavík. Mikael Ágúst var að vinna hjá öðrum vinnuveitanda á höfuðborgarsvæð- inu áður en hann fór austur en þar var líka sagt upp vegna samdráttar. „Ég flutti bara út á land til að fá vinnu en er búsettur hérna í Reykjavík. Ég fer bara þangað sem vinnan er,“ segir hann. „Það er engin vinna núna neins staðar eða ég held ekki. Ég er búinn að sækja um á nokkrum stöðum en það er ekkert að hafa þannig að maður verður bara að skrá sig atvinnulausan.“ Mikael Ágúst hefur einu sinni áður skráð sig atvinnulausan og það var í niðursveiflunni árið 1992. „Það er slæmt fyrir alla að vera atvinnulaus- ir,“ segir hann og telur forystumenn þjóðarinnar ekkert gera til að laga ástandið. Hann segir að þeir eigi að byrja á því að hætta að ljúga að fólki. Þeir segist alltaf ætla að redda fólki en geri svo ekkert í því. „Ég hef allavega ekki orðið var við það.“ Mikael Ágúst rifjar upp að þingmenn og ráð- herrar tali um að fólki þurfi að taka á sig ákveðinn skell í þjóðfélaginu og spyr hvort þeir taki ekki á sig skell. „Ég heyri ekki minnst á að þeir ætli að lækka launin hjá sér meðan flestir aðrir sætta sig við lægri laun eða minnkað starfshlutfall. Ég kalla það ekki skerðingu að bankastjóri lækki í launum niður í 1.700 þúsund,“ segir hann. - ghs SLÆMT FYRIR ALLA AÐ VERÐA ATVINNULAUS Hjörtur Elíasson kom í fyrsta skipti í gær inn í Vinnumiðlun höfuðborgarsvæð- isins til að skrá sig atvinnulausan. Hann hefur starfað í bygg- ingariðnaði frá því hann man eftir sér, nú síðast sem bygg- ingastjóri. Hjörtur er trésmiður að mennt, lauk á sínum tíma meistaraskólanum og hefur undanfarið ár verið byggingastjóri hjá verktakafyrirtæki sem varð að segja öllum upp. „Þetta var ótrúleg reynsla. Mér fannst eins og ég væri að koma þarna að sníkja eitthvað. Ég er miður mín,“ segir Hjörtur um leið og hann horfir á strauminn af fólki fara inn og út um anddyri þjón- ustuskrifstofunnar. „Ég er orðinn atvinnulaus og búinn að vera það í mánuð. Ég hef verið að leita mér að vinnu en það er ekkert að fá og það þýðir ekkert að leita. Ég þekki flest byggingafyrirtækin og það er búið að segja upp nánast öllum mannskapnum. Það er sorglegt að sjá byggingar og framkvæmdasvæði standa auð, það er ekkert fólk að vinna,“ segir hann. Hjörtur segir að atvinnuleysið hafi komið mjög skyndilega og því hafi hann ekki haft tíma til að átta sig á því. Hann segist hafa talað við bankastjórann til að kanna hvort hægt sé að fá fjármögnun og hefja framkvæmdir en nú séu allir að skila lóðum, ekki sé lánað til neinna framkvæmda og útboðum frestað. „Það er sama hvað maður reynir, það er bara allt frosið í þjóðfélaginu.“ Hjörtur keypti bíl með bílaláni fyrir ári síðan. Mán- aðarleg afborgun hefur hækkað úr 15 þúsundum í 42 þúsund í dag. „Núna lifir maður bara á yfir- drætti,“ segir hann. - ghs HEFUR LEITAÐ AÐ VINNU EN ÞAÐ ER ENGA AÐ FÁ VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 18° 8° 13° 6° 8° 8° 9° 8° 7° 7° 22° 9° 16° 24° 2° 6° 19° 10° 3 Á MORGUN 8-18 m/s hvassast norðan til SUNNUDAGUR Fremur hvöss sunnan átt, einkum vestan til 9 2 8 14 14 15 10 10 5 8 5 15 10 6 4 3 4 4 8 5 3 0 4 VINDUR MEÐ HLÝINDUM Í dag verður vinda- samt af suðvestri á landinu. Hvassast verður á Vestfjörð- um og á landinu norðanverðu og gæti vindhraði slegið í 20 m/s við ströndina auk þess sem hviðu- kennt kann að verða í námunda við fjöll. Sunnan til og austan verður vindur nokkuð hægari. Hlýindi ganga inn á landið í dag fyrst vestan til og norðan. 