Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 50
31. október 2008 FÖSTUDAGUR
Undankeppni EM 2009
Ísland-Írland 3-0 (4-1 samanlagt)
1-0 Dóra María Lárusdóttir (23.), 2-0 Margrét
Lára Viðarsdóttir (60.), 3-0 Dóra María (69.)
Lið Íslands: María Björg Ágústsdóttir - Ásta
Árnadóttir, 8 Katrín Jónsdóttir, Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir, Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir - Dóra
Stefánsdóttir, Edda Garðarsdóttir, Sara Björk
Gunnarsdóttir (84. Katrín Ómarsdóttir) - Dóra
María Lárusdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir,
Margrét Lára Viðarsdóttir.
Ísland, Ítalía, Rússland, Úkraína og Holland kom
ust í úrslitakeppnina í gegnum umspilið. EM
fer fram í Finnlandi 23. ágúst til 10. september
á næsta ári.
Það verður dregið í þrjá fjögurra liða riðla í
Helsinki 18. nóvember næstkomandi. Auk fyrr
nefndra liða munu Finnland, Þýskaland, Svíþjóð,
Danmörk. England, Frakkland og Noregur vera í
pottinum. Ísland er í neðstra styrkleikaflokki
Iceland Express-deild karla:
Tindastóll-Stjarnan 84-78 (40-31)
Stig Tindastóls: Ben Luber 26 (15 frák.), Darrel
Flake 17 (6 stoðs.), Svavar Birgisson 14, Helgi
Rafn Viggósson 8, Hreinn Birgisson 7, Ísak Ein
arssn 6, Sören Flæng 6.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 26, Jovan Zdra
vevski 22, Fannar Freyr Helgason 16 (13 frák.),
Birkir Guðplaugsson 4, Guðjón Lárusson 4,
Hjörleifur Sumarliðason 3, Hilmar Geirsson 2,
Ólafur Sigurðsson 1.
ÍR-Njarðvík 69-73
Þór Akureyri-FSu 99-89
ÚRSLIT
TM styður kvennaknattspyrnu
Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar
Eyjólfsson var eðlilega í skýjunum
með sannfærandi sigur gegn Írlandi
í gærkvöld þegar íslensku stelpurnar
tryggðu sér þátttökurétt á lokakeppni
EM 2009 sem fram fer í Finnlandi.
„Stelpurnar stóðu sig eins og hetjur,
bæði þær sem voru inni á vellinum
og þær sem sátu á bekknum,“ segir
Sigurður Ragnar.
Sigurður Ragnar tók við landliðsþjálf-
arastöðunni í byrjun árs árið 2007
og markaði liðinu strax þá stefnu
að komast á lokakeppni EM 2009.
Markmið sem virkaði ef til vill
fjarlægt þá, en er nú orðið að
veruleika.
„Þessi tæpu tvö ár sem
við höfum verið saman
hafa verið meiri háttar.
Þessi hópur er frábær og
allir þeir sem hafa komið
nálægt liðinu hafa unnið
stórkostlega vinnu og
við erum að upp-
skera samkvæmt
því. Það er sannar-
lega mikill heiður
að fá að taka
þátt í þessu,“
segir Sigurð-
ur Ragnar
stoltur.
Nú getur íslenska liðið farið að hlakka
til þess að spila á lokakeppni EM í
Finnlandi á næsta ári en er lands-
liðsþjálfarinn strax farinn að láta
hugann reika um undirbúning fyrir
átökin þar?
„Nei, nei, það er nægur tími til
undirbúnings fyrir lokakeppn-
ina. Nú er bara frí og tími
til þess að fagna vel og
innilega. Við plönum
bara undirbúning-
inn fyrir Finnland
í rólegheitunum,“
sagði Sigurður
Ragnar sigurreifur
í leikslok í gær-
kvöld.
SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON: HRÓSAÐI ÍSLENSKA LIÐINU Í HÁSTERT Í GÆRKVÖLD
Stelpurnar stóðu sig eins og hetjur
FÓTBOLTI Markaskorararnir Dóra
María Lárusdóttir og Margrét
Lára Viðarsdóttir voru gríðarlega
ánægðar í leikslok í gær eftir
frækinn sigur.
„Það er eiginlega ekkert hægt
að útskýra hvernig mér líður,
þetta er bara ólýsanleg tilfinning.
Stemningin í liðinu var frábær og
að fá svona stuðning og ná mark-
miði okkar við þessar aðstæður er
náttúrlega bara yndislegt,“ segir
Dóra María sem átti hreint út sagt
magnaðan leik í gærkvöld og skor-
aði tvö mörk og lagði upp eitt.
Margrét Lára tók undir með
Dóru Maríu og hrósaði liðsheild-
inni fyrir frábæran sigur.
„Þetta var yndislegt. Þetta er
bara eins og að vera heimsmeist-
ari, maður getur ekkert lýst þessu.
Við erum að brjóta blað í sögu
íslenskrar knattspyrnu og erum
bara að gera þetta íþróttaár á
Íslandi enn betra og fallegra,“
segir Margrét Lára glöð.
