Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 54
34 31. október 2008 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KREPPAN LÁRÉTT 2. steintegund, 6. ógrynni, 8. gegn- sær, 9. kóf, 11. voði, 12. hólf, 14. mat- arsamtíningur, 16. klafi, 17. atvikast, 18. fát, 20. tveir, 21. þjappaði. LÓÐRÉTT 1. tónlistarstíll, 3. ólæti, 4. fugl, 5. knæpa, 7. svikull, 10. fúadý, 13. framkoma, 15. afgangur, 16. tíðum, 19. svörð. LAUSN LÁRÉTT: 2. kalk, 6. of, 8. tær, 9. kaf, 11. vá, 12. klefi, 14. snarl, 16. ok, 17. ske, 18. fum, 20. ii, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. rokk, 3. at, 4. lævirki, 5. krá, 7. falskur, 10. fen, 13. fas, 15. leif, 16. oft, 19. mó. „Ég hef aldrei sótt lífshamingju mína í mammon enda lítinn þátt tekið í græðgissamfé- lagi síðustu ára. Ég tók strax ákvörðun um að horfa áfram á bjartari hliðar tilverunnar, því vinátta, hlýja og kærleikur eru margfalt dýrmætari en dem- antar!“ Hermann Gunnarsson útvarpsmaður. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Frá Rússlandi. 2 Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson. 3 Guðjón Valur Sigurðsson. Vefútgáfa danska dagblaðsins Extrabladet heldur áfram að fjalla um efnahagshrun Íslendinga. Með sínu nefi. Mörgum fannst heldur grátt gaman hjá vefsjónvarpi blaðsins þegar tveir blaðamenn hófu að safna peningum fyrir Íslendinga í söfnunarbauk. En nú er ljóst að danska þjóðin er smám saman að missa þolinmæðina gagnvart íslensku athafnamönnun- um sem lögðu undir sig mörg af þekktustu vörumerkjum Dana. Blaðamaðurinn Fredrik Bjerre Andersen lætur þannig að því liggja í nýrri umfjöllun vefsjón- varpsins að nú eigi danskir neytendur hreinlega að planta sér fyrir utan aðrar verslanir sem hafi íslenska tengingu og bíða eftir rýmingarsölunni. Því þess sé ekki langt að vænta að þær fari sömu leið og Merlin. Andersen leggst síðan niður fyrir framan Illum og Magasin du Nord með miða sem á stendur: „Bíð eftir næstu rýming- arsölu.“ Til að stytta sér stundir drekkur Andersen síðan Royal- bjórinn sem er einnig að hluta til í eigu Íslendinga. Lesendur geta síðan tekið þátt í könnun á vegum blaðsins. Og niðurstöðurnar gefa það glöggt til kynna að Dönum er hreinlega heitt í hamsi. Meira en helmingur telur að eigur Íslendinga í Danmörku hafi glatað hinum danska sjarma og verði því að redda sér sjálfar. Helmingur dönsku þjóðarinnar trúir því ekki að Sterling verði endurreist og þegar spurt er hvaða „íslenska“ fyrirtæki fari næst á hausinn í Danmörku stendur ekki á svörunum. 46 prósent spá því að Magasin Du Nord fari fyrst en aðeins einn af hverjum tíu telja að Illum verði næsta fórnarlamb íslensku efnahagslægðarinnar. - fgg Danir bíða eftir gjaldþrotum Íslendinga Rúmlega 1.500 manns hafa séð á síðunni Youtube myndband þar sem gert er grín að umfjöllun sjónvarpsþáttarins Kompáss um handrukkara. Mennirnir á bak við mynd- bandið eru þeir Helgi Jean Claess- en og Hjálmar Jóhannsson, sem gáfu fyrir síðustu jól út bókina Konur eru aldrei hamingjusamar því þær eru með svo litlan heila, þar sem gert var grín að bók Þor- gríms Þráinssonar, Hvernig ger- irðu konuna þína hamingjusama? „Við fórum að hugsa þetta eftir að við sáum samtölin í þættinum inni á Vísir.is.,“ segir Helgi og líkir Kompás-þættinum við senu í bíó- mynd. „Þetta var svo flott atriði að það hefði getað verið í hvaða bíó- mynd sem er. Það var flott upp- bygging á þessu og flott hvernig stemningin var búin til. Þetta leit rosalega bíómyndalega út og við ákváðum að gera smá grín að því.“ Helgi segir myndbandið hafa fengið mjög góð viðbrögð en vonar um leið að allir þeir aðilar sem komu nálægt Kompásþættinum séu sáttir. „Þetta er fyrsta skrefið á þessum vettvangi. Við eigum eftir að koma með eitthvað fleira.“ Áhugasamir geta séð myndbandið á slóðinni http://www.youtube. com/watch?v=m1Muq_fb460. - fb Gerðu grín að þætti Kompáss GRÍNISTAR Félagarnir Hjálmar Jóhanns- son (til vinstri) og Helgi Jean Claessen gerðu í myndbandi sínu grín að umfjöll- un Kompáss um handrukkara. