Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 31. október 2008 3
„Við ætlum að halda heljarinnar
hrekkjavökugleðskap hérna á
Babalú á morgun, laugardag. Gleð-
skapurinn er opinn öllum og það
er ekkert aldurstakmark,“ segir
Glenn Barkin, annar eigenda Bab-
alú kaffihússins í miðborg Reykja-
víkur.
„Við munum bjóða upp á nammi
og kökur fyrir börnin yfir daginn,
en svo verður stemningin kannski
aðeins meira fyrir eldri kynslóð-
ina þegar fer að líða að kvöldi og
við verðum með sérstök hrekkja-
vökutilboð á barnum. Hrekkjavak-
an sjálf er í dag og við erum búin
að breyta staðnum í draugahús. Á
morgun verðum við með alls konar
illa útlítandi en gómsætan mat á
boðstólum og hryllingstónlist
verður spiluð í anda dagsins,“
heldur Glenn áfram og það er ljóst
að andi hrekkjavökunnar er að ná
tökum á honum.
Þótt hrekkjavakan sé í raun og
veru nýjung á Íslandi býst Glenn
við góðri útkomu á laugardaginn.
Hann segist sjálfur hafa haldið
upp á hrekkjavökuna síðastliðin
fimm ár hérna á Íslandi og var í
fyrra með yfir hundrað manns í
hrekkjavökupartíi heima hjá
sér. Hrekkjavakan á Bab-
alú er sú fyrsta sem
hefur verið haldin á
staðnum, en Glenn tók
við rekstri hans í júní
á þessu ári.
„Það er engin
skylda að mæta í bún-
ingi en við mælum
samt sterklega með
því,“ segir Glenn og
bætir við að verðlaun
verði veitt fyrir besta bún-
inginn. Hann segir það hernaðar-
leyndarmál í hverju hann verði en
það séu allar líkur á því hann verði
ekki í sama búningnum báða
dagana. „Laugardagurinn
er fyrir alla fjölskyld-
una og meðal rétta á
boðstólum verða smá-
kökur í laginu sem
grasker; kökur þakt-
ar köngulóarvef og
kirkjugarða-súkkul-
aðikökur skreyttar
legsteinum svo fátt
eitt sé nefnt.“
Andi dagsins verð-
ur fjölskyldutengdur, en
þegar líða fer að kvöldi breyt-
ist dagskrá staðarins örlítið. „Við
setjum reykvélarnar í gang þegar
fer að dimma og ætli tónlistin
verði ekki aðeins draugalegri. Við
setjum ekkert aldurstakmark á
staðinn um kvöldið en hins vegar
býst ég við að foreldrar fari heim
með börnin og mæti síðan barn-
laus aftur í gleðskapinn,“ segir
Glenn og hlær. Tilboð verða á
drykkjum á barnum og mælir
Glenn sérstaklega með snafsi
kvöldsins. „Við bjuggum til heila-
snafs sem við verðum með fyrir
fullorðna fólkið,“ segir Glenn, og
bætir við: „Snafsinn er þannig
útbúinn að það lítur út fyrir að það
sé heili í glasinu.“
agnesosk@frettabladid.is
Ógnvekjandi Kaffi Babalú
Beinagrindur og heilar úr kindum er ekki algengt skraut á veggjum veitingastaða borgarinnar en má þó
sjá á Kaffi Babalú þessa helgi þegar andi hrekkjavökunnar sest þar að.
Það er orðið draugalegt um að litast á Babalú. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jólahlaðborð Villibráð Jólahlaðborð
Villibráð / Jólahlaðborð
Frá 14.11.2008 til 20.12.2008 Bjóðum við uppá skemmti legar og matarmiklar
helgar með Villi bráðarhlaðborði föstudaga og Jólahlaðborði laugardaga.
Einnig er lifandi tónlist og ball báða dagana.
Verð fyrir alla helgina 15.900 kr.
Verð föstudag m/gistingu 10.900 kr á mann.Verð án gistingar 5.900 kr.
Verð laugardag m/gistingu 9.900 kr.
Verð án gistingar 4.900 kr.
Hlíðarvegur 7 | 860 Hvolsvöl lur | s : +354 487 8050 | fax: +354 487 8058 | hotelhvolsvol lur@simnet. is | www.hotelhvolsvol lur . is