Fréttablaðið - 31.10.2008, Page 8
8 31. október 2008 FÖSTUDAGUR
1 Hvaðan eru sjómennirnir
sem eru strandaglópar í Hafn-
arfirði?
2 Hvað heita tveir eigendur
eignarhaldsfélagsins Fons?
3 Hver rauf þúsund marka
múrinn með landsliðinu í
handknattleik gegn Belgum í
vikunni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
ÚTSÖLULOK
Í NÍTRÓ
KOMDU NÚNA, ÚTSALAN KLÁRAST Á LAUGARDAG
N1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 REYKJAVÍK. SÍMI 440 1220
OPIÐ VIRKA DAGA 08-18, LAUGARDAGA 10-14.
Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi, Akranesi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum.
TERRAMOTO (motorcross) – verð 159.900 kr. – verð áður 180.000 kr.
125 cc, fjórgengis, 4 gíra, loftkælt, blöndungur, 9,5 hestöfl, 66 kg.
VENTO TRITON – verð 199.000 kr. – verð áður 220.000 kr.
50 cc, tvígengis, sjálfskipt, loftkælt, blöndungur, 5 hestöfl, 94 kg.
Láttu drauminn rætast á
góðu hjóli með afslætti
Kraftmikil fjórhjól á
lágmarksverði
Jakkar.
Allt að
70%afslátturHjálmar og annar öryggis-
búnaður á tilboði
MÓTORS
PORT
JÓLAGJA
FIR
Leðurjakk
ar, gallar,
peysur, o.
fl. o.fl.
Hjó
l á g
am
la
gen
gin
u o
g
me
ð g
óðu
m
afsl
ætt
i
ALLT AÐ 10
0%
FJÁRMÖGN
UN
Hjálmar.
Allt að
40%afsláttur
ENNÞÁ LÆGRA VERÐ
MENNING „Þetta er óneitanlega
mjög óþægileg staða. Við vorum
búnir að fá átta milljónir af 25 og
því vantar enn sautján milljónir
upp á. Þetta gæti auðvitað frestað
afhendingu þáttanna en þeir
verða kláraðir með einum eða
öðrum hætti,“ segir Snorri Þóris-
son, framkvæmdastjóri Pegasus.
Fyrirtækið hefur að undanförnu
unnið að gerð spennuþáttaraðar-
innar Hamarinn sem taka átti til
sýninga á RÚV eftir áramót.
Óvissa ríkir nú um hvort fyrir-
tæki Björgólfs Guðmundssonar,
Ólafsfell, geti staðið við samning
sem það gerði á síðasta ári um að
styrkja framleiðslu leikins inn-
lends efnis hjá Ríkissjónvarpinu.
Sá samningur hljóðaði uppá 100-
150 milljónir en RÚV átti að láta
jafn háa upphæð af hendi. Og átti
að styrkja fjögur til sex verk-
efni.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins hefur 45 milljón-
um af þessum samningi þegar
verið ráðstafað. Áðurnefndar átta
í Hamarinn, 22 milljónum í Svarta
engla og fimmtán milljónum í
Mannaveiðar. Eftir standa því 50-
100 milljónir af þessum samn-
ingi.
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Björgólfs Guðmundssonar, stað-
festi í samtali við Fréttablaðið að
Ólafsfell gæti ekki staðið við
skuldbindingar sínar gagnvart
Pegasusi. Ekki eins og málin
stæðu í dag. „Á meðan það ríkir
óvissa um fjárhagslega framtíð
Björgólfs Guðmundssonar getur
fyrirtækið ekki staðið við skuld-
bindingar sínar. Framtíðin verð-
ur síðan að skera úr um hvað
verður. Ef allt fer á versta veg er
ólíklegt að hægt verði að efna
þær skuldbindingar sem fyrir-
tækið hefur gert gagnvart Peg-
as usi. Þessir ágætu kvikmynda-
gerðarmenn verða því miður
fyrir barðinu á þessu efnahags-
lega fárviðri eins og þjóðfélagið
allt,“ segir Ásgeir.
Þórhallur Gunnarsson, dag-
skrárstjóri RÚV, vildi sem minnst
tjá sig um málið. Sagðist bara
vera að heyra af þessu núna og
taldi að þetta væri áfall fyrir
sjálfstæða framleiðendur og ekki
síst fyrir Pegasus sem hefði gert
samning við Ólafsfell gæti nú
ekki staðið við sínar skuldbind-
ingar. „Mér þykir þetta leitt,“
segir Þórhallur. Hann vildi ekk-
ert tjá sig um hvort RÚV myndi
hlaupa undir bagga með Pegasusi
við að klára framleiðsluna.
freyrgigja@frettabladid.is
Spennuþátta-
röð í uppnámi
Framleiðslufyrirtækið Pegasus á enn eftir að fá
sautján milljónir af 25 vegna samnings við Ólafs-
fell um gerð sjónvarpsþáttaraðarinnar Hamarinn.
Óþægileg staða, segir framkvæmdastjóri Pegasus.
Í UPPNÁMI Samningnum sem Björgólfur Guðmundsson og RÚV gerðu var fagnað af
sjálfstæðum sjónvarpsframleiðendum. Sá samningur er nú í hættu vegna fjárhags-
legrar óvissu Björgólfs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á meðan það ríkir óvissa
um fjárhagslega framtíð
Björgólfs Guðmundssonar getur
fyrirtækið ekki staðið við skuld-
bindingar sínar.
