Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 22
„Ég er að fara af stað með námskeið
þar sem ég kenni fólki að nota baun-
ir, heilt korn og annað virkilega
ódýrt hráefni í meira mæli, því allt
er það notadrjúgur og bráðhollur
efniviður í matargerðina. Þannig
eykst getan til að halda áfram að
velja sér lífrænan og hollan kost
þótt ástandið sé nú eins og það er,“
segir Sólveig Eiríksdóttir matar-
hönnuður, sem í næstu viku fer af
stað með „kreppunámskeið“ í
kennslueldhúsi Hagkaupa í Holta-
görðum.
„Ég óttast að fólk láti minni aura-
ráð bitna á matseðlinum í kreppunni,
en það er í senn óskynsamlegt og
má ekki gera börnunum. Í velmeg-
uninni sofnuðum við mörg á verðin-
um og nýttum okkur í meiri mæli
tilbúna rétti en námskeiðið færir
okkur til baka að upprunanum,
þegar við eyddum meiri tíma í eld-
húsinu við dugandi búráð og mats-
eld frá grunni,“ segir Sólveig sem
ítrekar að hollustumatseld sé leikur
einn þegar kunnátta sé til staðar.
„Margir telja mikið mál og tíma-
frekt að leggja baunir í bleyti og
nota áfram, en það er svo margt
fleira hægt að gera við baunir en að
sjóða þær í grænmetisbuff. Til
dæmis má drýgja hamborgara með
baunum og nota þær í pottrétti, en
þannig verður maturinn næringar-
ríkari, drýgri og ódýrari, sem öllu
skiptir í dýrtíðinni nú. Á sama tíma
hefur úrval gæðahráefnis aukist í
verslunum og margt bæði hollt og
bragðgott í boði sem nýta má fyrir
lítið fé,“ segir Sólveig sem á nám-
skeiðinu ætlar að kenna nemendum
sínum að baka brauð, útbúa með-
læti, salöt, aðalrétti og ábætisrétti.
„Réttirnir eiga allir sameiginlegt
að vera með eindæmum einfaldir,
fljótlegir, ódýrir og hollir, og í fram-
haldi verð ég með námskeið í mat-
reiðslu hráfæðis, sem er meðal þess
vinsælasta í dag, en með hráfæði er
átt við matreiðsluaðferð þar sem
reglan er að hita hráefni ekki upp
fyrir 47 gráður,“ segir Sólveig sem
verður með eftirréttanámskeið
þegar nær dregur jólum.
„Á aðventunni er dásamlegt að
geta lifað í vellystingum og borðað
kökur og sætindi með góðri sam-
visku, því hægt er að gera ótrúlega
góða hluti í kökugerð með rétta hrá-
efninu.“
Skráning á www.himnesk.is.
thordis@frettabladid.is
Hagkvæm hollusta Sollu
Þegar vetur gengur í garð með víðtækum hörkum í veðri og efnahag er tími til kominn að leita hófanna í
íslenskri nýtni, heimagerðum mat og dugandi húsráðum kunnáttufólks í hagkvæmum kosti.
Sólveig Eiríksdóttir er menntaður textílhönnuður sem fór úr ullinni yfir í kálið og er
því nú matarhönnuður. Hún er Íslendingum að góðu kunn fyrir frábær og dugandi
ráð í hollustumatseld og ógrynni unaðslegra uppskrifta sem allar stuðla að heilnæm-
um kroppi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ASIAN á Suðurlandsbraut hefur um tíma selt tilbúinn mat fyrri hluta
dags sem hægt er að taka með heim. Nú hefur afgreiðslutíminn verið
lengdur til 19.30 svo líka er hægt að notfæra sér þessa þjónustu þegar
kemur að kvöldmat.
FYLLTAR KJÚKLINGA-
BRINGUR
Unnur María býður upp á fylltar
kjúklingabringur þegar hún vill
gera sérstaklega vel við gesti.
Skerið paprikur í fjóra hluta, penslið
þær með ólífuolíu og grillið í ofni á
230 gráðum þangað til þær byrja
að sviðna vel. Látið kólna í skál
undir plastfilmu.
Skerið kjúklingabringurnar í
tvennt á þykktina og bankið með
buffhamri. Fyllið með papriku,
geitaosti og spínati. Rúllið upp og
festið saman með sláturgarni eða
tannstönglum. Bakið bringurnar við
190 gráður þar til þær eru fallega
gylltar.
Sósan er búin til með því að sjóða
saman berjavín og soð af kjúkl-
ingabringunum, salt og pipar eftir
smekk og smá sítrónusafa. (Ef þið
eigið ekkert berjavín, prófið þá
trönuberjasafa eða góða sultu).
Þykkið með því að hrista saman
kalt vatn og maísenamjöl og hella
út í.
UPPSKRIFT UNNAR
!"
!"
!"
!"
!"
!"
Misty skór
Laugavegi 178 • Sími: 551 2070
Opið: mán - fös: 10 - 18 • lau: 10 - 14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Auglýsingasími
– Mest lesið