Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 26
4 föstudagur 31. október núna ✽ hláturinn lengir lífið … ✽ algjört möst 1 3 4 Getur þú lýst þínum stíl? Ég er algjört kamelljón þegar kemur að fatnaði. Hvað dreymir þig um að eign- ast fyrir veturinn? Mig lang- ar í kósý kjólapeysu, Það væri óskandi að fá stærri fataskáp þar sem ég bý í lítilli íbúð á Lauga- vegi eins og er. Ég væri meira en til í flottar leðurbuxur og ég þrái ekkert heitar en að endurheimta Patriziu Pepe-dúnúlpuna mína sem virðist hafa gufað upp við síðustu flutninga, þeir sem vita um hana vinsamlegast hafið sam- band! Hvað keyptir þú þér síðast? Fyrir stuttu gerði ég mér glað- an dag hjá myndarlegum skvís- um sem voru með fatamarkað á Hverfisgötunni og fjárfesti í kjóla- peysu, samfestingi og pallíettu- toppi.Ég er enn í skýjunum yfir þessum góðu kaupum. Ég dýrka samfestinga þó það geti reynst pínu erfitt að skreppa á klósett- ið í þeim. Uppáhaldsverslun? Ég er sjúk í „vintage/second-hand“-búðir og hér á Íslandi er uppáhaldið mitt Rokk og rósir, ég verð aldrei vonsvikin þegar ég kíki þangað. Í Fríðu frænku leynast alls konar gersemar og Kron Kron er glæsi- leg verslun, ég elska að kíkja þangað og skoða gullfallegar flíkur þó ég eigi ekki mikið þaðan í fataskápnum mínum. Uppáhaldsfatamerki? Patrizia Pepe er í miklu uppáhaldi ásamt Jimmy Choo, en ég er mikill skó- fíkill. Mér finnst kjólarnir hjá Hervé Légér afskaplega falleg- ir og mig dreymir um að eignast einn slíkan í framtíðinni. Finnst þér merkið á fötun- um skipta máli? Merkjavörur eiga það til að endast mun leng- ur að mínu mati en það er alls ekki mikilvægt að velja á sig föt bara eftir merki, Mér finnst lang- skemmtilegast að blanda saman hönnun og „second-hand“ og geri það gjarnan, ég geng til að mynda mjög oft í minni eigin hönnun. Eru einhver tískuslys í fata- skápnum þínum? Nei, ég er nefnilega ekki með öll fötin mín hérna heima en það er bókað mál að eflaust er hægt að finna eitthvað alveg hrikalegt ef ég myndi fara í geymsluna mína. Í hvað myndir þú aldrei fara? Doppóttar flíkur því ég hef aldrei þolað þær. Hvaða snið klæðir þig best? Það er ekkert endilega eitt snið sem hentar mér best, ég skoða tímarit í miklum mæli og er alltaf að finna upp á einhverju nýju til þess að prófa mig áfram. Ég tel samt að formlausar flíkur klæði nánast engan en það er ekkert sem belti getur ekki fixað. Af hvaða líkamsparti ertu stoltust og hvernig undir- strikar þú það í klæðaburði? Ég reyni að leggja áherslu á mitt- ið, ég fæ aldrei nóg af mittispils- inu mínu því það er svo kvenlegt og flörtí. Svo nota ég belti í mitt- ið óspart. Hvert er skuggalegasta fata- tímabilið þitt? „Skopparatíma- bilið mikla“ þar sem ég gekk um götur í Fubu-gallabuxum sem héngu fyrir neðan rass og það var ekkert meira kúl en Tupac-höf- uðbandið mitt. Ég var í Buffalo- skóm til þess að fullkomna dress- ið og þeir voru ekki einu sinni al- vöru heldur úr Hagkaupum! 1 Kjóll úrí Rokki og rósum. Leggings frá Aftur. 2 Pönkdrottningin Vivienne Westwood hannaði þessa tösku. Pattra fékk hana í af- mælisgjöf. 3 Jimmy Choo hælaskór sem voru keyptir á Spáni. 4 Þennan svarta kjól hannaði hún sjálf. Rósabeltið er í raun klút- ur frá Patriziu Pebe og keyptur í GK. 5 Dol- ce&Gabbana „mittispils“ sem keypt var á Spáni. 6 Pelsinn fékk hún fyrir slikk í Glam- úr. 7. Perlufestar úr Fríðu frænku. 21 3 4 6 5 Pattra Sriyanonge, verðandi leikkona KAMELLJÓN Í KLÆÐNAÐI 7 Superfit-mak- eup frá Clin- ique sem gefur létta og fallega áferð. Ekki veitir af á þessum tímum. Partíbuxurnar í ár fást í Ilse Jacobsen. Immortelle er leyndarmál ei- lífrar æsku. Þetta er olía sem er borin á húðina á nótt- unni til að gera hana unga og ferska. Gallalínan frá G-Star er afar flott fyrir bæði kyn. Vörurnar fást í sam- nefndri verslun á Lauga- veginum. 2 HRÆDDUR UM LÍF SITT Lítið hefur farið fyrir Sigurjóni Árnasyni, fyrrver- andi forstjóra Landsbankans, upp á síðkastið. Föstudagur hefur þó heimildir fyrir því að hann taki enga sénsa og sé búinn að ráða lífvörð í fullt starf sem búi á heimili Sigurjóns daga og nætur og fylgi honum hvert fótmál.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.