ÁSGEIR FRIÐGEIRSSON
TALSMAÐUR BJÖRGÓLFS
GUÐMUNDSSONAR
SKOÐANAKÖNNUN Flestir líta til
Noregs, spurðir að því hvaða þjóð
sé helsta vinaþjóð Íslands, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Tæplega 85 pró-
sent nefna eitthvert Norðurland-
anna sem Íslands helstu vinaþjóð.
Langflestir nefna þó Noreg, 57,2
prósent. Ekki er ólíklegt að þar
komi til mikill fréttaflutningur
um velvild Norðmanna í efnahags-
þrengingum Íslendinga.
Í öðru sæti yfir okkar helstu
vini situr svo Danmörk, en 13,1
prósent telja Dani vera okkar
bestu vini.
Þá horfir 9,1 prósent til litlu
nágranna okkar, Færeyinga, og
segir þá þjóð vera okkar bestu
vini. Ekki er ólíklegt að hefði
könnunin verið gerð eftir að frétt-
ir bárust um sex milljarða lánslof-
orð Færeyinga, hefðu fleiri talið
þá til landsins bestu vina.
Í fjórða sæti yfir helstu vini er
svo Rússland, og segja 7,8 prósent
Rússa vera okkar helstu vini. Þar
kemur eflaust til umræða um
mögulegt lán frá Rússlandi. Rúm
þrjú prósent nefna Bandaríkin og
2,6 prósent nefna Norðurlöndin öll
og 1,5 prósent nefna Svíþjóð.
Önnur lönd eru svo nefnd í undir
einu prósenti tilfella. Má þar nefna
Bretland, Frakkland, Japan, Kan-
ada og Þýskaland.
Hringt var í 800 manns laugar-
daginn 25. október og skiptust
svarendur jafnt eftir kyni og hlut-
fallslega eftir búsetu. Spurt var;
Hvaða erlenda þjóð telur þú að sé
helsta vinaþjóð Íslands? Afstöðu
til spurningarinnar tóku 82,1 pró-
sent. - ss
Skoðanakönnun Fréttablaðsins um helstu vinaþjóð Íslands:
Norðmenn okkar helstu vinir
HVER ER HELSTA
VINAÞJÓÐ ÍSLANDS?
Noregur 57,2%
Danmörk 13,1%
Færeyjar 9,1%
Rússland 7,8%
Bandaríkin 3,2%
Skv. könnun Fréttablaðsins 25. 10 ´08
KJARAMÁL Níu flugfreyjum hjá
Iceland Express hefur verið sagt
upp. Þrjátíu flugfreyjur störfuðu
hjá félaginu fyrir uppsagnirnar.
Félagið fór ekki að óskum
Flugfreyjufélags Íslands um að
reynt yrði að minnka starfshlut-
fall eða bjóða launalaust leyfi í
stað uppsagna.
Frá Icelandair berast þær
fregnir að 61 flugfreyja hafi tekið
launalaust leyfi eða minnkað við
sig starfshlutfall. - hhs
Uppsagnir Iceland Express:
Þriðjungi flug-
freyja sagt upp
FLUGVÉL ICELAND EXPRESS Níu af þrjá-
tíu flugfreyjum hefur verið sagt upp.
SPÁNN, AP Sautján manns særðust
og eldur braust út í húsum og
bifreiðum þegar öflug bíl-
sprengja sprakk við háskóla í
borginni Pamploma á norðanverð-
um Spáni í gær.
Stjórnvöld telja víst að
aðskilnaðarsinnaðir Baskar beri
ábyrgð á sprengingunni. Þau
sögðu að sprengingin hefði
hæglega getað kostað fjölda
manns lífið vegna þess að hún var
sprengd án viðvörunar á fjöl-
förnu svæði á skólalóðinni.
Enginn hinna sautján slösuðu
voru alvarlega slasaðir. Margir
höfðu fengið í sig glerbrot þegar
rúður brotnuðu. - gb
Bílsprengja á Spáni:
Öflug sprengja
á háskólalóð
ATVINNUMÁL „Ég held að fólkið sé
ekkert að fara,“ segir Vigdís
Erlingsdóttir, fjármálastjóri fisk-
vinnslunnar Eyrarodds á Flat-
eyri, um erlenda starfsmenn fyr-
irtækisins sem eru í miklum
meirihluta. Hjá Eyraroddi starfa
36 manns og þar af eru átta
Íslendingar; fimm þeirra eru í
yfirstjórn og þrír vinna við
vinnslu. Af útlendingunum eru
langflestir pólskir.
„Ég er svo heppin að Pólverj-
arnir sem eru í vinnu hjá mér
eiga allir fasteignir hérna og
margir þeirra eru orðnir íslensk-
ir ríkisborgarar,“ segir hún. „Og
þetta er stór og góður kjarni,
margir þeirra hafa búið hérna á
Flateyri í tíu til fimmtán ár. Svo
ég held að fólkið sé ekkert á
förum í bráð.“
Nýlega fjallaði BBC á vefsíðu
sinni um innflytjendamál á
Íslandi og kom þar fram að á Flat-
eyri búa 200 manns og helming-
urinn er innflytjendur. Blaðamað-
ur gerði því skóna að flestir
þessara innflytjenda myndu yfir-
gefa landið í kjölfar efnahags-
þrenginga sem hér ríkja.
Hjá útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækinu Kambi, sem hætti
starfsemi í fyrra, störfuðu 120
manns. Vigdís segir að þegar að
Eyraroddi hóf starfsemi sína í
fyrrahaust sem nokkurs konar
arftaki Kambs hafi verið leitast
við að ráða starfsmenn sem ættu
fasteignir á svæðinu. - jse
Átta af 36 starfsmönnum Eyrarodds eru Íslendingar:
Óttast ekki að
Pólverjarnir fari
VEISTU SVARIÐ?