Fréttablaðið - 31.10.2008, Side 22

Fréttablaðið - 31.10.2008, Side 22
„Ég er að fara af stað með námskeið þar sem ég kenni fólki að nota baun- ir, heilt korn og annað virkilega ódýrt hráefni í meira mæli, því allt er það notadrjúgur og bráðhollur efniviður í matargerðina. Þannig eykst getan til að halda áfram að velja sér lífrænan og hollan kost þótt ástandið sé nú eins og það er,“ segir Sólveig Eiríksdóttir matar- hönnuður, sem í næstu viku fer af stað með „kreppunámskeið“ í kennslueldhúsi Hagkaupa í Holta- görðum. „Ég óttast að fólk láti minni aura- ráð bitna á matseðlinum í kreppunni, en það er í senn óskynsamlegt og má ekki gera börnunum. Í velmeg- uninni sofnuðum við mörg á verðin- um og nýttum okkur í meiri mæli tilbúna rétti en námskeiðið færir okkur til baka að upprunanum, þegar við eyddum meiri tíma í eld- húsinu við dugandi búráð og mats- eld frá grunni,“ segir Sólveig sem ítrekar að hollustumatseld sé leikur einn þegar kunnátta sé til staðar. „Margir telja mikið mál og tíma- frekt að leggja baunir í bleyti og nota áfram, en það er svo margt fleira hægt að gera við baunir en að sjóða þær í grænmetisbuff. Til dæmis má drýgja hamborgara með baunum og nota þær í pottrétti, en þannig verður maturinn næringar- ríkari, drýgri og ódýrari, sem öllu skiptir í dýrtíðinni nú. Á sama tíma hefur úrval gæðahráefnis aukist í verslunum og margt bæði hollt og bragðgott í boði sem nýta má fyrir lítið fé,“ segir Sólveig sem á nám- skeiðinu ætlar að kenna nemendum sínum að baka brauð, útbúa með- læti, salöt, aðalrétti og ábætisrétti. „Réttirnir eiga allir sameiginlegt að vera með eindæmum einfaldir, fljótlegir, ódýrir og hollir, og í fram- haldi verð ég með námskeið í mat- reiðslu hráfæðis, sem er meðal þess vinsælasta í dag, en með hráfæði er átt við matreiðsluaðferð þar sem reglan er að hita hráefni ekki upp fyrir 47 gráður,“ segir Sólveig sem verður með eftirréttanámskeið þegar nær dregur jólum. „Á aðventunni er dásamlegt að geta lifað í vellystingum og borðað kökur og sætindi með góðri sam- visku, því hægt er að gera ótrúlega góða hluti í kökugerð með rétta hrá- efninu.“ Skráning á www.himnesk.is. thordis@frettabladid.is Hagkvæm hollusta Sollu Þegar vetur gengur í garð með víðtækum hörkum í veðri og efnahag er tími til kominn að leita hófanna í íslenskri nýtni, heimagerðum mat og dugandi húsráðum kunnáttufólks í hagkvæmum kosti. Sólveig Eiríksdóttir er menntaður textílhönnuður sem fór úr ullinni yfir í kálið og er því nú matarhönnuður. Hún er Íslendingum að góðu kunn fyrir frábær og dugandi ráð í hollustumatseld og ógrynni unaðslegra uppskrifta sem allar stuðla að heilnæm- um kroppi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ASIAN á Suðurlandsbraut hefur um tíma selt tilbúinn mat fyrri hluta dags sem hægt er að taka með heim. Nú hefur afgreiðslutíminn verið lengdur til 19.30 svo líka er hægt að notfæra sér þessa þjónustu þegar kemur að kvöldmat. FYLLTAR KJÚKLINGA- BRINGUR Unnur María býður upp á fylltar kjúklingabringur þegar hún vill gera sérstaklega vel við gesti. Skerið paprikur í fjóra hluta, penslið þær með ólífuolíu og grillið í ofni á 230 gráðum þangað til þær byrja að sviðna vel. Látið kólna í skál undir plastfilmu. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt á þykktina og bankið með buffhamri. Fyllið með papriku, geitaosti og spínati. Rúllið upp og festið saman með sláturgarni eða tannstönglum. Bakið bringurnar við 190 gráður þar til þær eru fallega gylltar. Sósan er búin til með því að sjóða saman berjavín og soð af kjúkl- ingabringunum, salt og pipar eftir smekk og smá sítrónusafa. (Ef þið eigið ekkert berjavín, prófið þá trönuberjasafa eða góða sultu). Þykkið með því að hrista saman kalt vatn og maísenamjöl og hella út í. UPPSKRIFT UNNAR                                            !"     !"         !"        !"         !"      !"                                       Misty skór Laugavegi 178 • Sími: 551 2070 Opið: mán - fös: 10 - 18 • lau: 10 - 14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.