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 8 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI Á STIGAGANGINN 250 ÓKEYPIS KROSSGÁTUR NÝ GÁTA Í HVERRI VIKU w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r Auglýsingasími – Mest lesið „Já, þetta er nokkuð gott. Og hlýt- ur að vera mikið gleðiefni hvernig gengið hefur með þessar bækur mínar um allan heim: Þýskalandi, Frakklandi, Svíþjóð, Noregi, Hol- landi og svo í 36 útgáfulöndum öðrum,“ segir Arnaldur Indriða- son metsöluhöfundur. Arnaldur hefur nú náð þeim ein- stæða áfanga að rjúfa fimm millj- óna múrinn. Það er: Hann hefur selt fleiri eintök bóka sinna en fimm milljónir á heimsvísu. Eng- inn núlifandi rithöfundur íslensk- ur kemst með tærnar þar sem Arn- aldur hefur hælana í þessu sambandi. Talið er að bækur Hall- dórs Laxness hafi farið í viðlíka eintakafjölda og hugsanlega Nonna-bækur séra Jóns Sveins- sonar en engar ábyggilegar upp- lýsingar eru fyrirliggjandi þar um. Af þessum fimm milljónum hafa þrjár milljónir selst í Þýskalandi. Arnaldur segist svo sem ekki hafa neinar skýringar á því nema ef vera kynni að þeim Þjóðverjum þyki Erlendur, helsta söguhetja bóka Arnaldar, svona skemmtileg- ur. „Og svo er náttúrlega rótgróinn áhugi á Íslandi þar. Kannski að þetta tvennt ráði þessu,“ segir Arnaldur. Hann segir bærilega hafa gengið með útgáfu bóka sinna á Bandaríkjamarkaði, sem er gríð- arlega stór, en þar er mjög erfitt fyrir nýja höfunda að komast að. Á laugardaginn kemur út ný bók eftir Arnald – Myrká – sem verður frumprentuð í stærra upplagi en áður hefur þekkst á Íslandi eða í uppundir þrjátíu þúsund eintök- um. Plastið verður rifið af bóka- brettinu með viðhöfn í Eymunds- son við söng Lögreglukórsins auk þess sem upplesari Íslands, Hjalti Rögnvaldsson leikari, mun lesa upp úr bókinni. Aðspurður hvort ekki gæti spennu hjá höfundi í tengslum við þetta segir Arnaldur: „Þetta er nú tólfta bókin á jafn mörgum árum. Maður er farinn að taka því aðeins rólegar en auðvitað er alltaf spenningur.“ Egill Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins, er að vonum ánægður með árangurinn: „Þjóðverjar elska Arnald. Það er ljóst. Frábær árangur hjá Arnaldi að vera búinn að selja þrjár mill- ljónir eintaka í Þýskalandi einu. Ekki eru til nákvæmar tölur um hversu mörg eintök bóka Arnaldar hafa selst á Íslandi en slá má á að þau séu rúmlega 300 þúsund sem þýðir eitt eintak á hvern íbúa. Sem hlýtur að teljast tækt í heimsmeta- bók Guinness,“ segir Egill. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins mun Myrká koma lesend- um á óvart burtséð frá þeim glæp sem um ræðir en sjálfur Erlendur kemur nánast ekkert við sögu heldur virðist hann týndur á fjöll- um. Yfirgefinn bílaleigubíll hans finnst við kirkjugarð austur á fjörðum og er það því Elínborg sem leiðir málið. Og fá lesendur meðal annars að kynnast betur matargerðaráhuga hennar sem má heita tilbreyting frá fábreyttri fæðu sem Erlendur lögreglufor- ingi leggur sér til munns. jakob@frettabladid.is EGILL ÖRN: ÞJÓÐVERJAR ELSKA ERLEND LÖGREGLUFORINGJA Arnaldur Indriðason rýfur fimm milljóna múrinn DANIR HALDA ÁFRAM Lesendur Ekstrablaðsins spá því að Magasin verði næsta fyrirtækið í Danmörku sem fari á hausinn vegna efna- hagsþrenginganna á Íslandi. Skáldin leggja eitt af öðru eitthvað til mál- anna í kreppunni. Nú er komið að Óttari M. Norðfjörð, en hans innlegg, teiknimynda- sagan Tíu litlir bankastrákar er væntanleg. Í bókinni tapa níu bankastrákar tölunni og fyrstur til að fara er Hannes Smárason. Í lokin er bara Davíð Oddsson eftir. Þá stendur í bókinni: „Hann sótti handjárnin og hjakkaðist á píu og fyrr en varði urðu bankastrákarnir aftur tíu.“ Í fyrra gaf Óttar út teiknimyndabók- ina Jón Ásgeir og afmælisveislan, sem fjallaði um góðærið. Glænýtt myndband við lagið Kate Bush á væntanlegri plötu Hauks Magnús- sonar og félaga í rokksveitinni Reykjavík! er komið á netið. Myndbandið fer varla í mikla spilun á Skífu TV enda hvorki sætar stelpur í því né sætir strákar að spila á hljóðfæri. Í staðinn er þysjað inn og út á eina af risa- byggingunum í Höfðatorgi, eins konar draugagangur góðærisins, vill sveitin meina. Á heimasíðu Höfða- torgs segir hins vegar að Reykjavík „iði af orku og athafnagleði” og að „mannlífið blómstri og menningin dafni”. Alllangt er síðan heimasíðan var uppfærð. Kolfinna Baldvinsdóttir og félagar hennar í baráttusamtökun- um Nýjum tímum hafa kynnt nýja útgáfu af fána samtakanna. Frétta- blaðið sagði í gær frá óánægju með fyrri fána samtakanna, en Dóra Ísleifsdóttir sagði hann nasistalegan í samtali við blaðið. Samtökin virðast hafa tekið gagn- rýni Dóru alvarlega. Um miðjan dag í gær hafði rauður litur fánans verið tónaður mikið niður á heimasíðu samtakanna. Síðdegis í gær kom svo nýi fáninn inn á síðuna. Hann er byggður á grunni íslenska fánans, sem er einmitt hugmynd sem téð Dóra vildi fá fram. - drg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI ARNALDUR IND- RIÐASON Hefur nú náð þeim einstæða árangri að selja yfir fimm milljónir eintaka bóka sinna - þar af þrjár milljónir í Þýskalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.