8 8 8 6 10 7 4 8 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur Nostrum eins árs! Í tilefni af eins árs afmæli okkar bjóðum við 10% – 20% afslátt í dag og á morgun laugardag. Verið velkomin Íslensk hönnun og framleiðsla. Skólavörðustíg 1a • S. 534 5286 EINS OG AÐ SNÍKJA „Mér fannst eins og ég væri að koma þarna að sníkja,“ segir Hjörtur Elíasson bygginga- stjóri sem í gær skráði sig atvinnulausan í fyrsta skipti á ævinni. ELTIR VINNUNA „Ég fer bara þangað sem vinnan er,“ segir Mikael Ágúst Guðmundsson sem starfað hefur á vinnu- vélum, síðast á Egilsstöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands í þvagleggsmálinu svokallaða. Þar var kona dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Að auki var hún dæmd til að greiða 160 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs, auk sviptingar ökuréttar í eitt ár. Málið var mikið til umfjöllunar á sínum tíma þar sem þvagsýni hafði verið tekið með þvaglegg úr konunni nauðugri á lögreglustöð- inni á Selfossi. Hún var ákærð fyrir ölvunarakstur og hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna á lögreglustöð eftir að hún var tekin. - jss Dómur í þvagleggsmáli: 30 daga skilorð staðfest INDLAND, AP Að minnsta kosti 60 manns létu lífið og meira en 300 særðust þegar sprengjur sprungu á þrettán stöðum í norðaustur- hluta Indlands í gær. Þetta er með verstu sprengju- árásum í þessum landshluta, þar sem aðskilnaðarstefna og þjóðernisátök eru algeng. Stærsta árásin var gerð skammt frá stjórnarbyggingu í Assam, og mátti sjá lík, bifreiðar og vélhjól liggja eins og hráviði á götunni eftir árásina. Nærri helmingur þeirra sem fórust voru í Gauhati, höfuðborg Assam-héraðs. Sprengjurnar voru í bílum eða hjólavögnum og sprungu allar nánast samtímis. - gb Sprengingar á Indlandi: Tugir manna létu lífið ELDUR LOGAR Á INDLANDI Sprengjur sprungu nánast samtímis á þrettán stöðum. NORDICPHOTOS/AFP Vegna fréttar af væntanlegri komu Dalai Lama til Íslands vill Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarkona utanríkis- ráðherra, koma eftirfarandi á framfæri: „Fréttablaðið hafði samband við mig fyrir rúmum tveimur vikum og vildi grennslast fyrir um mögulega aðkomu utanríkisráðuneytisins að mögulegri heimsókn Dalai Lama til landsins. Undirrituð sagði að hún gæti ekki staðfest neitt um þetta mál en myndi athuga það. Ekkert frekar heyrðist frá Fréttablaðinu. Hinn 30. október birtist hins vegar frétt sem er því miður röng að því er varðar utanríkisráðuneytið eins og ég hefði sagt blaðinu hefði það haft samband, eins og um var rætt.“ ÁRÉTTING DANMÖRK Danskur atvinnurekandi hefur aumkað sig yfir hóp íslenskra stúdenta við íþróttaháskólann í Árósum og gefið 150 þúsund dansk- ar krónur, eða jafnvirði um þriggja milljóna íslenskra króna, að sögn danska ríkisútvarpsins DR, til að styðja þá til áframhaldandi náms í vetur. Vonast er til að gjafmildin smiti út frá sér. Sjö íslenskir nemendur voru á mörkum þess að halda heim vegna þess að þróunin á fjármálamörk- uðum hefur gert þeim ókleift að greiða fyrir mat og uppihald í Dan- mörku. Atvinnurekandinn hefur sambönd til Íslands og hefur nú tryggt áframhaldandi dvöl þeirra í Danmörku með gjöf sinni og hafa fjórir þeirra þegið stuðninginn. Gjöf atvinnurekandans hefur einnig orðið til þess að íþróttahá- skólinn hefur opnað síðu á Face- book undir yfirskriftinni „Because we care“ til að safna peningum fyrir Íslendinga sem eru í peninga- vandræðum í Danmörku. Á síð- unni geta allir þeir Íslendingar sem eru í fjárhagsvandræðum í Danmörku, hvort sem það eru íþróttamenn, stúdentar eða lista- menn, sótt um fjárhagsstyrk. „Við höfum fengið vísbendingar um að aðrir vilji fylgja fordæminu og hjálpa til. Og svo verðum við líka sjálf með uppákomur til að safna peningum,“ segir rektor háskólans, Henrik Løvschall við dönsku fréttastofuna Ritzau. - ghs SÖFNUN Á FACEBOOK Íslendingar í íþróttanámi í Danmörku hafa fengið óvæntan stuðning. Söfnun er hafin á Facebook. Danskur íþróttaháskóli safnar fyrir Íslendinga á Facebook: Dani styður fjóra Íslendinga GENGIÐ 30.10.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 205,1982 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 116,14 116,7 193,04 193,98 152,57 153,43 20,481 20,601 17,702 17,806 15,502 15,592 1,1775 1,1843 174,99 176,03 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.