Margrét Lára skoraði annað
mark Íslands og lagði upp þriðja
mark Dóru Maríu í gærkvöld. En
fagnið hennar í öðru markinu var
einkar skemmtilegt þar sem hún
stoppaði við, klappaði frosnum
vellinum og gaf merki, „þumal
upp“, um að vallaraðstæður væru
ekkert svo slæmar.
„Mér fannst ég verða að fagna
með þessum hætti, bæði til þess
að hrósa því góða fólki sem lagði
nótt við dag til þess að gera völl-
inn eins góðan og mögulegt var og
síðan líka út af því að írsku stelp-
urnar voru eitthvað að grenja yfir
vallaraðstæðunum. Við vorum
vorum alla vega ekkert að pirra
okkur á vallaraðstæðunum og
létum það ekkert stoppa okkur,“
segir Margrét Lára kát. - óþ
Dóra María og Margrét voru í skýjunum í leikslok:
Ólýsanleg tilfinning
KOMNAR YFIR Stepurnar fagna fyrra
marki Dóru Maríu Lárusdóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Knattspyrnusaga Íslands
var endurskrifuð við íslenskar
aðstæður á Laugardalsvellinum
þegar stelpurnar okkar tryggðu
sér sæti í lokakeppni EM í Finn-
landi á næsta ári með því að vinna
öruggan 3-0 sigur á Írum. Íslenska
kvennalandsliðið vann því saman-
lagt 4-1 og er því fyrsta A-landslið
karla eða kvenna í fótbolta sem
kemst alla leið í úrslitakeppni
stórmóts.
Aðstæður á Laugardalsvellinum
í gær voru í raun ekki boðlegar
fyrir eins mikilvægan leik og
þetta. Írarnir létu víst vel í sér
heyra og heimtuðu að þýski dóm-
arinn flautaði leikinn af og það er
kannski mögulegt að dómari sunn-
ar í Evrópu hefði aldrei látið leik-
inn fara fram á frosnu grasinu.
Sem betur fer þrjóskaðist sú þýska
við og kláraði leikinn.
Íslensku stelpurnar byrjuðu vel
og pressaði írska liðið frá fyrstu
mínútu. Íslenska liðið reyndi
mikið af stungusendingum fram á
upphafskafla leiksins en það var
hins vegar þegar þær spiluðu bolt-
anum laglega upp hægri kantinn á
23. mínútu að þær náðu að skora
fyrsta markið. Eftir laglega sókn
upp hægri kantinn hrökk fyrirgjöf
Ástu Árnadóttur út til Dóru Maríu
Lárusdóttur sem var ekkert að
hika heldur lagði boltann á snyrti-
legan hátt upp í bláhornið. Fallegt
og mikilvægt mark.
Íslenska liðið var meira með
boltann og átti hættulegri sóknir
en það var alltaf hætta á mistök-
um á gaddfreðnum vellinum og
því var ekkert öruggt í hendi fyrr
en stelpurnar næðu að bæta við
marki. Það mark kom eftir korter
í seinni hálfleik og eftirleikurinn
var draumur að rætast fyrir stelp-
urnar okkar.
Það var við hæfi að Margrét Lára
Viðarsdóttir skyldi koma íslenska
liðinu í 2-0 enda búin að fara fyrir
uppkomu kvennalandsliðsins síð-
ustu ár. Markið skoraði hún með
flottum skalla úr markteig eftir
frábæra fyrirgjöf Dóru Maríu Lár-
usdóttur. Þetta var tólfta mark
Margrétar í undankeppninni.
Maður leiksins, Dóra María Lár-
usdóttir, gerði hins vegar út um
leikinn á 69 mínútum þegar hún
skaut íslenska liðinu endanlega til
Finnlands. Dóra María afgreiddi
þá boltann í netið eftir að hafa
fengið glæsilega stungusendingu
Margrétar Láru inn fyrir vörnina.
Dóra María virtist kunna vel við
sig á frosnum vellinum.
Það sem eftir lifði leiks var
íslenska liðið með góð tök á leikn-
um, miðjan vann vel fyrir liðið og
öll varnarlínan var mjög traust.
Allir leikmenn liðsins voru jafnt
einbeittir og skynsamir í sínum
aðgerðum og það var að sjá að
þarna færu stelpur sem kunna að
stilla spennustigið sitt rétt þegar
mest við liggur.
Árangur íslenska kvennalands-
liðsins undir stjórn Sigurðar Ragn-
ars Eyjólfssonar er stórkostlegur.
Nú tekur við annað ævintýri – að
takast á við bestu þjóðir Evrópu í
Finnlandi næsta haust.
ooj@frettabladid.is
Stelpurnar okkar á EM
Írar réðu ekki við leikni Dóru Maríu Lárusdóttur sem skoraði tvö mörk og lagði
upp eitt í 3-0 sigri íslenska kvennalandsliðsins í seinni umspilsleiknum við Íra.
GULLTRYGGT Dóra María Lárusdóttir átti frábæran leik og hér skorar hún seinna mark
sitt og gulltryggir Íslandi sætið á EM í Finnlandi á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN